Tæpt mun það verða í Hafnarfirði

Fyrstu tölur Aðeins munar 50 atkvæðum á milli fylkinga stuðningsmanna og andstæðinga stækkunar Alcan í Straumsvík, andstæðingunum í vil í fyrstu tölum. Það stefnir í spennandi kvöld í Hafnarfirði og tæpan sigur þeirrar fylkingar sem mun sigra er á hólminn kemur.

Það var vitað að þetta yrði tæpt í Hafnarfirði, en varla svona rosalega tæpt að munaði um hvert atkvæði. Það verður væntanlega raunin. Þetta mun ráðast af fjölda utankjörfundaratkvæða en yfir 1000 atkvæði voru greidd fyrir daginn í dag. Sá stabbi verður örlagaríkur í þessu máli.

Það er mikilvægt, þó naumt verði á fylkingunum, að vilji Hafnfirðinga standi á hvorn veginn sem fer að mínu mati.

mbl.is Fylkingar nánast jafnar samkvæmt fyrstu tölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HVER ER ÞINN VILJI ef hægra heilahvelið vill eitt en það vinstra "eitthvað annað" og mun skynsamlegra fyrir landið og þjóðina?

Steini Briem (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 21:28

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Bæjarstjórinn í Hafnarfirði lýsti aldrei yfir sinni afstöðu til málsins og ég sé ekki að ég maður norður í landi þurfi að taka frekar opinbera afstöðu til málsins en hann.

Stefán Friðrik Stefánsson, 31.3.2007 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband