27.12.2004 | 02:31
Engin fyrirsögn

Ég vona ađ lesendur vefsins hafi haft ţađ gott yfir jólin og hafi notiđ hátíđarinnar. Jólin hjá mér voru mjög hefđbundin og ađ mestu mjög lík ţví sem hefur veriđ í gegnum árin. Eins og vel hefur komiđ fram í fréttum var stórhríđ og gekk á međ miklum snjóbyl á ađfangadag og jóladag hér norđanlands, og ţví var lítiđ ferđaveđur ţessa daga og mikil ófćrđ eftir ţví sem leiđ á, áđur en veđrinu slotađi hér í gćr. Ţrátt fyrir ţennan veđurofsa og kuldann í veđrinu var haldiđ í fastar hefđir ađfangadagsins hjá minni fjölskyldu. Á ađfangadag var ţrátt fyrir leiđindaveđur fariđ í kirkjugarđinn til ađ vitja leiđa látinna ćttingja og ástvina og fariđ á eftir í kaffi til ömmu minnar. Ţetta er hefđ sem hefur veriđ í minni föđurfjölskyldu til fjölda ára og er fastur partur af ađfangadeginum. Kuldatíđ og vont veđur geta ekki komiđ í veg fyrir ađ fariđ sé í kirkjugarđinn til ađ vitja leiđa ţeirra sem hafa kvatt ţessa jarđvist, enda mikilvćgt ađ helga ţeim hluta af hugsunum sínum. Ţetta hefur alla tíđ veriđ mikilvćgt hjá okkur í fjölskyldunni. Ég get ekki haldiđ gleđileg jól nema ađ hafa sinnt ţessu.
Um kvöldiđ eftir ađ hafa borđan góđan mat og tekiđ upp pakka og lesiđ ţau fjölmörgu jólakort sem mér bárust var fariđ í miđnćturmessu í Akureyrarkirkju, kirkjuna mína. Sr. Jóna Lísa Ţorsteinsdóttir predikađi. Hymnodia, kammerkór Akureyrarkirkju, söng undir stjórn Eyţórs Inga Jónssonar organista. Ég hef ávallt fariđ í kirkju á jólum. Ţađ er ađ mínu mati nauđsynlegt ađ fara í messu og eiga ţar notalega stund. Ađfangadagskvöld og upphaf jólanćtur er sú stund um jól sem ég tel helgasta. Ţví er réttast ađ fara í messu ţá. Vetrarveđriđ breytti ekki heldur ţessari hefđ og ţrátt fyrir kuldann og vont veđur mćtti nokkur fjöldi í kirkjuna og átti ţar góđa stund. Eftir athöfnina var haldiđ heim í Ţórunnarstrćti og var ţá fćrđ um bćinn tekin nokkuđ ađ ţyngjast. Ađ morgni jóladags var ađ mestu orđiđ ófćrt í bćnum eftir vont veđur um nóttina. Ekki var ţó mikill snjór í bćnum, en veđurhćđin var mikil og ţađ rak ţví í skafla og safnađist í snjóakistur. Aflýsa ţurfti hátíđarmessum í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju á jóladag. Stórhríđinni slotađi eftir hádegiđ á jóladag og fallegt jólaveđur tók loks viđ. Mokađar voru ţá helstu umferđargötur bćjarins. Ţessa daga var ţví bara haft ţađ rólegt, notiđ kyrrđar hátíđarinnar og slappađ af.

Í síđasta sunnudagspistli ársins 2004 sem birtist á vef mínum í gćr, annan dag jóla, fjallađi ég um jólahátíđina, hér á Akureyri, og fór ennfremur yfir ţćr bćkur sem ég hef litiđ í yfir hátíđirnar. Hef ég gegnum tíđina haft mikla ánćgju af lestri góđra bóka. Fékk ég fjölmargar góđar bćkur í jólagjöf, bćđi ćvisögur og skáldsögur. Söluhćsta bókin fyrir ţessi jól var Kleifarvatn, eftir meistara íslenskra spennusagna, Arnald Indriđason. Seldist hún í metupplagi en rúmlega 23.000 eintök höfđu selst af bókinni skömmu fyrir jól. Las ég bókina nokkru fyrir jól og varđ heillađur af henni. Ţetta er svo sannarlega spennusagnabók á heimsmćlikvarđa, ađ mínu mati er ţetta besta bók Arnaldar. Ánćgjulegt er ađ Arnaldur hefur nú loks hlotiđ tilnefningu til Íslensku bókmenntaverđlaunanna. Hefur hann veriđ sniđgenginn seinustu ár, ţrátt fyrir hvert meistaraverkiđ á eftir öđru. Nú er loks komiđ ađ ţví ađ hann fái tilnefningu og vona ég ađ hann fái verđlaunin, enda hiklaust um ađ rćđa skáldsögu ársins. Í jólagjöf fékk ég tvćr stórar og miklar ćvisögur nóbelsskáldsins Halldórs Kiljans Laxness. Eru bćđi ritin einkar vönduđ og vel úr garđi gerđ og mikil vinna greinilega veriđ lögđ í ţćr.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Halldór Guđmundsson eiga mikiđ hrós skiliđ fyrir góđ efnistök og áhugaverđ í bókum sínum um skáldiđ. Kiljan, bók Hannesar Hólmsteins, er virkilega skemmtileg lesning og var mjög gaman ađ sökkva sér í hana ađ morgni jóladags og lesa hana ađ mestu leyti á jóladeginum. Hannes dregur í umfjöllun sinni saman mikinn og góđan fróđleik um skáldiđ. Bókin er heilsteyptari og ítarlegri en fyrsta bókin, sem fjallađi um bernskuár skáldsins og mótunarár hans, en hún var vissulega einnig mjög vönduđ og umfangsmikil. Er ţađ helst vegna ţess ađ fjallađ er um mikil hitamál á ferli skáldsins og mikinn umbrotatíma stjórnmálalega sem Halldór tengdist og Hannes býr yfir umtalsverđri ţekkingu á. Bókin spannar 16 ár, sem er vissulega ekki langt tímabil á tćplega aldarćviskeiđi skáldsins, en ţessi ár voru stór og mikil á ferli Laxness og er hrein unun ađ sitja og lesa bókina og fara yfir allan ţann fróđleik sem Hannes hefur tekiđ saman. Ţessi bók er óneitanlega paradís fyrir ţá sem unna sögunni, verkum Laxness og vandađri frásögn.
Allt rennur ţetta ljúflega saman og fullyrđi ég ađ ţetta er ein vandađasta, ítarlegasta og áhugaverđasta ćvisaga sem ég hef lesiđ og bíđ ég ţví mjög spenntur nćstu jóla og útgáfu ţriđja og seinasta hlutans sem mun fjalla um seinustu 50 ćviár skáldsins, frćgđarárin hans mestu, 1948-1998. Hef ég nú hafiđ lestur á riti Halldórs Guđmundssonar um skáldiđ. Er frásögn hans mjög skemmtileg og fariđ á heillandi hátt yfir ćviferil Halldórs, hefur bókin hlotiđ verđskuldađa tilnefningu til íslensku bókmenntaverđlaunanna og mun ađ öllum líkindum hljóta verđlaunin í sínum flokki. Halldór hefur í gegnum tíđina stúderađ mjög ritferil og ćvi nafna síns og gerđi um hann ţrjá vandađa heimildarţćtti fyrir Ríkissjónvarpiđ sem sýndir voru í kjölfar andláts skáldsins í febrúar 1998 og fór ţar vel yfir ćviferil hans. Er frásögn Halldórs mjög fróđleg og umfjöllun hans mjög áhugaverđ. Í samanburđi viđ rit Hannesar, er ţó athyglisvert ađ Halldór fer mun hrađar yfir, skautar yfir mikilvćga ţćtti sem Hannes víkur ađ og tekur mjög ítarlega fyrir og tengjast óbeinni ţátttöku Halldórs í stjórnmálum. Af ţví leiđir ađ bók Halldórs er mun minna pólitísks eđlis og fjallar meira um rithöfundinn Laxness og áhrif hans á íslenskt skáldsagnarlíf á 20. öld og áhrif hans hér innanlands á samtíđ sína og komandi kynslóđir.
