Pólsk glæpagengi - ofbeldisfull páskahelgi

Það var fróðlegt að sjá fréttina um pólsku glæpagengin hér á Íslandi í kjölfar hinnar hrottalegu árásar í Breiðholtinu í gær. Pólskir bófar virðast kúga landa sína hér á Íslandi og var árásin í gær dæmi um vinnubrögðin, fólskulegt ofbeldið, sem virðist vera á milli pólverja hér. Það væri gott að vita hvað gekk á í þessu tilfelli, en greinilegt er að ofbeldið er mjög harkalegt og um að ræða harðsvíraðar glæpaklíkur.

Þessi páskahelgi hefur verið frekar ofbeldisfull, en um fátt hefur verið fjallað meira í fjölmiðlum en árásirnar í tveim húsum í Reykjavík auk sprautunálaránanna þriggja. Árásin í Breiðholti var sérlega ofbeldisfull og hrottalegur verknaðurinn lýsir sér best í því að barið var á mönnunum þar með öxum og kylfum. Sem betur fer náðust nokkrir af þessum ofbeldismönnum, en enn er þó leitað sex manna sem tóku þátt í þessari árás.

Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með netumræðunni um þetta mál. Það er greinilegt að margir velta því fyrir sér almennt hvort að innflytjendur séu ofbeldisfullt ógæfufólk og auðvitað er talað þar um þann fjölda alvarlegra afbrota sem tengist innflytjendum á síðustu mánuðum. Það er alveg rétt að fjöldi þeirra mála er allnokkur og því miður er þar ofbeldið mjög brútalt.

Skrifaði aðeins um þetta í gærkvöldi og fékk ágætisviðbrögð á það. Er ekki þeirrar skoðunar að við eigum að dæma alla innflytjendur af svörtu sauðunum. Það verður að taka á málum þeirra sem brjóta af sér en vara sig á því að dæma aðra sem hingað koma eftir þeim. En það er heiðarlegt og rétt að velta þessum málum fyrir sér og tjá sig um þau.

Það eru svartir sauðir í hópi innflytjenda eins og mörgum öðrum. Það er ekki hægt að neita því að ofbeldið um þessa helgi hefur farið yfir mörkin og hver hefur sína skoðun á því hvernig megi taka á þessum vanda og hver vandinn nákvæmlega sé.

mbl.is Pólsk glæpagengi herja á aðra Pólverja hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjur samfélagsins

Fátt reynir meira á styrk hverrar manneskju en að þurfa að berjast við grimm örlög og þurfa vegna veikinda sinna að vera vistuð á heilbrigðisstofnunum. Lífsbaráttan er sú sem er hverri manneskju mikilvægust og þá reynir á úr hverju fólk er gert. Sjálfur hef ég á ævi minni hitt fjölda fólks sem hefur lagt í erfiða veikindabaráttu og með aðdáunarverðum hætti sýnt úr hverju það er gert. Styrkst við hverja raun.

Ólöf Pétursdóttir er dæmi um hetju af þessu tagi. Það er dapurlegt að lesa um örlög hennar, en í þeim veikindum hefur styrkleiki hennar sést svo vel. Það eru þung örlög að vera dæmd til vistar í hjólastól og þurfa að læra að lifa lífinu með öðrum hætti og vita að hver andardráttur getur verið erfiður og hver áskorun verður svo mikil í þeim aðstæðum.

Sjálfur hef ég kynnst fólki sem hefur lent í veikindum af þessu tagi og aðdáunarvert að sjá hvernig það hefur endurbyggt sig og verið fyrirmynd annarra sem vita að lífið er ekki einn dans á rósum. Hugur minn er hjá öllum þeim sem þurfa að berjast við veikindi af þessu tagi. Þetta eru mestu hetjurnar.

Ég vil votta fjölskyldu Ólafar Pétursdóttur innilega samúð mína. Þar fer sannkölluð íslensk kjarnakona, langt um aldur fram.


mbl.is Ólöf Pétursdóttir látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páskakveðjur

Páskablóm Ég vil óska lesendum vefsins gleðilegrar páskahátíðar, og vona að þeir hafi haft það notalegt í dag og eins yfir helgina alla.

Þetta hefur verið alveg virkilega góður dagur hjá mér - hér er sól og blíða. Það fylgir dögum á borð við þennan að fara í messu, borða góðan mat og njóta þess besta með fínni afslöppun.

Það var notalegt að líta í páskaeggið sitt í morgun. Það kemur misjafnlega góð speki úr þeim, en að þessu sinni sást þar málshátturinn; Augun eru spegill sálarinnar.

Bloggfærslur 23. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband