Eftirlaunalögin felld úr gildi - tímabær ákvörðun

Ingibjörg Sólrún og Geir H. HaardeMér líst vel á þá ákvörðun stjórnarflokkanna að fella eftirlaunalögin umdeildu úr gildi. Þau voru meingölluð frá fyrstu stundu og á þeim eru augljósir annmarkar sem hefði átt að taka af skarið með mun fyrr. Einn stærsti gallinn var að fyrrum ráðherrar gætu þegið eftirlaun á sama tíma og þeir væru á fullum starfslaunum hjá hinu opinbera.

Eftirlaunalögin voru samþykkt í pólitískum hita rétt fyrir jólin 2003. Fyrst stóðu þingmenn allra stjórnmálaflokka landsins að málinu sem flutningsmenn frumvarpsins í þinginu. Á örfáum dögum skipti stjórnarandstaðan meira og minna um kúrs og snerist við. Sérstaklega eru dramatískar og eftirminnilegar frásagnir af viðsnúningi innan Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi varaformaður flokksins, tók forystu gegn lögunum og vann þeim málstað fylgis á kvöldfundum í þinghúsinu og tók forystu málsins af Össuri Skarphéðinssyni.

Er yfir lauk studdi aðeins Guðmundur Árni Stefánsson, einn af varaforsetum Alþingis, málið af hálfu stjórnarandstöðunnar og fylgdi eftir hlutverki sínu við að leggja frumvarpið fram. Deilt hefur verið um málið alla tíð síðan. Samfylkingin talaði mjög afgerandi fyrir því að fella lögin úr gildi fyrir síðustu þingkosningar. Hefur fréttastofa Stöðvar 2 minnt á þá afstöðu Ingibjargar Sólrúnar og Samfylkingarinnar síðustu dagana æ ofan í æ í áberandi fréttaflutningi, sem hefur verið mjög umdeildur. Var Ingibjörg Sólrún greinilega ósatt við þá framsetningu fréttastofunnar.

Tvöfaldar launagreiðslur til ráðherra, sem fyrr eru nefndar, eru ekki hið eina sem er umdeilt við eftirlaunalögin. Allt frá því frumvarpið var rætt hefur mér fundist óeðlilegt að þingmenn njóti sérréttinda í lífeyrismálum og óviðunandi með hvaða hætti það var ákveðið. Starfskjör þingmanna eru að mínu mati orðin það góð að þeir ættu að geta náð vænum lífeyrisauka fyrir eftirlaunaárin sín með frjálsum lífeyrissparnaði. Engin sérréttindi eiga að vera þar.

Eitt annað sem ég man eftir og fannst sérstakt var að ákvæðum um þingfararkaup alþingismanna var breytt og tekin sú ákvörðun að greiða formönnum flokkanna 50% álag ofan á laun. Eru þetta atriði sem varla er hægt að sætta sig við, enda hefur samfélagið ekki tekið þessum lögum vel og kominn tími til að taka loksins á þessu.

Tel að þetta sé farsæl og góð ákvörðun - vonandi mun nást heildarsamstaða um þær ákvarðanir sem stjórnarflokkarnir virðast hafa orðið sammála um.


mbl.is Eftirlaunalög Alþingis verða felld úr gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veik staða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Mér finnst staða borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík mjög veik og tel að það hafi verið mikil pólitísk mistök að taka ekki af skarið um leiðtogasætið í vandræðunum í febrúar, þegar öllum var ljóst að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hafði hvorki styrk né stöðu til að vera áfram leiðtogi. Enda hefur hann verið mjög veiklulegur sem stjórnmálamaður síðan og varla leiðtogi í raun.

Mér finnst heiðarlega og vel skrifað um málefni borgarstjórnarflokksins í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í dag. Allir vita að eitthvað er stórlega að hjá flokknum í borginni. Þar vantar alvöru forystu og myndugleika. Ef ekki verður snúið við blaðinu á næstu mánuðum mun Sjálfstæðisflokkurinn í borginni verða fyrir þungu áfalli í borgarstjórnarkosningunum eftir tvö ár að mínu mati. Hópurinn verður aldrei sterkari en leiðtoginn, sé hann veikburða verður hópurinn það allur. Tel að þetta sé aðalvandamálið nú.

Stóra lausnin, og sú eina rétta, á þessum málum er að velja sem allra fyrst nýjan borgarstjóra í Reykjavík, sem tekur við af Ólafi F. Magnússyni í mars 2009. Óþarfi er að geyma það val lengi og mjög óheppilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa þau mál í lausu lofti lengur en fram á haustið, þó helst væri betra að taka af skarið helst í sumar með það. Með vali nýs forystumanns munu markast nýjar og skýrar línur í aðdraganda næstu kosninga og tekið af skarið með það sem tekur við.

Mikilvægt er að gefa nýjum leiðtoga góðan tíma til að vinna sig í sessi og því hefði þetta val átt að fara fram í febrúar. Þegar að vandræðin geisuðu vegna veikrar stöðu Vilhjálms Þ. í febrúarmánuði fannst mér hið eina rétta að hann myndi segja af sér leiðtogastöðunni en sæti áfram sem borgarfulltrúi. Það hefði verið rétti leikurinn þá, en mikilvægt er að ljúka þessum málum fljótlega.

