Vondar fregnir af Guðjóni Val

Guðjón ValurÞað er mjög vont að heyra þær fregnir að einn af okkar bestu handboltamönnum, Guðjón Valur Sigurðsson, íþróttamaður ársins 2006, sé úr leik næstu mánuðina vegna meiðsla. Hann er mikilvægur hlekkur í landsliðinu og hefur verið okkar öflugasti og traustasti maður á mikilvægum stundum.

Sérstaklega ber þar að minnast Heimsmeistaramótsins í handbolta í ársbyrjun þar sem hann var einn bestu manna mótsins og þeirra markahæstur. Vonandi mun Guðjón Valur ná sér fljótt og vel af þessum meiðslum og mæta öflugur til leiks á EM í Noregi eftir áramótin.

Hann er mikilvægur hluti landsliðsins og varla verðum við öll glöð með stöðuna fyrr en við vitum að hann komist hress á mótið og í leikhæfu ástandi. Sendi mínar bestu kveðjur til hans með óskum um góðan bata.


mbl.is Guðjón Valur fer í aðgerð á öxl á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband