19.5.2008 | 19:54
Sveðju-Plank framseldur til Póllands
Fulltrúi saksóknara í Póllandi segist hafa óyggjandi sannanir um sekt Planks í sveðjumorðinu margumtalaða. Þar er því haldið fram að Plank sé vægðarlaus sérfræðingur hjá glæpaklíku ytra og hafi verið leigumorðingi þeirra, alveg vægðarlaus hrotti. Það er greinilegt að þeir virðast hafa nokkuð traust mál á hendur honum.
Þetta mál með Plank minnir einna helst á atburðarás í svæsinni bandarískri glæpamynd. Þetta er ekki veruleiki sem ég tel að við viljum hér og það er afleitt ef Ísland er að breytast í einhvern griðastað fyrir erlent glæpafólk.
![]() |
Framsal á Pólverja staðfest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2008 | 16:29
Hversu góð er samviska þeirra sem stela?
Þjófnaður er ávallt alvarlegt mál og ánægjulegt ef hægt er að ná þeim sem stela, þó ekki sé það oft merkilegt. Reyndar er ótrúlegt alveg hvað sumir leggjast lágt í að stela og taka jafnvel eigur þeirra sem það er í heimsókn hjá og gera að sínu. Finnst það eiginlega alveg botninn á öllu, eins og lýst er í fréttinni með þessu.
Þjófnaðir eru ekki alltaf saklausir, það er t.d. sláandi að sjá hvað eru margir öryggisverðir á ferð í verslunum þar sem hnuplað hefur verið. Oft er stolið mjög litlu, en samt leggur fólk það á sig að taka eitthvað, enda skilst manni að mjög miklu sé á ársbasis stolið í verslunum. Fólki líður varla vel með slíkt á samviskunni.
Fyrir nokkrum mánuðum var fullyrt í fréttum að íslenskt starfsfólk hefði stolið hefði stolið sjálft helmingi þess sem er hnuplað í verslunum. Veit þó ekki hversu áreiðanlegar þessar mælingar eru, en þetta var mjög eftirminnileg frétt og þessi fullyrðing vakti mikla umræðu einmitt hér í netheimum á sínum tíma.
Hef svosem heyrt margar sögur af fólki sem leggur mikið á sig til að stela. Stundum kemst það upp sem betur fer, en aðrir komast upp með það og hafa sennilega ekki góða samvisku yfir því. Eða hver veit?
![]() |
Gesturinn stal farsíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 20.5.2008 kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2008 | 11:15
Regína Ósk og Frikki standa sig vel í Belgrad

Þau eru stórglæsilegir fulltrúar okkar í keppninni svo sannarlega. Með valinu á þeim í febrúar vorum við að taka ákvörðun um að senda sannkallað fagfólk í tónlistinni, þau þekkja líka keppnina inn og út, miklir aðdáendur sögu hennar og það er hiklaust mikill plús að vera með band sem er séræft í að taka öll gömlu góðu lög keppninnar með This is My Life sem rúsínuna í pylsuendanum. Bæði hafa þau beðið nokkra stund eftir því að fara og þau eru að blómstra þarna úti, getum verið stolt af þeim.
Þetta verður heldur betur vika Eurovision-nördanna. Stefnir í þrjú Eurovision-partý hjá landsmönnum, undanúrslitakeppnirnar eru á þriðjudag og fimmtudag (þegar að Frikki og Regína keppa) og svo auðvitað á laugardaginn þegar að úrslitakeppnin verður. Stóra markmiðið fyrir okkur er að komast á úrslitakvöldið. Allt annað er plús. Þori eins og er ekki að vonast eftir meiru en komast loksins upp úr þessari fjárans undankeppni sem við höfum dúsað í alltof lengi, þrjú ár í röð.
En nú er bara að fara að undirbúa sig fyrir Eurovision-viku dauðans. Eins og við vitum annars öll eru þeir fyrstir að sjónvarpinu sem segjast ekki fíla keppnina. Það verða allir orðnir Eurovision-nördar eftir þrjú Eurovision-partý.
![]() |
Eurobandið í sveiflu í Belgrad |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)