10.3.2008 | 19:59
Drengurinn látinn
Ég vil votta fjölskyldu og vinum hins látna innilega samúð mína.
10.3.2008 | 19:49
Hrottalegur verknaður
Þetta er óeðlilega hátt hlutfall grimmdarverknaðar af þessu tagi, altént í því samfélagi sem við flest viljum lifa í. Það verður að berjast gegn þessu með öllum tiltækum hætti. Það er aldrei barist nógu mikið gegn svona ógeði.
![]() |
Fimm grunaðir um að hafa nauðgað stúlku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.3.2008 | 18:16
Sigríður Anna Þórðardóttir verður sendiherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, skipaði í dag Sigríði Önnu Þórðardóttur, fyrrum umhverfisráðherra og alþingismann Sjálfstæðisflokksins, sem sendiherra frá og með 1. júlí að telja. Miklar breytingar eru framundan á skipan sendiherra - einn mun láta af störfum á þessu ári en fimm til sjö á næsta ári, svo að bráðlega mun Ingibjörg Sólrún því skipa fjölda sendiherra í utanríkisþjónustunni.
Mér fannst eftirsjá af Sigríði Önnu sem ráðherra þegar að hún varð að víkja vegna hrókeringa í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þegar að Halldór Ásgrímsson gafst upp og hætti í íslenskum stjórnmálum, sagði sig frá embætti forsætisráðherra sem hann náði aldrei að ráða vel við. Þá ákvað Sjálfstæðisflokkurinn að sætta sig við að láta ráðuneyti af hendi til Framsóknarflokks, sem þá logaði í innri ólgu vegna hrókeringanna.
Sigríður Anna stóð sig vel sem umhverfisráðherra og fannst mörgum sjálfstæðismönnum það súrt þegar að hún varð að víkja fyrir Jónínu Bjartmarz. Hún ákvað í kjölfarið að hætta í stjórnmálum og gaf ekki kost á sér í síðustu alþingiskosningum. Með Sigríði Önnu eru skipaðir tveir nýjir sendiherrar; Gréta Gunnarsdóttir og Þórir Ibsen, sem verið hafa sviðsstjórar í utanríkisráðuneytinu.
Ekki eru þó sendiherrahrókeringarnar yfirstaðnar með því, en fyrirséð er eins og fyrr segir að allt að fimm nýjir sendiherrar verði skipaðir að auki af Ingibjörgu Sólrúnu innan árs.
10.3.2008 | 13:22
Einkabarn Ledgers arflaus í gamalli erfðaskrá
Miklar deilur hafa spunnist vegna erfðaskrár leikarans Heath Ledger, sem lést fyrir tæpum tveim mánuðum, eftir að ljóst var að hún var fimm ára gömul og því gerð áður en hann tók saman við Michelle Williams og eignaðist einkabarn sitt, Matildu Rose. Dóttirin er því arflaus og fær ekkert eftir föður sinn nema þá að afi hennar og amma, sem erfa allar eigur leikarans, ákveði að veita henni einhverja peninga.
Það hefur reyndar komið í ljós að Ledger lætur ekki eftir sig digra sjóði peninga og eigna. Hann dó ungur og áður en hann náði hátindi frægðar sinnar, sem var reyndar í sjónmáli þegar að hann dó með tækifærum sem fylgja stjörnurullum í góðum kvikmyndum. Eftir að hann var tilnefndur til óskarsverðlaunanna fyrir Brokeback Mountain tveim árum virtust honum allir vegir færir og þá fyrst öðlaðist hann virkilega stöðu í bransanum.
Það verður áhugavert að sjá hversu miklar deilur verði vegna þessarar erfðaskrár. Það er greinilegt að leikarinn hafði ekki ákveðið að breyta erfðaskrá sinni eftir að eignast barn - hefur væntanlega talið að nógur yrði tíminn til að ákveða þau mál. Hann var ungur og greinilega taldi ekki þörf á að lista upp hlutina að nýju. Eftir stendur því dóttirin arflaus í erfðaskrá sem er eldri en hún.
Efast varla um að Matilda Rose Ledger muni njóta ástúðar og frægðar þrátt fyrir að faðir hennar sé fallinn í valinn. Það er óvíst hvernig móðir hennar, sem sjálf er auðvitað fræg leikkona og þekkt fyrir sín verk eftir kvikmyndaleik og Dawson´s Creek hér forðum daga, taki þessum tíðindum og setji fram kröfur. Matilda Rose er orðin háð því að afi hennar og amma hugsi um hana þegar að talað er um föðurhlut hennar, auk þess sem móðir hennar mun ráða hennar málum í mörg ár í viðbót.
Það er jafnan svo að börn stjörnuleikara njóta allrar heimsins frægðar og peninga, þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu. Hlutskipti Matildu Rose Ledger er annað, þó varla sé þörf á að efast um að hún muni líða skort með fræga móður sína sem þekkta leikkonu og vonandi föðurfjölskyldu sem hugsar um hennar hag, þrátt fyrir að gamla erfðaskráin geri ekki ráð fyrir tilvist hennar.
![]() |
Dóttir Ledgers arflaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.3.2008 | 01:18
Leit að vísbendingum - Kompás með pólskum texta
Þetta mál hvílir sem mara yfir meðan að ekki er endanlega komið á hreint allar hliðar þess og spurningum svarað. Það var reyndar skelfilegt klúður að yfirvöld skyldu veita manni grunuðum um að keyra á drenginn leyfi til að fara úr landi, þegar að fyrir lá niðurstöður sýna sem gáfu til kynna að bíllinn sem hann keyrði á var sá hinn sami og keyrði á drenginn hinn örlagaríka dag.
Það er ekki hægt annað en að hafa samúð með aðstandendum drengsins sem þurfa að ganga í gegnum dimma dali við rannsókn þessa máls og það að sá hinn grunaði sé laus og hafi verið leyft að fara úr landi við þessar aðstæður og samræma vitnisburð sinn við þá sem voru handteknir með honum í upphafi.
En vonandi fæst spurningum málsins svarað og vonandi kemur eitthvað meira í viðbót fram eftir sýningu Kompásþáttarins með pólskum texta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)