Varabæjarfulltrúi yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn

María Egilsdóttir María Egilsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og varaformaður félagsmálaráðs Akureyrarbæjar, hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn og beðist lausnar frá trúnaðarstörfum í nafni flokksins. Þóra Ákadóttir, fyrrum forseti bæjarstjórnar, sem sat í bæjarstjórn 2001-2006, hefur aftur pólitíska þátttöku og mun taka sæti Maríu í félagsmálaráði, en hún átti þar sæti árum saman, allt þar til að hún ákvað að hætta þátttöku í stjórnmálum í aðdraganda kosninganna á síðasta ári.

María skipaði sjötta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2006 og náði því sæti, mörgum að óvörum, í frægu prófkjöri flokksins sem haldið var í febrúar 2006. María segir skilið við flokkinn vegna Sómatúnsmálsins svokallaða, en faðir hennar, Egill Jónsson, tannlæknir, hefur átt í málaferlum við Akureyrarbæ. Það er mál sem snýst um húsbyggingu við Sómatún í Naustahverfi en hús voru þar mishá og deilur hófust vegna þess og munu fara fyrir dómstóla þar sem ekki náðist sátt milli aðila.

María hafði aldrei tekið þátt í stjórnmálum í aðdraganda kosninganna á síðasta ári og hún var ekki þekkt í aðdraganda prófkjörsins fyrir starf innan flokksins. Sumir hafa sagt að það hafi hjálpað henni að eiga ekki að baki mikla sögu innan flokksins og í ljósi þess hafi margir valið hana sem sinn fulltrúa ofarlega á lista. Margar sögur hafa gengið um upphaf stjórnmálaferils hennar og eflaust ekki rétt að fara yfir þær allar hér. Það vekur þó mikla athygli að hún segi skilið við flokkinn og forystumenn hans á þessum tímapunkti, en deilur í þessu máli hafa staðið bakvið tjöldin um skeið.
 
Það hlýtur að teljast áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn hér á Akureyri að sjá á bak varabæjarfulltrúa á þessum tímapunkti og með þessum hætti. Kannski umfram allt fyrir þá sem töldu mikilvægt að María kæmi ný inn til verka án pólitískrar reynslu ofarlega á lista, framar þeim sem kalla hefði mátt ungliða innan Sjálfstæðisflokksins.

Friður og ró eftir áralöng átök í Heimdalli

Erla Ósk ÁsgeirsdóttirEftir margra ára hjaðningavíg og ólgu milli tveggja þekktra fylkinga virðist friður hafa færst yfir í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Erla Ósk Ásgeirsdóttir er sjálfkjörin sem formaður félagsins og ekki verður kosning í stjórn á aðalfundi nú á sjöunda tímanum. Friður og ró virðast því vera einkunnarorð næsta starfsárs. Vonandi veit þetta á gott og ber þess merki að nú taki fólk úr ólíkum áttum loksins upp það samstarf sem skiptir lykilmáli til að efla starf félagsins og vinna hlutina samhent og vel.

Ekki veitir af eftir öll hörðu átökin sem staðið hafa meira og minna allan þennan fyrsta áratug 21. aldarinnar og verið umfjöllunarefni nær ávallt á þessum tímapunkti ársins. Örlög Heimdallar hafa verið örlög SUS til fjölda ára vegna yfirburða þess í ungliðastarfinu. Af því leiðir að við á landsbyggðinni höfum fylgt með í þeim darraðardansi öllum og það hefur haft sínar hæðir og lægðir. Sennilega var mesti hasarinn í þeim efnum árið 2003, er deilur um aðalfund fóru fyrir miðstjórn, og í átökunum í stjórnarkjöri á aðalfundum 2004 og 2005 þegar að Bolli Thoroddsen var kjörinn formaður og í fyrra er Erla Ósk vann Heiðrúnu Lind. Varla er þörf á að rifja það upp.

Ég held að það hafi ekki gerst í ein sex ár að svona friður hafi ríkt þarna og ég fagna því að fólk hafi náð þeim stað á ferðalaginu að sætta sig við hvort annað. Kannski upp að vissu marki bara, en samt sem áður að geta unnið saman. Það er stór áfangi fyrir vissa aðila þarna. Mér hefur alla tíð fundist þessi fylkingamyndun mjög leiðigjörn og erfið viðfangs, en hún ríkti allan tímann sem ég sat í stjórn SUS og hafði varað mun lengur. Enda eru þetta sögulegar fylkingar sem of langt mál væri að fara yfir hér í stuttri bloggfærslu.

Ég vil óska Erlu Ósk og nýrri stjórn góðs gengis í verkunum á næsta starfsári og vona að þau nái öll góðum takti saman til framtíðar, hvað svo sem fortíðin hefur haft í för með sér fyrir þau og fylkingarnar sem þau tilheyra. Það skiptir Sjálfstæðisflokkinn og Samband ungra sjálfstæðismanna verulega miklu máli í þeim verkefnum sem framundan eru á næstu árum að þetta fólk fari að vinna saman og yfirstíga þær undarlegu deilur sem fortíðin hafði í för með sér.


mbl.is Heimdellingar kjósa nýja stjórn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynferðisafbrotamaður missir lögmannsréttindin

Reynt að tala við Róbert Árna Mikið hefur verið rætt og ritað í dag um dóm Héraðsdóms yfir Róberti Árna Heiðarssyni. Það kemur varla að óvörum að hann hafi verið sviptur lögmannsréttindum, enda eru kynferðisafbrotin sem hann er sakaður um mjög alvarlegs eðlis og varla annað verjandi en taka manninn úr umferð í stéttinni. Það er því ekki hægt annað en taka undir ummæli Atla Gíslasonar, alþingismanns og lögmanns, um málið í dag.

Ég tel eðlilegt að rætt sé um þetta mál. Það má deila um hvort að nafnbirting fyrir dóminn hafi verið rétt, en ég tjáði mína skoðun á því um daginn. Ég sá Kompásþáttinn um daginn og var sennilega eins og flestir mjög sleginn yfir þeirri umfjöllun. Þetta er rosalegt mál. Það er auðvitað enn verra þegar að um er að ræða lögmann sem lokkar til sín stelpur og tekur þær yfir með brögðum. Það að lögmaður loggi sig inn á MSN og þykjist vera 17 ára gaur með aflitað hár og vöðva er auðvitað bara sjúkt, sé það raunin, eins og flest bendir til.

Þetta mál er enn ein lexían í þessum málum öllum. Það er eðlilegt að ræða það hreint út. Sérstaklega þegar að það er komið á þetta stig. Viðkomandi maður hefur fengið dóm. Það er vissulega gengið langt í umræðunni víða en brotin eru líka mjög skelfilegs eðlis og varla við því að búast að þagnarhjúpi sé slegið um þau, sérstaklega ekki þegar að maður í þessari stöðu er staðinn að verki. Það verður að tala hreint út um slík mál.

Bloggfærslur 27. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband