Fjarar mjög hratt núna undan Ehud Olmert

Ehud Olmert Það voru gríðarlega mikil mistök hjá Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, að segja ekki af sér meðan að stætt var eftir hina svörtu skýrslu um stríðið í Líbanon sem var gríðarlegt kjaftshögg fyrir forsætisráðherrann. Örlög Olmerts eru ráðin. Hann mun fara frá með skömm. Stuðningur við hann er að hrynja innanfrá og pólitísk endalok hans verða blóðug og það væntanlega á næstu dögum, enda er honum ekki sætt í stöðunni.

Ég fjallaði um málið á mánudag í ítarlegum pistli. Það er merkilegt að lesa þau skrif miðað við stöðuna núna. Drottnandi staða Olmerts er að hrynja innan Kadima, flokksins sem hann erfði er Ariel Sharon hvarf vegna veikinda af hinu pólitíska sviði. Það blasir við öllum að Kadima er að detta uppfyrir vegna dauðadæmdrar pólitískrar stöðu forsætisráðherrans. Enda eru lykilmenn innan flokksins byrjaðir að standa vörð um framtíð flokksins, láta ekki Olmert ganga frá pólitísku hugarfóstri Sharons, og grafa nú undan Olmert. Pólitísk endalok eru klárlega framundan fyrir forsætisráðherrann.

Ég spái því að Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, verði orðin leiðtogi Kadima og forsætisráðherra innan skamms. En eftir því sem Olmert dregur að segja af sér því líklegra er að Kadima deyji og verði ekki stætt til eins né neins. En ég held að hann verði sleginn af innan frá. Það verða blóðug endalok fyrir þennan reynda stjórnmálamann en þau eru orðin algjörlega óhjákvæmileg.

mbl.is Flokksmaður Olmerts fer fram á afsögn hans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband