29.3.2008 | 23:52
Gullfaxi fer til Akureyrar - ánægjuleg tíðindi

Það hefði vissulega verið enn betra ef þotan hefði verið keypt öll en það er var of dýrt til að hægt væri að leggja út í, þrátt fyrir það er þetta góð niðurstaða fyrir áhugamenn um sögu flugsins að það tókst að bjarga einhverjum hluta þotunnar, en við blasti að brytja ætti hana alla niður á næstunni í Nýju-Mexíkó.
Sagan er mikilvæg - það má vel vera að Gullfaxi sé kominn til ára sinna og þjóni ekki lengur lykilhlutverki í samgöngusögu landsins. En hann lék þar sögulega rullu og það er mikilvægt að bjarga þotunni frá því að verða brytjuð niður.
Það verður mikill hátíðisdagur á flugsafninu hér á Akureyri þann 24. júní nk. þegar að stjórnklefi Gullfaxa mun bætast í veglegt safnið.
![]() |
Gullfaxi verður á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.3.2008 | 21:57
Ránsalda í Breiðholti - ólánsfólkið í borginni
Það eru, því miður, ekki lengur stórtíðindi að ræningjar fari í verslanir á höfuðborgarsvæðinu í von um einhverja peninga - þetta er fjórða ránið í Breiðholtinu á örfáum dögum. Það vekur þó mesta athygli að ræningjarnir hylja ekki einu sinni andlit sitt við ránið og sé sama, svo fremi að þeir fái aðeins peninga.
Það sem er merkilegt líka er að vopnin sem ræningjarnir hafa í nýjustu ránunum eru fjarri því hefðbundin. Það verður seint sagt allavega að sprautunálar og garðklippur séu hefðbundin vopn. Það hefur ekkert verið gefið upp um ástæðu ránsins en þetta lítur þannig út hið minnsta að þarna fari ólánsmenn í leit að peningum, og gildi þá einu hversu mikið haft er upp úr krafsinu.
Það virðist vera sem að þarna sé um að ræða fólk sem vantar smá skotsilfur í vasann sem tekur þá ákvörðun að grípa til vopna og ráðast inn í næstu verslun til að reyna að fá sér einhvern pening. Þetta hefur verið svipað í fleiri ránum á síðustu mánuðum. Það hlýtur að vera orðin mikil örvænting hjá þeim sem fara inn í næstu verslun til að stela einhverjum seðlum og hylja ekki einu sinni andlit sitt í leiðinni. Í þessu grasklippuráni í Kaskó finnst mér aðallega standa eftir hversu mikið ólán þessara manna er.
Það virðist vera sem að ræningjunum sé orðið algjörlega sama um allt nema að það fái pening til að fjármagna neyslu sína eða almenna óreglu. Það er dapurleg þróun og mér finnst þessi rán öll sýna okkur vel hversu mikið ólán vofir yfir ungu fólki og það sé öllum ráðum beitt til að ná peningum. Ekki glæsilegt - en svona er víst Ísland í dag.
![]() |
Rændu búð með garðklippum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.3.2008 | 17:17
Hin óútreiknanlega Madonna

Fannst það reyndar skondið þegar að það kom fram fyrir nokkrum vikum að Madonna tæki kvíðaköst í hvert skipti áður en hún fer á svið og óttist jafnvel að deyja við að skemmta aðdáendum sínum, svo mikil sé paníkin innst inni. Madonna hefur verið þekkt fyrir að vera með ákveðnari stjörnum í sínum bransa og óhikað sýnt allt og verið áberandi við allt að því að glenna sig til að ná athygli fólks um allan heim.
Þeir sem muna eftir Madonnu í gegnum tíðina sjá ekki sviðshræddu stjörnuna, heldur þá sem hefur gaman af að stuða. Þegar að Madonna lék í Dick Tracy árið 1990 og átti í stuttu ástarsambandi við leikarann Warren Beatty, sem lék Tracy eins og flestir vita auðvitað, þótti hún vera á vissum hápunkti. Átti marga smelli undir lok níunda áratugarins og í byrjun þess tíunda - var líka djörf á því skeiði og ófeimin við að syngja fáklædd á sviði og opinbera allt hið heilagasta í einkalífi sínu og karakter.
Það er því svolítið sérstakt að Madonna skuli viðurkenna, nú þegar að hún er orðin fimmtug, að hún sé paníkeruð fyrir hverja framkomu og óttist um að geta jafnvel ekki klárað prógrammið. Það er margþekkt að stjörnur setji á sig vissa grímu, fari í annan karakter, til að klára prógrammið sitt og nái vissum hæðum í túlkun sinni í leik og söng með því að vera allt annar en innsti kjarninn ætti að sýna í sjálfu sér. Þetta er sérstaklega frægt hjá gamanleikurum.
En ímynd Madonnu, sem sést í þessari frásögn, er mörkuð af sviðsöruggustu manneskju bransans, sem þorir að gera allt og sýna allt til að halda í frægðina. En kannski er það eitt stórt skuespil til að fela innsta kjarnann og þann viðkvæmasta. Og kannski er þetta allt vænn dassi af ýkjum til að ná athygli fjölmiðla.
![]() |
Sprautaði Timberlake í rassinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.3.2008 | 00:21
Fallins félaga minnst - slys í minningarathöfn

Mér hefur fundist mjög virðingarvert að sjá hversu vel bifhjólamenn minnast félaga sinna. Það var sérlega eftirminnilegt þegar að Heiddi, Heiðar Jóhannsson, var kvaddur hér á Akureyri fyrir tæpum tveim árum, en hann lést langt um aldur fram í bifhjólaslysi.
Heiðursvörður þeirra var án vafa sá glæsilegasti í jarðarför hér á Akureyri til þessa, röð mótorhjóla eftir götum bæjarins. Þar sást vel hversu mikinn sess Heiddi hafði í sínum hópi og það hefur alltaf verið mikill samhugur hjá þeim þegar að félagar láta lífið. Það sést vel af athöfninni í kvöld. Það er virðingarvert og gott að sjá samstöðu þessa hóps.
![]() |
Árekstur við minningarathöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)