Eru báđar bćkurnar mjög áhugaverđar og er óhćtt ađ fullyrđa ađ ég hafi orđiđ margs vísari um feril Laxness eftir ađ hafa lesiđ bók Hannesar og lesiđ hluta bókar Halldórs og held áfram ađ lesa hana af miklum áhuga. Framundan er lestur fleiri bóka sem ég fékk í gjöf og eru í senn bćđi áhugaverđar og spennandi. Fyrsta ber ađ telja forsćtisráđherrabókina, ćviágrip ráđherra og forsćtisráđherra Íslands í 100 ára sögu heimastjórnar á Íslandi, 1904-2004. Endar bókin á ítarlegum kafla Styrmis Gunnarssonar ritstjóra, um Davíđ Oddsson forsćtisráđherra, 1991-2004. Hef ég ađeins lesiđ ţann kafla núna og hlakka til ađ kynna mér betur ađra hluta bókarinnar. Viđ tekur svo lestur á vandađri bók Matthíasar Johannessen, Málsvörn og minningar. Fékk ég nokkrar skáldsögur í gjöf, t.d. Sakleysingjana eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, Fólkiđ í kjallaranum eftir Auđi Jónsdóttur, 11 mínútur eftir Paulo Coelho, Baróninn eftir Ţórarinn Eldjárn, Bítlaávarpiđ eftir Einar Má Guđmundsson og Samkvćmisleikir eftir Braga Ólafsson. Ekki veit ég hvenćr ég kemst yfir allar ţessar bćkur til fulls, en ljóst er ađ mikill lestur er framundan og áhugaverđur. Nú um helstu jóladagana hef ég helgađ mig lestri á ćvisögunum um Halldór Laxness, en ţađ er ljóst ađ góđ bókajól verđa á mínu heimili.
Dagurinn í dag
1977 Breski leikarinn Sir Charles Chaplin jarđsunginn í Sviss - hann lést á jóladag, 88 ára ađ aldri
1979 Sovétríkin ná völdum í Afganistan og stjórnvöldum landsins var steypt af stóli. Leiddi ţađ til blóđugra átaka, hörmunga og borgarastyrjaldar sem stóđu í landinu í rúma tvo áratugi međ hléum
1985 Lík bandaríska náttúrufrćđingsins Dian Fossey, finnst í Rwanda. Dian sem var 53 ára, var myrt
1986 Snorri Hjartarson skáld og bókavörđur, lést, áttrćđur ađ aldri. Snorri var eitt lisfengasta skáld landsins og hlaut bókmenntaverđlaun Norđurlandaráđs 1981, fyrir bókina Hauströkkriđ yfir mér
1988 Fyrsta bílnúmeriđ í nýju fastnúmerakerfi landsins, HP 741, var sett á bifreiđ dómsmálaráđherra
Snjallyrđi dagsins
Ef ég sé ţig
- ţá er ţađ ímyndun
Ef ég heyri í ţér
- ţá er ţađ draumur
Ef ég hugsa um ţig
- verđur ţađ minning
Ţú kveiktir í mér, en vaktir tilfinningatár,
er ţú kvaddir mig á fögrum sumardegi.
Sársaukinn verđur alltaf nístingssár
en minningin fylgir mér á dimmri nóttu sem björtum degi.
Stefán Friđrik Stefánsson (Minningin) 1999
Breytt 18.9.2006 kl. 08:02 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ţú ert innskráđ(ur) sem .
Innskráning