Hörkugóð kraftganga

Ég var að koma úr góðri kraftgöngu. Ekki hægt annað en að kalla hana því nafni. Beitt gönguferð í vel á þriðja tíma; hressilegt púl og kraftur í gegn. Það er rosalega gaman að gera þetta, get ekki annað sagt. Með þessu kúplar maður sig frá tölvu og öllum mögulegum hversdagspælingum og kemur öflugu róti á huga og hjarta.

Maður kemur endurnærður aftur heim. Þessar gönguferðir tryggja manni gott flæði í hausinn held ég. Það er svo notalegt að hugsa á þessum hraða og taka svona innri pælingar um hversdaginn og það sem er í gangi. Það er kalt hér hjá okkur; snjór yfir öllu og smákuldahrollur. Ekta vetrarstemmning.

Ég held að maður komi fullkomnari heim úr svona hressilegri útiveru. Þetta er gott á laugardegi finnst mér. Þetta er svona hálfgerður aukadagur hjá manni og mun betra að láta hann líða svona. Mikið er annars fallegt að standa hér á höfðanum við kirkjugarðinn og líta út fjörðinn. Fallegt!

Þetta er algjör eðall að mínu mati.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband