25.6.2008 | 23:31
Magga Blöndal stýrir hátíðarhöldum um versló

Með því að fá nýtt fólk að borðinu, með góð tengsl og nýjar hugmyndir, má reyna að læra af mistökum síðustu ára hvað varðar hátíðarhöld um versló og gera enn betur. Margt gott hefur verið gert í vinnu síðustu ára og enginn vafi leikur á því að Akureyri hefur verið með eina öflugustu og sterkustu hátíðina um þessa helgi síðustu ár og þangað hefur fjöldi fólks komið. Deilt hefur þó verið um umgjörð hátíðarhaldanna af miklum krafti og sitt sýnist hverjum.
Enginn vafi leikur á því að ríflegur meirihluti bæjarbúa vill hátíðarhöld á Akureyri um verslunarmannahelgina. Það sýna kannanir - virða á þann afgerandi vilja bæjarbúa. Það form af hátíðarhöldum og verið hefur síðustu ár er þó fjarri því heilagt og hægt að gera marga og spennandi hluti í þeim efnum. Treysti Möggu Blöndal vel til að taka á því og stýra því af krafti og ábyrgð. Bæjaryfirvöld og þeir sem hafa verið lykilbakhjarlar hátíðarhaldanna reyna nú að finna nýtt upphaf - skapa nýja og vel heppnaða umgjörð að versló á Akureyri - vonandi tekst það vel.
![]() |
Margrét Blöndal stýrir verslunarmannahelginni á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2008 | 12:43
Eru bankarnir að fegra sjálfa sig í krísutíðinni?
Ekki er við því að búast að tíðindin um að bankarnir hafi hagnast um 80 milljarða króna vegna veikrar stöðu íslensku krónunnar styrki stöðu þeirra meðal almennings. Stóra spurningin er reyndar hvort bankarnir séu að fegra ársfjórðungsuppgjör sitt með gjaldeyrisviðskiptum. Varla mun það verða til að styrkja stöðu þeirra.
Almenningur í landinu fer brátt að finna vel fyrir vondri tíð, sannkallaðri krísutíð. Sumarið verður mörgum erfitt, en varla mun þó niðursveiflan koma endanlega fram fyrr en í haust. Flest bendir til að þá verði lendingin hörð og erfið, þegar eru merki um hvert stefnir og augljóst að hátt bensín- og matarverð eru fyrstu áþreifanlegu merkin um hvernig staðan sé fyrir fólkið í landinu. Fjöldauppsagnirnar hjá Icelandair eru því miður boðberi þess sem koma skal.
Þessar tölur og tíðindi um hvernig bankarnir styrkjast á falli krónunnar, styrkjast á því að eigur landsmanna og þeirra einkahagur fuðrar upp, er þeim ekki til vegsauka. Stóra spurningin verður hvernig bönkunum gangi að plumma sig í stöðunni og hvort ríkið muni verka þá upp eftir allt útrásarfylleríið síðustu árin, sem virðist hafa verið innistæðulausara en mörgum óraði fyrir.
![]() |
Bankarnir fá 80 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2008 | 01:18
Trúir virkilega einhver svona peningasvindli?
Varla líður sá mánuður, stundum enn skemmra jafnvel, að maður fái ekki einhvers konar svona skilaboð um peningasvindl í tölvupósti. Auðvitað hvarflar ekki að manni að taka mark á þessu rugli en vonandi eru aðrir orðnir meðvitaðir um að það er bara verið að hafa það að fífli. Þessi svikamylla með símaskilaboðum er þó nýtt, en vonandi fellur enginn fyrir þessu.
Skilaboðin eru giska einföld; föllum ekki flöt fyrir peningasvindlinu.
![]() |
Varað við SMS skilaboðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)