Hefner vill fá eina fimmtán ára á forsíðuna sína

Hugh Hefner og stelpurnar hans Held að fáir menn á níræðisaldri lifi skrautlegra lífi en glaumgosakóngurinn Hugh Hefner. Á gamals aldri er hann með samansafn ungra meyja á sérstöku setri, kenndu við Playboy-ritið margfræga, sér við hlið og hann vill alltaf yngri og glæsilegri gellur á forsíðu blaðsins síns og setrið. Nú vill hann fá Miley Cyrus, hina fimmtán ára Disney-mær úr Hannah Montana sem næstu forsíðugellu.

Ekki er hægt að segja að Hefner sé að segja eða gera eitthvað nýtt með þessu umdeilda boði til hinnar ungu og saklausu sjónvarpsstjörnu sem komst reyndar í fréttirnar um daginn fyrir umdeilda mynd í Vanity Fair sem gerði húsbændur hennar hjá Disney alveg snarkandi illa. En sennilega bliknar það í samanburðinum við þetta boð Hefner sem greinilega vill með því bæði stuða þá sem hafa haft horn í síðu hans og ennfremur vekja athygli á sér og sínum bissness.

Reyndar keppast yngismeyjar um að fara til hans á setrið og vera í blaðinu hans, misjafnlega frægar. Sá frétt af því um helgina að hin tæplega þrítuga Holly Madison, sem er víst aðalhúsfreyjan á Playboy-setrinu, sé að reyna allt til að fá hinn hálfníræða glaumgosa til að giftast sér en hann hafnar á þeirri forsendu að hjónaband sé partur af fortíðinni hans. Fröken Madison er víst tilbúin til að gera gamla karlinum allt til geðs til að verða frú Hefner og hljóta góðan bita af ríkidæminu sem hann hefur safnað að sér á ferlinum.

Sama er hversu Hefner verður gamall og slitinn, alltaf nær hann athygli út á líferni sitt og hann er ekki beint feiminn við sviðsljósið. Kyndir frekar undir eldinn gegn sér og er slétt sama um þá sem helst gagnrýna hann og Playboy-lífið á setrinu margfræga. Meðal annars hafa verið gerðir raunveruleikaþættir um lífið þar og hafa þeir ekki síður vakið athygli fyrir hversu lífsglatt gamalmenni Hefner er fyrir húsfreyjurnar sínar.

Ætli að Hefner deyji ekki ekki sæll og glaður á þessu setri? Allavega er nokkuð öruggt að öldruðum er búið þar áhyggjulaust ævikvöld.

mbl.is Hefner vill nektarmynd af Cyrus í Playboy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndarmál fortíðarinnar

Staðurinn þar sem beinin fundust Hef verið að fylgjast með umfjöllun bresku fréttamiðlanna á beinafundinum í Audenshaw í Englandi, þar sem jarðneskar leifar tveggja smábarna fundust í húsi gamallar konu eftir lát hennar. Þetta er eitt af þessum leyndarmálum fortíðarinnar sem þarna er að koma í ljós og vekur auðvitað mikla athygli fjölmiðla.

Einhver sorgleg saga hefur verið þarna að baki og mikilvægt að fá úr því skorið hvort gamla konan hafi verið móðir barnanna. Stærsta spurningin í bresku pressunni er reyndar hversu lengi lík barnanna hafi verið í húsinu. Einn sem rætt var við áðan giskaði á að það væri sennilega um eða yfir fjórir áratugir. Þetta er sérstakt mál og mikið í umfjöllun í bresku pressunni.

Áhugavert verður að sjá hver niðurstaða verður í rannsókninni, hver séu svörin við leyndarmálum gömlu konunnar í þessu húsi.


mbl.is Barnslík fundust í kassa á Englandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morðalda í London - þrettán unglingar myrtir

Jimmy Mizen Var að horfa á umfjöllun á SKY um morðið á unglingnum Jimmy Mizen í London um helgina, en hann er þrettándi unglingurinn sem myrtur er í borginni á þessu ári. Sorglegt er að heyra allar fréttirnar af þessum morðum og ekki er hægt annað en velta því fyrir sér hvað sé að gerast í bresku samfélagi. Á síðasta ári voru fjöldi unglinga myrtir líka, mest var sennilega fjallað um skotárás þar sem þrír unglingar létust í febrúar 2007.

Finnst alltaf jafn nöturlegt að heyra fréttir af þessum morðum á unglingum í London og ekki nema von að þar sé ein helsta spurningin hvað sé hægt að gera í stöðunni. Þeir á Sky hafa fjallað jafnan um þessi mál af ábyrgð og talað um allar hliðar þessara sorglegu morða og reynt að varpa ljósi á þá þætti sem mestu skipta. Þetta hefur sett þungan svartan blæ yfir allt mannlíf í borginni. Virðist fátt vera til ráða, blasir við að um uppsafnaðan vanda í samfélaginu sé að ræða.

David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur bent á að þessir atburðir endurspegli alvarlega bresti í bresku samfélagi. Telur hann hættulega framkomu, einmanaleika og þunglyndi ungmenna m.a. stafa af ábyrgðarleysi fullorðinna og mjög skorti á ást og umhyggju í samfélaginu. Vísa forystumenn Íhaldsflokksins óspart á það að upplausn í fjölskyldum og agaleysi sé alvarlegt vandamál og hafa vísað á nýlega skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þar eru bresk börn á botninum hvað snertir hamingju og ánægju í lífinu.

Þetta mál virðist erfitt fyrir Verkamannaflokkinn sem skiljanlega vill ekki staðfesta að alvarlegir brestir séu í bresku samfélagi. Eftir áratug við völd er varla við því að búast að bresk stjórnvöld taki undir það mat að breskt samfélag sé á botninum hvað þetta varðar. Það er ljóst að þarna er fyrst og fremst um að ræða samfélagsbresti og sumir vilja ekki greina þá.

Þetta eru dökkir dagar í London. Þetta var eitt þeirra mála sem Boris Johnson, borgarstjóri, nefndi mikið í kosningabaráttu sinni og hefur talað mikið um nú um helgina eftir að Jimmy Mizen var myrtur. Vonandi mun takast að stöðva þessa morðöldu í heimsborginni London.

mbl.is Myrtur eftir að hafa neitað að taka þátt í slagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband