24.5.2008 | 17:34
18 ára Harry Potter-leikari myrtur í London
Á síðasta ári voru fjöldi unglinga myrtir líka, mest var sennilega fjallað um skotárás þar sem þrír unglingar létust í febrúar 2007. Stóra spurningin í London er hvað hægt sé að gera í stöðunni. Þeir á Sky hafa fjallað jafnan um þessi mál af ábyrgð og talað um allar hliðar þessara sorglegu morða og reynt að varpa ljósi á þá þætti sem mestu skipta. Þetta hefur sett þungan svartan blæ yfir allt mannlíf í borginni. Virðist fátt vera til ráða, blasir við að um uppsafnaðan vanda í samfélaginu sé að ræða.
David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur bent á að þessir atburðir endurspegli alvarlega bresti í bresku samfélagi. Telur hann hættulega framkomu, einmanaleika og þunglyndi ungmenna m.a. stafa af ábyrgðarleysi fullorðinna og mjög skorti á ást og umhyggju í samfélaginu. Vísa íhaldsmenn óspart á að upplausn í fjölskyldum og agaleysi sé alvarlegt vandamál og hafa vísað á skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, en bresk börn eru á botninum hvað snertir hamingju og ánægju í lífinu.
Þetta mál virðist erfitt fyrir Verkamannaflokkinn sem skiljanlega vill ekki staðfesta að alvarlegir brestir séu í bresku samfélagi. Eftir áratug við völd er varla við því að búast að bresk stjórnvöld taki undir það mat að breskt samfélag sé á botninum hvað þetta varðar. Það er ljóst að þarna er fyrst og fremst um að ræða samfélagsbresti og sumir vilja ekki greina þá.
Þetta eru dökkir dagar í London. Þetta var eitt þeirra mála sem Boris Johnson, borgarstjóri, nefndi mikið í kosningabaráttu sinni og hefur talað mikið um nú að undanförnu. Vonandi mun takast að stöðva þessa morðöldu í heimsborginni London.
![]() |
18 ára leikari stunginn til bana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2008 | 15:30
Charlotte mætir í nýjum kjól með nýtt lag og andlit

Eiginlega er það sláandi hvað sú Charlotte sem nú raular lagið Hero er ólík þeirri sem söng Take Me To Your Heaven í vínrauða dressinu forðum daga á meðan að við blótuðum henni í sand og ösku heima í stofu. Breytingin á henni er eiginlega sláandi. Hún er greinilega orðin andlit lýtaaðgerða.
Einn sem sá keppnina um daginn hélt reyndar að hún væri klæðskiptingur, enda vottar varla fyrir kvenlegum þokka í þessu andliti, miðað við það sem blasti við áhorfendum þegar að hún vann keppnina. Er engu líkara en andlitið hafi verið sett saman upp á nýtt.
Ætla rétt að vona að Charlotte vinni ekki keppnina í kvöld. Lagið hennar er ekkert spes og vindblásturinn er orðinn einum of þreyttur fyrir Svíana. Þetta er eins og blessunin hún Carola sem varla mátti taka lagið nema vera með vindinn í fangið.
Carola náði ekki að sigra keppnina þegar að hún ætlaði að eiga sér endurkomu fyrir tveim árum, eftir að hafa sigrað með Fangad av en Stormvind árið 1991. Ætla rétt að vona að hin sænska Charlotte nái ekki að landa öðrum sigrinum með nýja andlitinu sínu.
![]() |
Fegin að Dustin datt út" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.5.2008 | 13:31
Óheppileg ummæli Hillary um Bobby Kennedy
Enginn vafi leikur á því að Hillary Rodham Clinton urðu á mistök þegar að hún talaði sérstaklega um morðið á Bobby Kennedy, fyrrum dómsmálaráðherra Bandaríkjanna og öldungadeildarþingmanni, í júní 1968, sem sérstakt dæmi um atburði í langvinnum forkosningaslag. Þó mátti skilja tóninn er hún talaði um forkosningabarátturnar 1968 og 1992 en þetta var mjög óheppilega orðað og eðlilega biður hún afsökunar á þeim hluta, enda var morðið á Bobby mikill harmleikur.
Hillary hefur, eins og ég benti á í síðustu færslu, rétt fyrir sér með það að forkosningaslagir geta verið langvinnir og erfiðir. Demókratar hafa oft upplifað erfiðleika í valinu og það hefur dregist á langinn. Sjálfur líkti ég reyndar forkosningaslagnum nú og 1968 saman fyrir nokkrum vikum í skrifum hér, en það var auðvitað í ljósi þess hve flokkurinn var sundraður í valinu þá. Hið sama hefur stefnt í að undanförnu og stóra spurningin nú er reyndar hvernig muni ganga að sameina brotin, enda hafa tveir frambjóðendur sögulegra þáttaskila barist mánuðum saman og enn enginn náð útnefningunni í slagnum, þó öllu hafi verið beitt. En beint tal um morðið á Bobby er óheppilegt.
Hillary hefur hlotið lítinn stuðning frá Kennedy-fjölskyldunni í baráttu sinni fyrir því að verða fyrsta konan á forsetastóli. Ted Kennedy studdi Obama og í kjölfarið studdu systkinabörn hans; Caroline Kennedy Schlossberg, dóttir Kennedys forseta, og Maria Shriver, ríkisstjórafrú í Kaliforníu, hann. Börn Bobby Kennedy hafa þó skipst í fylkingar í þessum slag. Kathleen Kennedy Townsend, fyrrum vararíkisstjóri í Maryland, og Bobby Kennedy yngri hafa stutt Hillary á meðan Patrick Kennedy, fyrrum fulltrúadeildarþingmaður, og Rory Kennedy, sem var ófædd er faðir hennar var myrtur, fylgdu fordæmi Teddys frænda síns og studdu Obama. Eins og vel hefur komið fram hefur Ethel Kennedy, ekkja Bobbys, stutt Obama og það með þeim orðum að kraftur hans minni sig á kraftinn í Bobby.
Hillary hefur sögulegar tengingar við Bobby Kennedy í pólitísku starfi. Hún situr í öldungadeildarþingsætinu í New York sem hann sat í á sjöunda áratugnum, eftir að hann yfirgaf ríkisstjórnina eftir dauða bróður síns vegna ósættis við Johnson forseta og allt til dauðadags. Aðdáun Hillary á Bobby hefur alltaf komið vel fram en Hillary byrjaði að starfa í flokknum að mig minnir í forkosningaslagnum 1968, þá tvítug, og þekkir því aðstæður vel. Hún hefur alla tíð talað vel um Bobby Kennedy og pólitísk verk hans. Því átti hún að vita betur, enda eiga sorgleg örlög hans ekki að vera umræðuefni í þessum leðjuslag demókrata nú.
Vissulega er alltaf rétt að minnast Bobby Kennedy. Hann var einn traustasti forystumaður demókrata og var bæði mikill pólitískur hugsuður og framkvæmdamaður á mikilvægu skeiði flokksins við völd á sjöunda áratugnum. Bobby lék lykilhlutverk er bróðir hans var kjörinn forseti Bandaríkjanna árið 1960, varð dómsmálaráðherra í stjórn hans og var mjög umdeildur sem slíkur en um leið mjög áhrifamikill og stóð sig mjög vel, reyndar svo vel að ný bygging dómsmálaráðuneytisins sem byggð var í upphafi aldarinnar var kennd við hann. Hann var svo mjög traustur sem þingmaður fyrir New York á síðustu árum ævi sinnar.
Bobby Kennedy var í baráttu ævi sinnar þegar að hann dó. Forkosningaslagurinn 1968 var í senn sögulegur og harkalegur. Hann fór í slaginn eftir að Lyndon B. Johnson ákvað að gefa ekki kost á sér til endurkjörs vegna óvinsælda sinna í Víetnam-stríðinu og átti góða möguleika á að ná alla leið. Enginn veit hvort Bobby hefði náð forsetaembættinu ef hann hefði lifað, en barist var upp á hvern þingfulltrúa í þeirri sögulegu rimmu og náði það hámarki með óeirðunum á götum Chicago-borgar er flokksþingið fór fram.
Eðlilegt er að segja þá sögu. Hinsvegar á Hillary Rodham Clinton bæði að vera það reynd og mælsk að geta talað um aðstæður árið 1968 án þess að tala sérstaklega um sorgleg örlög baráttumannsins Bobby Kennedy, en morðið á honum í miðjum forkosningaslag er einn sorglegasti atburður í sögu bandarískra stjórnmála. Þar sem Hillary situr í þingsætinu hans Bobby Kennedy í New York átti hún að vita betur.
![]() |
Clinton biðst afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2008 | 01:04
Hillary ætlar að berjast á meðan að stætt er

Þetta er áhætta fyrir Hillary, vægast sagt, í þeirri stöðu sem blasir við. Obama er þegar búinn að segja pent og afgerandi að hann hafi náð markmiðinu, þó enn hafi hann ekki náð lágmarkinu, án Flórída og Michigan. Sögusagnir eru um að hann hafi þegar hafið leit að varaforsetaefni og horfi framyfir flokksþingið; til átaka við John McCain um forsetaembættið. Á meðan berst Hillary af krafti. Hún hefur unnið forkosningar að undanförnu þó flestir telji slaginn búinn og hefur sýnt að hún á sterka stuðningsmannasveit sem snýr ekki við henni baki í mótlætinu, þegar að flestir telja framboðið af.
Orðið tap hefur ekki verið til í orðabók Clinton-hjónanna og þau ætla greinilega að taka slaginn eins langt og hægt er. Með því geta þau bæði reynt að ná að sigra gegn öllum líkindum og um leið skaðað Barack Obama svo mjög að hann bakki frá forkosningaslagnum með því að bjóða henni varaforsetaútnefninguna. Með því að halda framboðinu áfram síðustu vikurnar hefur Hillary afhjúpað helstu veikleika Obama sem forsetaframbjóðanda. Kannanir sýna að hann á erfiðara með að ná lykilfylkjunum en Hillary og hann á erfitt með að ná til alþýðu flokksmanna. Niðurstöður síðustu forkosninga og kannanir sýna það vel.
Ef slagurinn stendur lengur en til 3. júní má búast við að stóra spurningin verði hvort Hillary og Obama geti sæst á sameinað framboð. Þau munu þurfa að ná sameiginlegum grunni í baráttunni fyrr en síðar eigi flokkurinn að fara sameinaður frá þessum forkosningum og inn í alvöru átök um Hvíta húsið, sem fyrr en síðar tekur við. Hillary ætlar greinilega að reyna að ná því sem hún getur í þessari stöðu og öllum er ljóst að fyrr en síðar mun Obama þurfa á henni að halda nái hann útnefningunni. Sá sem tapar getur náð áhrifum með því að spila sitt rétt.
Auðvitað er það rétt hjá Hillary að forsetaefni demókrata hafa oft verið valin í langvinnum forkosningaslag. Átökin um útnefninguna árið 1968 voru erfið fyrir Demókrataflokkinn. Bobby Kennedy var myrtur kvöldið sem hann vann forkosningarnar í Kaliforníu og við tóku átök innan flokksins um útnefninguna sem lauk með sögulegu flokksþingi í Chicago í Illinois. Hubert Humphrey vann útnefningaslaginn þar á gólfinu í miklum átökum á meðan að harðvítug átök geisuðu fyrir utan þingsalinn.
Og auðvitað vann Bill Clinton hnossið mikla eftir sögulegan slag þar sem hvert atkvæði skipti máli, rétt eins og nú. Ekki er langt síðan og þá var barist eftir sömu leikreglum og nú eru í gangi. Svo að Hillary hefur margt til síns máls og auðvitað er það rétt að enginn hefur enn náð útnefningunni. Flokkurinn er klofinn í valinu, það blasir við. Þó er ljóst að fyrr en síðar verður að ná endapunkti til að flokkurinn rústi ekki möguleikum sínum á forsetaembættinu á kosningaári sem fyrir löngu var metið þeirra.
Hillary ætlar sér ekki að gefast upp. Hún er eina konan sem hefur komist þetta nálægt því að komast í Hvíta húsið sem forseti Bandaríkjanna og ætlar að falla úr leik með bravúr frekar en gefast upp þegar að enn er möguleiki. Þetta er söguleg barátta og miðað við stöðuna núna hefur Hillary enn sóknarfæri, enda enn að vinna forkosningar. En oft er erfitt að vita hvenær hætta beri leik er hann hæst stendur.
![]() |
Clinton vísar til morðsins á Robert Kennedy |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |