Skrípaleikur í Valhöll - léleg vinnubrögð

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Það er enginn vafi á því að blaðamannafundurinn með Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni í Valhöll er einn sá daprasti í íslenskri fjölmiðlasögu og var starfsfólki Sjálfstæðisflokksins til skammar. Engu líkara var en að umgjörðin væri sett fram til þess að ganga endanlega frá stjórnmálaferli Vilhjálms í beinni útsendingu, án þess að hann ætlaði sér að hætta.

Svo klúðurslegt var allt við augnablikið að freistandi var að telja viðvaninga við stjórn í Valhöll. Það er alveg ljóst að svona vandræðaleg vinnubrögð og klaufaleg framganga við fjölmiðla hefði aldrei sést á framkvæmdastjóraferli Kjartans Gunnarssonar sem vann allt svona af fagmennsku og passaði vel upp á að augnablikið nyti sín, gildir þá einu landsfundir flokksins, fundir þingflokksins og forystumannanna. Fjölmiðlar fengu þar alltaf greiðan aðgang að kjörnum fulltrúum og passað vel upp á að alla þá þætti sem mestu máli skipta.

Á því augnabliki þegar að leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem hefur verið undir miklu álagi vegna pólitískra mistaka sinna og lélegrar forystu, reynir að verjast og byggja sig upp, er skondið að sjá starfsmenn flokksins byrja á því að reka ljósmyndara og blaðamenn út af fundinum og fram á gang, allt að því með valdi. Á þeim tímum sem við lifum á er lágmark að fjölmiðlar hafi aðgang að kjörnum fulltrúum og sérstaklega á því augnabliki að stjórnmálamaður er að koma með yfirlýsingu um framtíð sína í starfi. Þetta er verklag sem verður ekki hægt að afsaka svo auðveldlega eða bæta fyrir.

Þessi vinnubrögð eru vond fyrir Sjálfstæðisflokkinn í heild og alveg lágmark að framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins taki sig saman í andlitinu og biðji fjölmiðla afsökunar og eiginlega sjálfstæðismenn alla líka, því að þessi fjölmiðlasirkus, sem var stýrður af starfsmönnum flokksins, var fyrir neðan allar hellur og skaðaði aðeins leiðtoga í vanda og borgarstjórnarflokkinn í heild sinni.

mbl.is „Óánægja blaðamanna skiljanleg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Romney styður McCain - færir honum útnefninguna

Romney og McCainMitt Romney mun tilkynna opinberlega í kvöld um stuðning sinn við John McCain sem forsetaefni Repúblikanaflokksins og færa honum þingfulltrúa sína. Með því færir hann honum í raun útnefningu flokksins á flokksþinginu í St. Paul í Minneapolis í september og farmiðann í forsetakosningarnar í nóvember, enda hafði hann hlotið 286 þingfulltrúa í forkosningum innan flokksins.

Eftir þessa stuðningsyfirlýsingu hefur McCain hlotið 1113 þingfulltrúa, fyrir hafði hann 827. Vantar honum þá aðeins 78 þingfulltrúa til að hljóta útnefninguna formlega. Með þessu er forsetaframboð Mike Huckabee, sem enn berst við McCain af alvöru, sjálfkrafa búið og þarf ekkert að velta sér meira upp úr forkosningum á meðal repúblikana eða Huckabee yfir höfuð. Það var alltaf langsótt að Huckabee næði McCain og sú von dó endanlega með forkosningu á Washington-svæðinu í vikunni.

Það er því ljóst nú 40 dögum eftir fyrstu forkosningar repúblikana í Iowa að hinn 71 árs gamli John McCain verður forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins og berst fyrir því að halda Hvíta húsinu eftir átta ára forsetaferil George W. Bush, mannsins sem sigraði hann í forkosningum repúblikana fyrir átta árum. Það hefur verið ljóst frá forkosningunum í Suður-Karólínu og Flórída að McCain myndi ná útnefningunni og góður árangur hans á ofur-þriðjudegi kláraði alvöru baráttu um hnossið. Eftir að Mitt Romney gafst upp fyrir viku hefur aðeins verið tímaspursmál hvenær hann næði þessu.

Tæpum níu mánuðum fyrir forsetakosningarnar 4. nóvember er því forkosningabaráttu repúblikana formlega lokið og þeir komnir með forsetaefni á meðan að stefnir í harðan slag á meðal demókrata fram í mars eða apríl, sumir tala um slag fram á sumarið. Á meðan að Hillary Rodham Clinton og Barack Obama eyða peningum og tíma sínum í að slást hvort við annað getur John McCain slappað af; fundið sér varaforsetaefni, safnað peningum gegn öðru þeirra, fínstillt strategíuna og sameinað flokkinn að baki sér.


Vel gert hjá Hæstarétti

Hæstiréttur Það er ánægjulegt að Hæstiréttur hafi ómerkt sýknudóminn umdeilda í nauðgunarmálinu og vel gert hjá þeim. Sá dómur stóðst einfaldlega ekki og var til skammar fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Enda var deilt á hann í samfélaginu, fólki brá hvernig rétturinn komst að niðurstöðu.

Það er því miður orðin alkunn staðreynd að dómar fyrir kynferðisafbrotamál hér heima eru til skammar. Bæði eru þeir jafnan alltof vægir og með þeim er ekki staðfest hversu alvarlegur glæpur felst í verknaðinum. Kynferðisafbrot eru að mínu mati stóralvarlegur glæpur og eðlilegt að dómar verði í þeim málum verði þyngdir.

mbl.is Ályktun héraðsdóms stenst ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villi og Huddersfield mega muna sinn fífil fegurri

Davíð Oddsson Davíð Oddsson er snillingur í að tala í fyrirsögnum og hefur frábæran húmor; getur verið skemmtilega kaldhæðinn. Davíð var í essinu sínu í dag er hann líkti pólitískri stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fyrrverandi borgarstjóra, við stöðu knattspyrnuliðsins Huddersfield í V-Yorkshire.

Eins og sparkspekingar vita má liðið muna sinn fífil fegurri; er í 15. sæti í fyrstu deild ensku knattspyrnunnar og með heil 15 mörk í mínus. Með öðrum orðum; liðið er í miklum vandræðum, rétt eins og "gamli góði Villi".

Hló vænt þegar að ég sá þessi ummæli, enda eru þau allt í senn kaldhæðin, hnitmiðuð og flott. Davíð er töffari!

Bloggfærslur 14. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband