7.9.2007 | 18:08
18 - 23

Sýningin er táknræn enda eru þar myndir af 18-23 ára sjálfráða fólki sem hefur fetað sinn veg í lífinu; eru í lögreglunni, sjúkraflutningum, slökkviliðinu, í námi, á eigið fyrirtæki og fjöldamargt annað. Eru þar táknmyndir ábyrgs og öflugs fólks í samfélaginu. Segja myndirnar sína sögu mjög vel að mínu mati.
Mér líst vel á þessa sýningu Helga Steinars og styð svo sannarlega það sjónarmið sem hann er að kynna með henni. Þessi ákvörðun var röng, ég held að hún verði aldrei tekin aftur í sömu mynd. Hún einkenndist af klúðri og vandræðagangi umfram allt og var einfaldlega röng, enda var með því lokað á að hluti fólks sem er sjálfráða og ræður sér sjálft mætti tjalda hér.
Þetta er því góð ljósmyndasýning og vert að benda á hana hér, enda styð ég ekki þessa ákvörðun bæjaryfirvalda og vona að þeir hafi lært sína lexíu á þessu máli öllu.
Dægurmál | Breytt 23.9.2007 kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.9.2007 | 12:39
Er ráðgátan um hvarf Madeleine að leysast?

Fjölmiðlar hafa talað mikið um það sérstaklega síðustu 50 dagana hvort að verið gæti að sakborningar í þessu máli séu sjálfir foreldrarnir, þau sem næst standa Madeleine. Atburðarás þessa máls hefur reyndar alla tíð verið undir smásjá slúðurblaða og deilt um hvern einasta þátt hennar, sérstaklega þann þátt foreldranna að hafa ákveðið að fara út að borða með börn sín ein síns liðs heima í íbúðinni sem þau dvöldu í. Strax vegna þess vaknaði viss vafi og margir hugleiddu það talsvert.
Held samt að margir hafi ekki viljað leggja þau undir grun, þó fátt hafi bent til annars en að augljósasta skýringin á örlögum Madeleine væri sú sem stæði næst. Það verður hinsvegar að segjast eins og er að grunurinn hefur sífellt færst meira í áttina að þeim eftir því sem liðið hefur frá hvarfi Madeleine. Einhverjar vísbendingar hafa borist um hvarf hennar, en þær hafa allar verið mjög haldlitlar og ekki beint til að byggja mikið á, þó slúðursögurnar hafi orðið mun fleiri. Foreldrarnir hafa verið í kastljósi fjölmiðla frá fyrsta degi og verið í fjölda viðtala og aðeins eru nokkrir dagar síðan að þau voru saman í löngu viðtali á Sky sem ég sá og þar komu þau fram af miklu öryggi.
Það er auðvitað til marks um verulega kaldrifjað hugarfar ef þau hjón bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar og hafa á meðan getað leikið svo sannfærandi hlutverk hinna örvæntingarfullu foreldra. Get bara ekki sagt annað. Er satt best að segja að vona að verið sé að hafa þau fyrir rangri sök eins og Chamberlain-hjónin í Ástralíu fyrir um þrem áratugum, en þau voru sökuð um að hafa myrt kornabarn sitt, en síðar kom í ljós að dingó-hundar átu það. Það var frægt mál sem var fjallað um í kvikmyndinni A Cry in the Dark árið 1988 með Meryl Streep og Sam Neill í aðalhlutverkum.
En þessar vísbendingar eru mjög afgerandi og erfitt að verjast þeim. Það blasir við. En það er alveg ljóst að dómur almennings og fjölmiðla yfir McCann-hjónunum verður verulega þungur sé málið svona vaxið eins og sannanir gefa til kynna.
![]() |
Lögregla segir blóð úr Madeleine hafa fundist í fjölskyldubílnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.9.2007 | 00:58
Góð byrjun hjá nýjum heilbrigðisráðherra

Ennfremur mætti nefna þær ákvarðanir að skipa Benedikt Jóhannesson, stærðfræðing, sem stjórnarformann Tryggingastofnunar ríkisins, Steingrím Ara Arason sem formann samninganefndar heilbrigðisráðherra (hins sama Steingríms Ara sem sagði sig reyndar úr einkavæðingarnefnd með þeim orðum að "hann hefði aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum"), Þórólf Þórlindsson sem forstjóra Lýðheilsustofnunar og Rúnu Hauksdóttur Hvannberg sem formann lyfjaverðsnefndar í stað Höllustaðabóndans margfræga.
Nú nýlega var Davíð Á. Gunnarsson færður úr starfi ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins og settur í sérverkefni undir utanríkisráðherranum Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Ég held að sú tilfærsla sé mjög gott skref, hið rétta í stöðunni, og ekki er verra að til verka í staðinn sé valin Berglind Ásgeirsdóttir, sem er mjög vönduð og hæf kona sem hefur víða unnið gott starf. Ráðherrann er að marka sér sess sem manns með hreint borð sem vill gera hlutina með sínu lagi en ekki annarra og hefur stokkað spilin vel upp.
Guðlaugur Þór Þórðarson hefur því farið vel af stað og fyrstu 100 dagarnir lofa góðu um verk hans. Það sem væri heiðarlegast og best núna fyrir hann væri að stokka upp málefni hátæknisjúkrahússins margfræga, skipta um formann í bygginganefnd þess og velja nýju sjúkrahúsi annan stað en þann sem nú hefur verið rætt um. Það yrði rós í hnappagat ráðherrans. En ég vil semsagt hrósa Gulla fyrir góða byrjun og vona að næstu hundrað dagar verði jafnvel heppnaðir og þeir hinir fyrstu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2007 kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)