Fest sér kenninafn hjá "málgagninu"

Ég ákvað að taka frá bloggnafnið mitt hér á Moggavefnum til að eiga í handraðanum. Það skaðar ekki að geta hallað sér að "málgagninu" ef maður ákveður að stokka eitthvað upp. Hef bloggað hjá blogger núna samfellt í fjögur ár, nær eitthvað á hverjum degi, og hef verið að hugsa um að breyta til. Ég er reyndar íhaldssamari en flest annað, svo að það á ekki við mig um að flakka mikið á milli. Brosandi

En ég á þá allavega þetta kenninafn mitt hér núna og er sáttur við það að eiga það til staðar. Ég mun fyrst í stað allavega blogga áfram á stebbifr.blogspot.com. Þið getið litið á skrifin þar, það er alltaf nóg af góðum pælingum þar sem ég skrifa.

með bestu kveðju
Stefán Friðrik


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband