21.3.2008 | 22:41
Hasar í Breiðholtinu á föstudeginum langa
Það er gott að lögreglan komst á sporið í þjófnaðarmálunum í Breiðholtinu. Það er sérstaklega við hæfi að hrósa manninum sem veitti sprautunálaræningjunum eftirför eftir ránið í dag og stóð sig vel - á stóran þátt í hversu vel tókst að ná þessum mönnum. Talaði áðan við einn vin minn sem býr í Breiðholtinu og heyrði ágætis lýsingar af þessu öllu.
Það hefur ekki vantað hasarinn þar. Íbúum þar hefur eflaust liðið eins og hverfið væri að breytast í Harlem síðustu dagana og gott að óvissan er að baki. Enda er það ekki þægileg tilhugsun að ræningjar gangi lausir sem beiti sprautunálum að vopni sem eiga að vera lifrarbólgusmitaðar.
Hugsa aðallega til þeirra sem vinna í þessum sjoppum og söluturnum, hafa varla vitað hvað gerðist næst. Og á sjálfum föstudeginum langa hafa mennirnir þrír verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Það gerist sem betur fer ekki á hverjum föstudeginum langa að svo mikill hasar sé eins og var í dag.
En maður dagsins er klárlega maðurinn sem elti ræningjana og stóð sig svo vel. Hann á stærsta þáttinn í hversu vel gekk að leysa þennan hluta málsins.
![]() |
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2008 | 18:55
Ábyrgðarleysi foreldra
Það heyrast reglulega sögur um að foreldrar reddi ólögráða börnum sínum áfengi og sígarettur áður en þau ná löglegum aldri til að kaupa það og ráða sér sjálf en mér finnst það hálfu verra þegar að foreldrar bregðast skyldu sinni í að ala upp börnin sín og láta svona nokkuð gerast eins og segir frá í þessari frétt um það sem gerðist í Bolungarvík.
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft og það er ekki til að auka trúverðugleika foreldra þegar að svona nokkuð klúður gerist og allt undir eftirliti foreldranna.
![]() |
15 ára ökumaður ók útaf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2008 | 18:15
Sorgarsaga í Kaupmannahöfn

Það hefur verið áhugavert að lesa dönsku fréttavefina eftir að þessi árás átti sér stað og einkum í dag, nú þegar að drengurinn er látinn. Það eru miklar tilfinningar í svona máli og ekki hægt annað en að hafa samúð með fjölskyldunni sem er í sárum í kjölfar svo skelfilegs verknaðar.
Það er nauðsynlegt að tala gegn svona mannvonsku. Þar sem að þetta gerist í Danmörku er ekki hægt annað en að hugsa sérstaklega um málið, því að þetta er svo nærri okkur en er samt svo óraunverulegt.
Það er full ástæða til að hugleiða mál af þessu tagi og vona í leiðinni að aldrei neitt þessu líkt gerist hér á Íslandi.
![]() |
Blaðburðardrengur myrtur í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 22.3.2008 kl. 03:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.3.2008 | 15:30
Dökku hliðarnar á samfélaginu
Sprautunálaránin í Breiðholti eru alvarlegt mál. Þar koma fram dökku hliðarnar á samfélaginu. Þegar að framin eru rán hérlendis með því að hóta að smita fólk af lifrarbólgu C er ekki hægt annað en verða hugsi. Það er eitt að verslanir séu rændar í borginni svo til í hverri viku en þarna er fetað nýja og óvægna slóð til að reyna að komast yfir peninga, sígarettur og allskonar smotterí.
Neyðin virðist svo mikil að öllum brögðum er beitt meðal annars að beita sprautunálum sem vopnum. Það er vonandi að lögreglan upplýsi þessi mál og farið sé yfir hvað sé að hjá þeim sem grípa til slíkra úrræða til að komast yfir nokkra þúsundkalla og smotterí í sjoppum. Eitt mál af þessu tagi er alvarlegt en þrjú eru augljóst merki um að eitthvað er stórlega að í samfélaginu.
Svona fréttir eru auðvitað alltaf napur vitnisburður þess hvernig samfélagið er orðið og er boðberi um dapurlega þróun mála.
![]() |
Þrír yfirheyrðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2008 | 11:40
Á föstudaginn langa

Eitt fallegasta kvæði Davíðs Stefánssonar er án vafa Á föstudaginn langa, sem margir kalla Ég kveiki á kertum mínum. Um er að ræða táknrænt og fallegt ljóð sem telst með því besta sem hann orti á löngum skáldferli sínum. Þetta ljóð snertir alltaf streng í hjartanu mínu. Það er við hæfi að líta á það á þessum helga degi.
Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.
Í gegnum móðu og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.
Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.
Ég bíð, uns birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð, sem lifir,
skal lúta krossins mynd.
Hann var og verður kysstur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur,
er krossins þögla mál.
Þú ert hinn góði gestur
og guð á meðal vor,
og sá er bróðir bestur,
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.
Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa grið.
Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.
Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.3.2008 | 00:48
Bergmál frá hellisbúanum Osama Bin Laden

Það eru ekki lengur tíðindi í sjálfu sér að ógeðið velli frá þessum hatursmanni sem elur á því að hræða fólk og valda ókyrrð. Hann lifir á því að kynda undir bálið og hræðsluáróðurinn er hans málflutningur. Það er greinilegt að við öll í Evrópu erum skotmark ekkert síður en risaveldin sem stóðu að Íraksstríðinu. Hann notar skopmyndamálið nú auðvitað sem tylliástæðu til að kynda undir gegn Evrópu allri og reyna að hræða okkur í skotgrafirnar.
Bin Laden fer víða í boðskap sínum. Hann gefur margt í skyn og kyndir undir með hatri sínu og skítkasti, einkum að því er virðist gegn Evrópu þessa dagana. Það er alveg ljóst að við lifum ekki lengur á hlutlausu svæði, svæði sem er utan við átakalínur nútímans, hryðjuverkaógnin vofir yfir okkur öllum. Það er ekki bara alið á hatrinu gegn stórveldum, heldur hinum smærri líka. Og við getum ekki annað en fordæmt það sem frá þessum manni kemur.
Þessi átök eru orðin miklu flóknari en svo að þar spili stórveldi gegn kolklikkuðum öfgamanni og samtökum hans. Þetta er barátta nútímans. Þar er öll heimsbyggðin undir - alið er á hatrinu gegn öllum sem voga sér að hafa aðrar skoðanir en þessi kolklikkaði hellisbúi einhversstaðar úti í buskanum. Hann þekkir ekki aðrar skoðanir en sínar eigin og fordæmir allar aðrar. Þessi hellisbúi er mesta meinsemd nútímans.
![]() |
Ný upptaka með bin Laden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)