Kalifornía brennur - skelfilegar náttúruhamfarir

Skógareldarnir í KaliforníuÞað er alveg sláandi að fylgjast með fréttum af skógareldunum í Kaliforníu og sjá stöðu mála þar. Fylkið er lamað vegna þessara mestu náttúruhamfara áratugum saman og það er skelfilegt að fylgjast með húsum brenna, fólki á flótta og eyðileggingu sem blasir við. Ekki er við neitt ráðið og umfang eldanna aukast sífellt. Þetta minnir einna helst á þá skelfingu sem við blasti í skógareldunum í Grikklandi fyrir nokkrum vikum og ljóst að erfitt uppbyggingarstarf tekur við á þessum slóðum.

Horfði lengi á fréttastöðvarnar í kvöld og leit á umfjöllun um málið. Þar var talað við fræga fólkið í Kaliforníu, almenning og þá sem eru að reyna að ná stjórn á þessum skelfilegu eldum. Það er viss upplifun að fylgjast með þessu, enn betra er að heyra umfjöllun um málið frá Íslendingum á svæðinu, t.d. frá Steinunni Ólínu sem hefur komið með góðar lýsingar á stöðu mála.

Það verður áhugavert að fylgjast með fréttum næstu dagana frá Kaliforníu. Fylkið brennur og þetta eru hamfarir af svipaðri stærðargráðu og er fellibylurinn Katrín gekk yfir, en með öðrum formerkjum. Það er vonandi að stjórnvöld nái að halda betur utan um þetta skelfilega mál en það hið fyrra.


mbl.is Steinunn Ólína: San Diego lömuð vegna skógareldanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þetta er orðið alltof oft þarna,þetta verður hætta að rækta þarna skóg,engin önnur lausn,/Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 24.10.2007 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband