Mun ákvörðun LV flýta fyrir álveri við Húsavík?

Ákvörðun Landsvirkjunar í dag um að ganga ekki til viðræðna um raforkusölu við fyrirtæki sem stefna á álversbyggingu á Suður- og Vesturlandi eru góð tíðindi fyrir okkur sem höfum talað fyrir álveri á Bakka við Húsavík. Það er skiljanlegt að Alcan sé ekki sátt við stöðuna og Rannveig Rist sé vonsvikin yfir þessu. En við hér fyrir norðan hljótum að sjá tækifæri í þessu.

Húsvíkingar, vinir mínir, vonuðu langflestir að Hafnfirðingar felldu stækkun álversins í Straumsvík fyrr á árinu af skiljanlegum ástæðum. Kannski má segja að Húsvíkingar og nærsveitamenn mínir í Þingeyjarsýslum sem styðja álver við Bakka gleðjist mest yfir ákvörðun Landsvirkjunar. Það hlýtur að fara svo að þessi ákvörðun Landsvirkjunar styðji stöðu Húsavíkur sem stóriðjukosts.

Það er oft sagt að eins dauði sé annars brauð. Þeir á Húsavík munu sækjast eftir því að nýta tækifærin sem koma til staðar með þessu. Það hefur sést vel á fréttum að staðan fyrir austan er erfið, byggðinni blæðir út. Þar þarf ný tækifæri - það þarf að vinna vel nú við að tryggja að þau verði að veruleika.


mbl.is Rannveig Rist: Ákvörðun Landsvirkjunar vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar viltu svo virkunina? og hvar ætlar þú að fá starfsfólk við reka þetta batterý?

Magnús Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 01:08

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

"Það hefur sést vel á fréttum að staðan fyrir austan er erfið, byggðinni blæðir út." Já, það hefði sennilega verið betra að eyða 1000 milljörðunum í að byggja upp atvinnu á öllu austurlandi. Nú höfum við bara fokdýran drullupoll og störf fyrir nokkra pólverja á Reyðarfirði.

Það er ekki til orka fyrir álver í öllum bæjarfélögum landsins. Álver er ekki það eina sem getur komið í veg fyrir hungurdauða landsbyggðarinnar. Reyndar efast ég um að álver séu góð til þess, samanber setninguna sem ég vitnaði í að ofan.

Villi Asgeirsson, 10.11.2007 kl. 05:10

3 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Magnús: Ég vil auðvitað virkja við Þeistarreykja. Það hefur margoft verið talað um virkjun jarðvarma Þingeyinga og það á að horfa til þess. Það er mikið talað um veikar byggðir fyrir austan. Við því þarf að bregðast. Hef ekki heyrt betri tillögur í þeim efnum en þessar. Það þarf að bregðast við. Íbúar kalla eftir einhverju öflugu og ég tel að það að virkja jarðvarmann og horfa til þess að reisa álver þarna geti markað nýtt upphaf. En það þarf að láta á það reyna og taka umræðuna um það, alveg hiklaust. Kannski væri gott að hafa íbúakosningu í Þingeyjasveit og Norðurþingi um þessi mál, fá fram vilja fólksins á svæðinu.

Villi: Það þarf klárlega að styrkja þingeyskar byggðir. Það er grunnstefið í fréttum Björns Þorlákssonar þaðan síðustu dagana á Stöð 2. Í þeim efnum dugar ekkert nema alvöru málflutningur og tillögur sem eftir er tekið.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 10.11.2007 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband