Mannleg grimmd dauðarefsinga

Susan Sarandon og Sean Penn í Dead Man Walking Ég hef alla tíð verið harður andstæðingur dauðarefsinga og jafnan fundist í þeim felast mesta mannlega grimmd sem til staðar er í tilverunni. Þetta er mikil grimmd og ég tel að við flest í hinum siðmenntaða heimi getum verið sammála um það. Dómur með dauða er engin lausn í sjálfu sér - er umdeildasta refsing sem til staðar er, fyrir utan aftökur stjórnvalda á fólki án dóms og laga sem eiga sér því miður stað víða í heiminum án þess að nokkur geri neitt í neinu.

Hef oft hugsað mikið um þetta réttlæti sem nokkur ríki Bandaríkjanna hafa valið sér, réttlæti að þeirra mati, sem felst í að binda enda á líf með þessum hætti. Dauðarefsingar hafa verið við lýði í mörgum ríkjum Bandaríkjanna og undir stjórn bæði demókrata og repúblikana. Mesta athygli hefur þetta vakið í suðurríkjunum. Þar hafa repúblikanar verið valdamiklir en demókratar ekki síður. Hefur ekki verið hægt að merkja neina breytingu á þessu þegar að demókratar hafa ráðið ferðinni í mörgum þessara ríkja. Oft hefur verið horft til Texas í þessum efnum. Þar voru demókratar á ríkisstjórastóli síst vinsamlegri en repúblikanar. Heilt yfir virðist hitinn í þessum málum ekki fara minnkandi þó komin sé 21. öldin og ákall um nýja tíma þar sem dauðarefsing er enn við lýði ekki svarað.

Mér finnst álitamál dauðarefsinganna sjaldan hafa verið tekin betur fyrir í kvikmynd en í Dead Man Walking, hinni ógleymanlegu mynd leikarans Tim Robbins. Þar segir af nunnunni Helen Prejean sem verður trúnaðarvinur Matthew Poncelet, fanga á dauðadeildinni, rétt áður en hann er líflátinn og baráttu hennar fyrir að honum verði hlíft. Susan Sarandon fékk óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun sína á nunnunni, hlutverk ferilsins án vafa, og Sean Penn var rafmagnaður sem Poncelet.

Þetta er heilsteypt mynd með boðskap sem á vel við, sem horfir á grimmdina frá öllum hliðum en svarar spurningunni um hver sé mesta grimmd slíkra örlaga. Þeir sem hafa ekki séð Dead Man Walking hafa misst af miklu og eru hvattir til að líta á hana. Mikilvægt er að vekja til umhugsunar um mannlegar hliðar allra mála, hversu dökkar sem þau virðast vera.

mbl.is Eitursprautur áfram leyfðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðaglaðir Íslendingar - allir að fara út í heim?

Airplane Greinilegt er á ásókn í flugmiðatilboðin að Íslendingar eru heldur betur í ferðahug - á leið út í heim með vorinu. Eftir kuldatíð í vetur, risjótt veður einkum á sunnanverðu landinu og kuldalegar efnahagspælingar er greinilegt að fólk vill skella sér burt, helst í sólina og breyta til. Er það ekki bara skiljanlegt? Held það.

Um páskana flykktust Íslendingar í sólarlandaferðir og voru allar ferðir vel ásetnar. Ætli veturinn hafi ekki bara farið svona í fólk? Sjálfur hef ég verið að velta fyrir mér að fara út í sumar og spái í góða sumarferð. En ekki lagði ég þó til í púkkið við að leggja síma- og tölvukerfið hjá Icelandair.

Ætli að utanlandsferðirnar verði ekki málið í sumar. Varla hljómar tilfinnanlega spennandi að fylla tankinn og keyra hringinn. Bensínið hækkaði í dag enn og aftur - hvað ætli sé hægt að komast langt frá Akureyri á fimmþúsund kalli. Athugun Stöðvar 2 um daginn sýndi að hægt var að keyra frá Reykjavík í Öxnadal þá á þeim pening.

mbl.is Gríðarleg ásókn í flugmiðatilboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílstjórar minna á sig - stutt í stóra stoppið?

Frá mótmælum Eftir að hafa sleppt mótmælum í viku minna atvinnubílstjórar nú enn og aftur á sig og sína baráttu, sem hefur orðið æ umdeildari eftir því sem frá hefur liðið, þó flestir séu hlynntir því að lækka eldsneytisverðið. Þeir eru greinilega hvergi nærri hættir baráttunni. Bílstjórarnir tóku sér pásu að ég tel meðvitað, enda sködduðust þeir frekar en styrktust á orðavali talsmannsins og aksturslag við mótmæli undir lok síðustu viku.

Orðrómur hefur verið uppi um að bílstjórar stefni jafnvel að stóra stoppinu umtalaða á næstunni. Ætli sér að lama höfuðborgarsvæðið með mótmælum, leggja bílum sínum og skilja þá eftir á aðalumferðaræðum borgarinnar. Eflaust telja þeir það næsta leik í stöðunni. Þó er þetta hik þeirra bæði merki um að þeir bíði eftir að samgönguráðherra tali þeirra máli í Brussel og hvort að fjármálaráðherra muni gera eitthvað. Þeir bíða og sjá til.

Stóra stoppið mun verða mjög umdeild, verði af því. Það eru einfaldlega það gríðarlega stór mótmæli að það myndi aðeins kalla á hörð viðbrögð almennings og reiðiöldu, frekar en stuðning. Finnst staðan vera mjög afgerandi í þessa átt, miðað við hvað er skrifað um þetta af almenningi og eftir því sem heyrist almennt. Þeir höfðu mikinn stuðning almennings fyrst en hann hefur dvínað mjög að undanförnu, að mestu vegna taktískra mistaka í mótmælunum.

Erfitt er að spá um hvert úthald bílstjóra er fari þeir í stóra stoppið og fái yfir sig reiðiöldu almennings, í meiri mæli en verið hefur. Þeir hafa þó gert mistök í mótmælunum og veikt stöðu sína, það blasir við öllum. Spurt er um hversu mikinn þunga þeir geti lagt í mótmælin í viðbót og hversu skaðlegt stóra stoppið verði fyrir þá.

mbl.is „Kyrrðarstund" við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot eða ekki brot

Margar spurningar standa eftir í hinu meinta nauðgunarmáli á skemmtistað í Reykjanesbæ. Ljóst er nú að ekkert verður gert í því þar sem aðalvitnið telur ekki hafa verið á sér brotið, þó hún hafi talið það fyrst á eftir. Enginn getur þó metið hvort brot fór fram nema stelpan, sem ætlar ekki að kæra.

Eðlilega beinist fókusinn að því nú hvað sautján ára stelpa var yfir höfuð að gera á þessum skemmtistað. Það er ekki ný saga að einstaklingar undir lögaldri reyni að fara á skemmtistaði, en þetta mál verður mjög sérstakt vegna einmitt aldurs stelpunnar.

mbl.is Ekki var brotið á stúlkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rassinn á Vilhjálmi prins afhjúpaður í The Sun

William GropeEfast er um dómgreind prinsanna Vilhjálms og Harry eftir að steggjaveisla, sem þeir skipulögðu fyrir frænda sinn, fór úr böndunum og myndir úr henni láku til blaðsins The Sun. Þar er meðal annars rassinn á Vilhjálmi afhjúpaður, er vinir hans ætluðu að taka niður um hann buxurnar í fylleríslátum fyrir framan alla viðstadda, en honum rétt tókst að halda buxunum uppi en myndir voru teknar af því og birtar í blöðunum ásamt fleirum miður heppilegum fyrir prinsana.

Lýsingarnar á steggjapartýinu eru ansi svæsnar og áhugaverðar. Þar vekur sérstaka athygli að konur í partýinu voru manaðar, af prinsunum, í að raða geisladiskum á geirvörturnar á sér. Sú sem vann það gat komið alls átta geisladiskum á. Auk þess eru sögur um að kærasti frænku prinsins hafi verið nakinn í rúmi með tveim stelpum og svona mætti lengi telja. Þvílík upptalning allavega. Enn einn áhugaverði skandallinn fyrir bresku konungsfjölskylduna.

Þegar að loksins var tekið að róast yfir konungsfjölskyldunni, vegna drykkjuláta Harrys prins, kemur þetta sem köld vatnsgusa yfir hirðina, og er einkum niðurlægjandi fyrir drottninguna og Karl Bretaprins væntanlega. Flestum er í fersku minni er Harry var myndaður með hakakrossinn á djamminu en það tók hirðina nokkurn tíma að reka það slyðruorð af Harry, sem honum tókst reyndar að bæta fyrir með mannúðarstarfi og förinni á vígvöllinn.

Skandalar hafa löngum þjakað konungsfjölskylduna. Nú er næsta kynslóð tekin við þeim pakka og greinilegt að verðandi konungur Englands hefur skaðað stöðu sína með þessu að einhverju leyti hið minnsta. Allavega hefur hann afhjúpað sig fyrir þjóð sinni með þeim hætti sem helst verður munað eftir, ekki vegna drykkjunnar sennilega heldur vegna þess að missa niðrum sig á almannafæri og fá mynd af sér í The Sun berrössuðum.

En ég bendi annars öllum á að lesa umfjöllunina um þetta villta steggjarpartý.

Bloggfærslur 16. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband