3.2.2008 | 23:58
Skelfilegur bandarískur raunveruleiki

Þetta mál minnir í fyrstu aðallega á það þegar að Menendez-bræðurnir drápu foreldra sína fyrir tveim áratugum á heimili sínu í Beverly Hills. Það var á yfirborðinu hin fullkomna fjölskylda í flottu hverfi en þar var greinilega margt að. Um þetta mál voru t.d. skrifaðar bækur og gerð eftirminnileg sjónvarpsmynd. Mikið fjölmiðlamál eðlilega á sínum tíma. Það er ekki nema von að spurt sé hvað fari í gegnum huga fimmtán ára unglings þegar að hann slátrar fjölskyldu sinni. Klikkunin er algjör.
Það er erfitt að fá svör við erfiðum spurningum en það er eðlilegt að fyrstu viðbrögðin séu undrun. Er tölvuleikjaveruleikinn þar sem hægt er að skjóta niður fólk endalaust og kuldalegt efni þar sem morð og óhugnaður er aðalefnið að hafa slík áhrif á ungt fólk að það geti verið svo kaldrifjað að slátra sínum nánustu? Ekki nema von að spurt sé. Það hefur verið rætt mörgum sinnum á undanförnum árum um skotvopnaeign í Bandaríkjunum; hversu auðveldlega ungt fólk geti komist í skotvopn og misst algjörlega stjórn á sér; nægir þar að hugsa til fjöldamorðanna í bandarískum skólum. Við fengum smáskammt af þeim óhugnaði í Finnlandi fyrir nokkrum mánuðum.
Þetta eru sorglegar staðreyndir. Erfitt er að finna einhverja eina töfralausn. Ein þeirra er þó að endurskoða byssulög og herða viðurlög til muna en það er ekki ein gullin töfralausn, enda hefur sannast að sé nógu kaldrifjaður vilji að baki þess að gera slíkt og hugurinn að baki er brenglaður getur fátt stöðvað hann. En þegar að fimmtán ára unglingar geta framið slíkan verknað og hafa aðgang að vopnum er eðlilegt að spurningin sé hvað sé eiginlega að gerast. Hvar er samfélagið að bresta?
Ég hef alltaf verið talsmaður þess að herða lög um byssueign og setja ströng viðurlög í þeim efnum. Það á að vera grunnmál. En það er alveg ljóst að þessi veruleiki er sorglegri en orð fá lýst. En vonandi leggjast Bandaríkjamenn nú í alvöru pælingar um skotvopnavandann og hvað sé að gerast í þeirra samfélagi.
![]() |
Myrti foreldra og yngri bræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
3.2.2008 | 20:15
Manndrápsakstur í umferðinni
Enn og aftur berast fregnir af ökumönnum sem keyra um á manndrápshraða, keyra langt yfir hraðamörk og jafnvel í vímuástandi. Akstur á þeim hraða og var t.d. í þessu tilfelli á Reykjanesbrautinni flokkast ekki undir neitt annað en hreinan háska, enda eru í senn bæði ökumaðurinn og þeir sem hann mætir í lífshættu vegna þess. Hvað er fólk að hugsa þegar að það keyrir á slíkum hraða eða hvað fer í gegnum huga þess á meðan? Eða sennilega hugsar það auðvitað ekki neitt, þeysir bara áfram hugsunarlaust.
Ætla að vona að við séum ekki komin í biðferli eftir banaslysi, þar sem ökumaður á háskahraða drepur jafnvel fjölda fólks með hugsunarleysi sínu og gerræðislegum ákvörðunum. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni hversu alvarleg staðan er í umferðarmálum. Það er búið að tala vel og lengi um að úrbóta sé þörf - taka verði á þessum augljósa vanda. Það þarf að fara að gera eitthvað meira en bara tala. Það er auðvitað dapurlegt þegar að fólk tekur þá ákvörðun að geisast áfram á kolólöglegum hraða og jafnvel í vímu.
Þeir sem keyra svona bera ekki einu sinni virðingu fyrir sjálfu sér og hvað þá þeim sem það mætir á leið sinni. Þetta hefur gerst of oft á síðustu mánuðum. Þetta hlýtur að fara að leiða til þess að horft verði út fyrir orð okkar allra sem tölum fyrir því að fólk hugsi sitt ráð og fari ekki undir stýri í annarlegu ástandi. Akstur í vímu, annaðhvort að völdum áfengis eða eiturlyfja, er vaxandi vandamál sem kristallast æ meir með atvikum að undanförnu.
Í sjálfu sér tel ég þetta orðið eitt mesta vandamálið í umferðinni í dag. Það er engin trygging fyrir því þegar fólk sest undir stýri og heldur út í umferðina að það mæti ekki fólki undir áhrifum vímugjafa - út úr heiminum í sínu annarlega ástandi. Þetta er mikið áhyggjuefni sem full þörf er á að tala um með mjög áberandi hætti.
Ætla að vona að við séum ekki komin í biðferli eftir banaslysi, þar sem ökumaður á háskahraða drepur jafnvel fjölda fólks með hugsunarleysi sínu og gerræðislegum ákvörðunum. Það er auðvitað mikið áhyggjuefni hversu alvarleg staðan er í umferðarmálum. Það er búið að tala vel og lengi um að úrbóta sé þörf - taka verði á þessum augljósa vanda. Það þarf að fara að gera eitthvað meira en bara tala. Það er auðvitað dapurlegt þegar að fólk tekur þá ákvörðun að geisast áfram á kolólöglegum hraða og jafnvel í vímu.
Þeir sem keyra svona bera ekki einu sinni virðingu fyrir sjálfu sér og hvað þá þeim sem það mætir á leið sinni. Þetta hefur gerst of oft á síðustu mánuðum. Þetta hlýtur að fara að leiða til þess að horft verði út fyrir orð okkar allra sem tölum fyrir því að fólk hugsi sitt ráð og fari ekki undir stýri í annarlegu ástandi. Akstur í vímu, annaðhvort að völdum áfengis eða eiturlyfja, er vaxandi vandamál sem kristallast æ meir með atvikum að undanförnu.
Í sjálfu sér tel ég þetta orðið eitt mesta vandamálið í umferðinni í dag. Það er engin trygging fyrir því þegar fólk sest undir stýri og heldur út í umferðina að það mæti ekki fólki undir áhrifum vímugjafa - út úr heiminum í sínu annarlega ástandi. Þetta er mikið áhyggjuefni sem full þörf er á að tala um með mjög áberandi hætti.
![]() |
Hirtur á 150 km hraða á Reykjanesbrautinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.2.2008 | 19:40
Glansandi gott viðtal við Björn í Silfrinu

Það hefur alltaf mátt treysta því að hann hafi skoðanir og láti í sér heyra um hitamál samfélagsins, á meðan að sumir aðrir ráðherrar eru mun minna áberandi og halda sér einum of mikið til hlés. Hann hefur verið í stjórnmálum af lífi og sál eins og verk hans og netskrif sýna vel, en hann hefur haldið úti heimasíðu af meiri dugnaði en nokkur íslenskur stjórnmálamaður, en margir þeirra verða hreinir aumingjabloggarar þegar að kosningum og prófkjörum sleppir, sem betur fer er þeim þó að fjölga sem nota netið til að tala milliliðalaust til umbjóðenda sinna og landsmanna allra.
Það sem vakti mesta athygli mína er að Björn talaði fjarri því eins og hann sé að fara að hætta á næstu mánuðum. Þvert á móti var hann í stuði í dag, var ekkert að hika við að gagnrýna eitt og annað í borgarmálum og gerði upp við pólitíska andstæðinga, suma undir rós en aðrir fengu væn skot. Sú yfirlýsing sem mér fannst merkilegust, fyrir utan skýr svör um næstu skref Björns í stjórnmálum, snerist um Evrópumál en ég er sammála honum um að það muni hrikta í stoðum flokkanna ef Evrópumál verða sett á dagskrá af meiri þunga en nú er.
Ekki er útlit fyrir að almenn samstaða myndu vera til staðar í þeim um Evrópuáherslur, t.d. í Sjálfstæðisflokknum. Fannst reyndar vanta að Egill myndi spyrja Björn um skoðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, hvað varðar Evruuppgjör fyrirtækjanna og tengd mál. Varð ekki var við spurninguna og beið satt að segja eftir henni, en af orðum Björns að dæma er enginn Evrópuhugur í honum og skal engan undra. Það er engin sátt um að Evrópuvæða Sjálfstæðisflokkinn og verður ekki.
Það er orðinn mjög langur tími síðan að Björn hefur verið gestur Egils í Silfrinu. Telst til að hann hafi ekki farið til Egils í vel á þriðja ár, ef mig minnir rétt. Skot hafa verið milli þeirra á netinu og lífleg skoðanaskipti um hin og þessi mál. Það var gott að sjá Björn leiftra af fjöri og orðfimi í Silfrinu. Þetta var gott viðtal. Þeir sem hafa talið að Björn sé búinn að vera í pólitík hafa eflaust orðið fyrir vonbrigðum í dag með þetta góða viðtal.
![]() |
Björgunarsveitarmenn í varalið lögreglu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2008 | 14:51
Var Spaugstofan geðveikari en síðast?
Fannst þessi þáttur eiga ágætis móment vissulega en undir lokin fór þetta eiginlega einum of langt, varð svona kjánalega mikið rugl. Það er oft með Spaugstofuna að þeir skynja ekki hvenær að eitt efni hættir gjörsamlega að vera fyndið og fara að slá þær nótur að yfirkeyra annars ágætis gamanefni með endurtekningum sem þjóna engum tilgangi, gengisfella grínið svo að fólki finnst alveg nóg um. Gott dæmi var ósmekklegt grín að veikindum Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóra, og hnífabrandarinn margslitni. Bæði varð yfirgengilega slitið og ósmekklegt í sjálfu sér, þó kannski hafi mátt brosa út í annað í fyrsta sketsi.
Veit ekki hvort Spaugstofan hefur lært eitthvað á látum síðustu viku. Það var nefnilega ekki verið að gagnrýna neitt annað en siðferðisþröskuldinn í efni þeirra. Það er eitt að gera grín að einhverju en það er annað að draga það svo langt að fólki gjörsamlega ofbýður. Held að það hefði engum fundist grínið um Ólaf F. ósmekklegt fyrir viku nema vegna þess að það var endurtekið svo oft og yfirkeyrt að fólki fannst nóg komið. Skipti þar í sjálfu sér engu skoðun fólks á persónu Ólafs F. Magnússonar heldur að fólki fannst að svona ætti ekki að gera. Það er alveg óþarfi að kynda undir fordómum á geðsjúkdómum.
Gamansemi Spaugstofunnar fyrir viku keyrði yfir öll mörk. Það er kannski eðlilegt að Spaugstofan svari því með því að grínast með það. Þeir gerðu það líka þegar að þeir voru sakaðir um að draga Guð upp úr háði og vera klámhundar. Bæði málin voru mjög umdeild og kölluðu á harðari umræðu en þeir höfðu upplifað fram að því. Báðum málum var svarað í spéspegli helgina eftir ólguna. Því hlaut grín um geðsjúkdóma og geðpælingar í víðri merkingu að vera það sem myndi súmmera upp vikuna. Enda er þetta mesta gagnrýni sem þeir hafa orðið fyrir.
Fólki nefnilega misbauð og skiptir þá engu hversu lélegar eftiráskýringar Spaugstofumanna eru. Finnst samt þetta skemmtiprógramm orðið ansi þreytt. Spaugstofan hefði gott af því að fara að pása sig aðeins. Þreytan lekur af þessu grínkonsepti þeirra.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
3.2.2008 | 12:26
Britney algjörlega búin að missa það

Þetta hlýtur að vera alveg gjörsamlega skelfilegt líf sem hún lifir. Frægðin getur verið mjög dýrkeypt, ætli að Britney sé ekki að verða fyrsta flokks dæmi um það. Annars er það litla sem heitir orðið líf hjá Britney komið í rúst. Hún er búin að missa börnin vegna óreglu og á hraðferð til glötunar. Það er ekki beint hægt að segja að mikið sé eftir af frægri ímynd hennar sem saklausrar blondínu með englablæ - fátt eftir sem minnir á forna frægð, ef marka má misheppnaða endurkomuna fyrir nokkrum mánuðum sem var með því daprara sem sést hefur lengi.
Sumir bíða eftir að hún deyi. Þær fréttir bárust um daginn að allar helstu fréttastöðvarnar hefðu tilbúið æviágrip hennar ef hún myndi deyja svo að það yrði auðvelt að setja inn á vefsíðurnar. Ég man þegar að Britney var að byrja að ótrúleg ímynd saklausrar stelpu, allt að því hreinnar meyjar með tæra englaásýnd, var búin til fyrir hana. Sú ímynd var kostulega hjúpuð. Hún var undir þeim merkjum mjög lengi. Á tveim til þrem árum er ferill hennar fokinn út í veður og vind og hún er orðin eins og útlifuð tuskudúkka sem heldur aðeins áfram að steypast í glötun.
Britney virðist ekki lifa neinu skemmtilífi lengur, þó það sé reynt. Það er ekki fjarstæðukennt að telja að henni vanti stórlega hjálp frá glötun, þó frá öðrum en peningaplokkurum á borð við dr. Phil. Hún er á hraðri niðurleið og aðeins spurning hvenær að hún steypist endanlega í duftið. Þetta eru í senn skelfileg og nöpur örlög.
![]() |
Sakaði mömmu sína um að sænga hjá kærastanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)