Mikilvægt er fyrir Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu að öflugur leiðtogi taki við forystunni í borgarmálunum. Forystuleysið og vandræðgangurinn sem hefur verið áberandi mánuðum saman mun aðeins líða undir lok með skýrum línum og vali á eftirmanni Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.

mbl.is Ástandið veldur sjálfstæðismönnum áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt hjá Man Utd - 17. titillinn í höfn

Man Utd fagnar sigri Manchester United vann heldur betur traustan og glæsilegan sigur á Wigan í dag og náði með því sautjánda meistaratitlinum í sögu félagsins, nú eftir harða rimmu við Chelsea. Hef verið viss um það síðustu vikurnar að þetta væri í höfn. Ósigurinn fyrir Chelsea fyrir nokkrum vikum gerði þetta jafnara og meira spennandi en ella, andstæðingar liðsins töldu þá liðið búið að missa titilinn úr greipum sér en svo fór nú ekki.

Enda hefði það verið stílbrot ef leikmenn Manchester United hefðu sjálfir fært Chelsea meistaratitilinn. Til þess að vinna ekki titilinn hefðu þeir sjálfir þurft að klúðra og færa andstæðingunum hnossið mikla. Auðvitað var það ekki í stöðunni og sigurinn sætur í dag að sjálfsögðu fyrir þá fjölmörgu sem styðja Manchester United.

Chelsea og Manchester United eiga spennandi rimmu framundan í Moskvu eftir hálfan mánuð aftur, þá um bikarinn í Meistaradeildinni. Sá leikur verður sögulegur hvernig sem fer, enda eru þá bresk lið að berjast í úrslitaleiknum í fyrsta skiptið til þessa.

Sigurinn í dag og fögnuðurinn yfir þessum titli gerir það vonandi ekki að verkum að liðið sofni á verðinum í Moskvu. Glæsileg endalok yrðu það nú á keppnisárinu að hampa bikarnum volduga í Moskvu.

mbl.is Manchester United er enskur meistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar elska að dýrka og hata Eurovision

Gillz og Ceres 4 Allt snýst um Eurovision þessa dagana. Aðeins nokkrir dagar í undankeppnina þar sem Ísland reynir í fjórða skiptið í röð að komast áfram. Ekki get ég fundið að áhuginn sé minni og finnst ummæli Gillzeneggers um að þjóðin misskilji keppnina vera svolítið sérstök, svo ekki sé meira sagt.

Þátturinn þar sem Eurovision-lagið var valið varð vinsælasti sjónvarpsþáttur vetrarins og margir kusu í kosningunni um sigurlagið í febrúar. Þó að við höfum farið upp og niður í keppninni; hlotið sæti í topp tíu-hlutanum, fengið ekkert stig, orðið þrisvar í röð í 16. sæti eða mistekist að komast á úrslitakvöldið þrjú ár í röð er áhuginn ekkert minni.

Og allir hafa sínar skoðanir á því hvað Eurovision sé. Enda sást það vel af þeim lögum sem kepptu í keppninni heima, mjög ólík voru þau og enginn ekta Eurovision-keimur af þeim öllum svosem. Enda á að þora að gera eitthvað spennandi og prófa eitthvað nýtt. Gillz má nú ekki gleyma því að aðeins eru tvö ár síðan að við sendum Silvíu Nótt, karakterfígúru skapaða af góðri leikkonu og söngkonu, í keppnina og flippuðum vel út. Það flipp skilaði okkur ekki sæti á úrslitakvöldið.

Þannig að við höfðum prófað mjög margt í tilraunum okkar til að komast alla leið og þurfum ekkert að kvarta yfir því. Sennilega er Gillz bara sár yfir því að ná ekki að koma Merzedes Club til Serbíu. En val þjóðarinnar var afgerandi í febrúar. Eurobandið fékk helmingi fleiri atkvæði en þau og unnu heiðarlega og vel fyrir sínum farmiða. Og auðvitað eigum við öll að styðja okkar fólk.

Hef heyrt svo marga segja í gegnum árin að þeir fylgist nú ekki með Eurovision og hafi engan áhuga á þessu. Það er venjulegast fyrst að skjánum þegar að keppnin fer fram og fylgist með. Þarf svosem ekkert að skammast sín fyrir það. Tónlist er stór hluti af tilveru okkar og þetta keppnisform lifir í gegnum allar hremmingar okkar í keppninni fyrr og nú.

Við vorum mjög nálægt því að vinna keppnina fyrir tæpum áratug þegar að Selma Björnsdóttir söng All Out Of Luck, besta Eurovision-lag okkar fyrr og síðar. Höfum upplifað hæðir og lægðir í keppninni, flestir hafa gert það. Finnst ekkert aðalatriðið endilega að vinna. Finnst aðalatriðið að lagið okkar í ár komist í úrslitakeppnina. Hálfur sigur næst með því.

mbl.is Skilja ekki Júróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband