Grafalvarlegt mál

Það eru mjög sláandi tíðindi að reynt hafi verið að nema barn á brott með valdi. Þetta er napur veruleiki. Það er eiginlega varla að maður trúi því að svona gerist á Íslandi, en það er greinilegt á svo mörgu sem gerist í samfélaginu að við lifum í samfélagi þar sem ekkert er heilagt. Af mörgu alvarlegu sem hefur gerst í samfélaginu að undanförnu finnst mér þetta eiginlega það versta. Það að reyna að nema barn á brott til að vinna því mein er svo sorglegur verknaður að það eru engin nógu sterk orð til að lýsa hryggð sinni með það.

Það að þetta gerist á skólalóð er líka enn alvarlegra en ella, enda viljum við öll trúa því að skólalóðin sé heilagur staður, þar sem börn njóta verndar. Það hafa reyndar verið sögur að reynt hafi verið að selja dóp við skóla og koma allskonar ógeði að börnum. Það að ætla að nema barn á brott með þessum hætti mun vekja fólk til umhugsunar að fátt sé orðið heilagt. Það er mikilvægt að passa börnin vel, enda eru greinilega sjúkar sálir þarna úti sem vilja vinna saklausum börnum mein og ráðast að sakleysi þeirra.

Það er eðlilegt að skólastjórnendur hugsi þetta mál vel og foreldrar hljóta að vera uggandi. Þetta er ógn sem stingur mjög djúpt í huga fólks og verður að reyna að vernda öryggi barna við skóla. Það er þó ljóst að aldrei er hægt að hafa fullkomið eftirlit með börnum, enda er þetta rof á svo helgum stað í uppeldi barna að það eru engin nógu sterk orð til að lýsa því. Það er vonandi að hægt verði að sporna við þeirri ógn.

Einn alvarlegasti þáttur málsins er að auki sá hversu seint þetta kemst í umfjöllun, er rætt tæpitungulaust. Það að líði tíu dagar er að mínu mati fyrir neðan allar hellur. Það er ólíðandi að skólastjórnendur hafi ekki látið vita af málinu í upphafi, en þetta er alvarlegt mál fyrir foreldra í skólahverfinu og varðar almenning allan. Þögnin leysir engan vanda.

mbl.is Foreldrar slegnir óhug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástþór flippar yfir um - forsetaframboð planað

Ástþór Magnússon Það er ekki hægt að túlka ákæru Ástþórs Magnússonar öðruvísi en sem svo að hann ætli sér að gefa kost á sér í forsetakosningunum 28. júní nk. og fara í þriðja skiptið í kosningu gegn Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Hann reyndar ætlaði sér að fara fram árið 2000 en varð þá að hætta við vegna þess að honum tókst ekki að safna meðmælendum í tæka tíð. Segja má því að Ástþór hafi fylgt Ólafi Ragnari eftir sem skugginn alla forsetatíð hans og ætli sér að vera við hlið hans í síðustu kosningunum sem hann mun taka þátt í á sínum ferli.

Þórunn Guðmundsdóttir hafði fullan rétt á því að tjá skoðanir sínar og segja það sem henni fannst. Hún er ekki lengur í yfirkjörstjórn og er ekki bundin af neinum embættisskyldum þar lengur, þó að hún hafi vissulega verið formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík í forsetakosningunum 2004. Eftir stendur þó að hún hefur fullt málfrelsi til að segja skoðanir sínar. Verði hún dæmd fyrir þetta má í raun segja að málfrelsið í þeirri mynd sem við þekkjum það bíði verulegan skaða af. Annars tel ég það fráleitt að hún fái á sig dóm fyrir að segja sínar skoðanir með þessum hætti.

Ástþór hefur alla tíð verið ólíkindatól hið mesta. Yfirvofandi forsetaframboð er af slíkum skala að það er eðlilegt að fólk hafi á því afgerandi skoðanir. Eftir allar fyrri tilraunirnar er ekki nema von að spurt sé um hvað Ástþór sé að hugsa sér að gera með þriðja framboðinu eða telji sig áorka með því. Það er ekkert óeðlilegt við þær pælingar. Það þarf ekki að koma honum að óvörum að fólk hafi sterkar skoðanir og eða leggist gegn þeim áætlunum hans eftir allt sem á undan er gengið. En kannski hefur maðurinn endanlega flippað yfir um.

mbl.is Ástþór kærir Þórunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svanfríður verður áfram bæjarstjóri á Dalvík

Svanfríður JónasdóttirSamkomulag mun nú hafa nást milli J-listans og Framsóknarflokks í Dalvíkurbyggð um að Svanfríður Jónasdóttir, fyrrum alþingismaður, verði bæjarstjóri til loka kjörtímabilsins, en áður hafði verið samið um að hún gegndi embættinu aðeins í tvö ár, en þá fengi Framsókn að ráðstafa embættinu og var í kortunum að auglýsa það en ráðið yrði í það að þeirra tillögu. Mun Framsókn fá í staðinn formennsku í bæjarráði, að mér skilst.

Ætla framboðin að endurmynda samstarf sitt og ganga frá nýjum málefnasamningi í ljósi þessa, en samstarfið hékk á bláþræði því að J-listinn vildi að Svanfríður héldi bæjarstjórastólnum og fyrra samkomulag yrði fellt úr gildi. Hrikti í stoðum þessa meirihluta vegna málsins og við blasti að J-listinn myndi slíta meirihlutanum fengi Svanfríður ekki að halda áfram. Auk þess var vel ljóst að allir aðrir voru vel tilbúnir til að ljá máls á þessu formi til að mynda nýjan meirihluta.

Átti svosem ekki von á öðru en samkomulag myndi nást milli aðila út með firði. Það hefur reyndar komið mér á óvart mjög lengi að J-listinn skyldi sætta sig við að skipta tímabilinu upp. Það hefur blasað við um nokkuð skeið að það yrði erfitt fyrir Svanfríði að hætta í hálfleik og þjálfa svo upp annan bæjarstjóra til að vinna með henni.

Það hljómaði beinlínis absúrd, enda hefur aldrei verið hefð á Dalvík að ráða bæjarstjóra með svo hálfum hug og er var í þessu tilfelli. En eftir stendur að Framsókn varð að bakka og sætta sig við orðinn hlut og bíta í það súra að fórna bæjarstjórastólnum sem þeir höfðu samið um að fá.

Glæsilegur sigur - góður grunnur fyrir EM

Hannes Jón Það var gaman að sjá landsliðið taka Tékka með sannfærandi hætti í kvöld. Aldrei var vafi á hvort liðið væri betra og myndi sigra. Hannes Jón fór alveg á kostum í seinni hálfleik og greinilegt að hann er orðinn ein skærasta stjarna landsliðsins og verður áhugavert að sjá hann spila á EM á næstunni. Það er að verða góð endurnýjun í liðinu og margir góðir ungir leikmenn að sýna styrk sinn.

Við getum verið stolt í kvöld með okkar menn og nú er auðvitað að vona að við munum ná að sýna allt okkar besta í næstu leikjum, eins og var í kvöld. Leikurinn við Svíana á fimmtudaginn verður góð prófraun á styrkleika liðsins og sigur þar myndi peppa liðið upp í næstu leiki og ennfremur kveikja endanlega áhugann á mótinu hérna heima. Í fyrra náði sigur gegn Frökkum í upphafi að kveikja neista sem gerði mikið fyrir áhugann á dæminu.

Eins og það er skemmtilegt að horfa á liðið standa sig vel og brillera er algjör ömurð ef dæmið fellur á viðkvæmasta tímapunkti og stemmningin springur eins og blaðra. Þessir tveir sigrar eru vissulega ekkert nema forskot á það sem framundan er, en gefur okkur fyrirheit og væntingar um að gott mót sé framundan fyrir okkur í Noregi. Nú er bara að massa þetta og gera það gott á mótinu. Miðað við leikinn í kvöld er allt hægt í Noregi.

 


mbl.is Öruggur sigur Íslands, 33:28
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband