Gullslegnir farsímar vekja mikla lukku

Sirocco Gold-farsímiÞað virðist ekki vera mikil fátækt í landinu ef marka má mikla sölu á gullslegnum farsímum sem kosta um 170 þúsund krónur. Nema þá að til séu tvær stéttir fólks kannski, allavega getur varla verið að allir hafi efni á að eiga tvö til þrjú svona stykki eins og segir í fréttinni. Kannski er standardinn í samfélaginu orðinn svo háleitur að annaðhvort kaupirðu það flottasta eða sleppir því að hugsa um það.

Það er allavega greinilegt að margir láta sig hafa það að eyða svona fúlgu í símann sinn. Ég hef átt farsíma í rúman áratug, en ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei keypt rándýra farsíma, en skipti jafnan um annað hvert ár hið minnsta. Finnst það svolítið of mikið í lagt að borga um 200 þúsund krónur fyrir símann. En þetta virðist vera tískan. Ætli að þetta verði kannski stærsta jólagjöfin í ár, að hjón borgi á fjórða hundrað þúsund í síma handa hvoru öðru. Má vera. Þetta hlýtur allavega að vekja spurningar um velsældina í samfélaginu.

Það getur varla verið að fólk sé á flæðiskeri statt sem leggur í þannig kaup. Standardinn í samfélaginu er að verða svolítið þannig að fólk er grande á hlutunum, hefur einfaldan smekk og velur aðeins það besta, eins og Páll Magnússon sagði forðum.


mbl.is Íslenskir auðmenn tala í 170 þúsund króna gullsíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Það er alveg öruggt mál að öryrkjar tala ekki í svona síma, sem kosta töluvert mikið meira en lífeyrir þeirra  nemur á mánuði.

Minni á UNDIRSKRIFTALISTANN !!! 

Greta Björg Úlfsdóttir, 24.10.2007 kl. 15:02

2 Smámynd: Auðbergur Daníel Gíslason

Ég sé ekkert athugavert við að sumt fólk eigi svona síma, raunar samgleðst ég þeim. Af myndinni að dæma virðist þetta ver Nokia gaman hefði verið að eignast einn svona frá Sony Ericsson.

Mér finnst þetta ekki vera vettvangur fyrir undirskriftasöfnun af þessu tagi enda er þetta þannig að flestir skrifa undir án þess að pæla í þessu enda bara ekkert annað að gera en "klikka" á stikuna.

Auðbergur D. Gíslason

14 ára Sjálfstæðismaður

Auðbergur Daníel Gíslason, 24.10.2007 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband