2.4.2005 | 20:17
Engin fyrirsögn
1920-2005
Jóhannes Páll páfi II lést í Vatíkaninu í Róm í kvöld, 84 ára ađ aldri, eftir mikil og erfiđ veikindi. Seinustu vikur hefur heimsbyggđin öll fylgst međ dauđastríđi páfa, einbeittum styrk hans og ekki síđur ákveđni í ađ reyna eftir fremsta megni ađ sinna störfum sínum ţrátt fyrir hnignandi heilsu. Hefur veriđ ađdáunarvert ađ fylgjast međ páfanum reyna ađ gera sitt besta til ađ sinna verkum sínum. Sérstaklega varđ ég snortinn ađ fylgjast međ ákveđni hans á páskadag og miđvikudag, ţegar ljóst var orđiđ hvert stefndi í veikindastríđi hans: ađ reyna ađ ávarpa mannfjöldann og birtast almenningi viđ Péturstorgiđ. Gat hann ekki tjáđ sig en nćrvera hans var gríđarlega sterk og hafđi áhrif á alla sem fylgdust međ. Var hann ákveđinn í ađ heimsbyggđin gćti séđ međ eigin augum ţjáningu sína og ákveđni í ađ reyna ađ gera sitt besta til ađ vera ţjónn Guđs í störfum sínum. Allt til loka var páfi stađráđinn í ađ gera ţađ sem honum var frekast unnt til ađ ţjóna almenningi og reyna ađ sinna embćttisskyldum sínum, ţjóna trúnni og frelsaranum.
Jóhannes Páll páfi II sat á páfastóli í tćp 27 ár. Hann var kjörinn til páfasetu ţann 16. október 1978 og tók viđ embćtti af Jóhannesi Páli páfa I sem ađeins sat á páfastóli í rúman mánuđ, 33 daga. Jóhannes Páll páfi II sat lengst allra páfa á 20. öld og einungis tveir páfar sátu lengur á páfastóli en hann, ţeir Pius IX og Saint Peter. Pólverjinn Karol Józef Wojtyla var fyrsti páfinn í 455 ár sem ekki var Ítali. Hann fćddist 18. maí 1920 í smábćnum Wadowice í Póllandi. Upplifđi hann ógnir seinni heimsstyrjaldarinnar á unglingsárum sínum en Pólland var hernumiđ af Ţjóđverjum áriđ 1939. Á ćskuárum sínum áđur en hann ákvađ ađ nema guđfrćđi og helga sig kristinni trú var hann kraftmikill íţróttamađur og stundađi einkum knattspyrnu og sund og vann til fjölda verđlauna á unglingsárum í sundi. Hann tók vígslu sem prestur eftir nám sitt áriđ 1946. Hann kenndi siđfrćđi viđ Jagiellonian-háskólann í Kraków og síđar kaţólska háskólann í Lublin til fjölda ára. Áriđ 1958 var hann skipađur prestur í Kraków og fimm árum seinna, í desember 1963, var hann skipađur erkibiskup í Kraków. Sem prestur og biskup ţar varđ Karol ţátttakandi í starfsemi Vatikansins og tók sćti í ćđsta ráđi páfadćmisins.
Áriđ 1967 var hann skipađur kardináli af Páli páfa VI og varđ međ ţví orđinn einn af forystumönnum Vatikansins og kaţólsku kirkjunnar. Var hann ţví orđinn kjörgengur viđ páfakjör. Reyndi fyrst á ţađ í ágúst 1978 er Páll páfi lést og eftirmađur hans var kjörinn. Hlaut Albino Luciani kjör og tók sér nafniđ Jóhannes Páll páfi I. Hann lést eins og fyrr segir 33 dögum eftir vígslu sína. Fór páfakjör fram í október 1978 og ţótti fyrirfram líklegast ađ baráttan um páfatignina myndi standa milli Giuseppe Siri og Giovanni Benelli. Gekk brösuglega fyrir ţá ađ ná tilskyldum meirihluta. Í fyrstu umferđ vantađi Benelli 9 atkvćđi til ađ sigra í kjörinu. Varđ ţá úr ađ samstađa náđist milli vissra arma í trúarhreyfingunni um ađ Wojtyla gćfi kost á sér og náđi hann kjöri sem málamiđlunarkostur. Var undrun víđa um heim viđ kjör hans, enda var hann lítt ţekktur og hafđi veriđ lítt umdeildur í störfum sínum. Margir nefndu hann manninn frá fjarlćga landinu, sem til marks um ţađ ađ hann gat veriđ sameiningartákn ólíkra hluta og gćti ţví tekiđ viđ forystunni međ lítt umdeildum hćtti. Enginn vafi leikur á ţví ađ Jóhannes Páll páfi II hafi veriđ litríkasti og mest áberandi páfi í sögu kaţólsku kirkjunnar og hafi sett einna mest mark á sögu embćttisins.
Enginn vafi er á ađ ţrátt fyrir farsćla setu á páfastóli var páfinn umdeildur. Fylgismenn hans stađhćfa ađ hann hafi átt drjúgan ţátt í endalokum kommúnismans međ baráttu sinni fyrir frelsi og mannlegri reisn í Póllandi og öđrum A-Evrópuríkjum. Andstćđingar hans segja ađ páfi hafi hrakiđ milljónir manna úr kaţólsku kirkjunni međ íhaldssemi. Hann hafi líkt og forverar hans veriđ andvígur ţví ađ konur gegni prestţjónustu, hann hafi lagst gegn getnađarvörnum, ástarsamböndum samkynhneigđra og ţví ađ prestar kvćnist. Hann hafi veriđ gamaldags fulltrúi og lagst gegn framţróun og veriđ andvígur mikilvćgum mannréttindaatriđum. Stuđningsmenn hans segja ađ páfi hafi á löngum ferli veriđ kraftmikill málsvari mannréttinda og stutt "réttar" mannlegar áherslur, eins og ţeir segja. Á löngum ferli var hann áberandi talsmađur grunnmannréttinda: málfrelsis og andvígur stríđum, einrćđi og blóđsúthellingum. Litlu munađi ađ páfaferli hans lyki er hann varđ fyrir skoti leyniskyttu ţann 13. maí 1981, er hann kom inn á Péturstorgiđ. Ţađ var tyrkneskur múslimi, Mehmet Ali Agca, sem skaut hann. Í 14 tíma lá páfi á skurđarborđinu á sjúkrahúsi í Róm og barđist fyrir lífi sínu. Náđi hann heilsu aftur og vakti mikla athygli er hann fór til tilrćđismanns síns í fangelsiđ og fyrirgaf honum.
Jóhannesar Páls páfa II verđur ađ mínu mati, nú viđ leiđarlok, helst minnst í sögunni fyrir forystu hans í friđarmálefnum, baráttuna gegn kommúnismanum og fyrir ţađ ađ vera kraftmikill talsmađur gegn stríđshörmungum. Hann ferđađist víđa á löngum ferli og heimsótti 129 lönd á ţeim 27 árum sem hann ríkti í embćttinu. Hann flutti fleiri hundruđ rćđur í embćtti og mörg ţúsund blessunarorđ. Helgast ţađ auđvitađ af langri setu hans. Ferđalögin helgast af ţví ađ hann er fyrsti nútímapáfinn, ef segja má sem svo. Hann notađi embćttiđ međ öđrum hćtti en forverar hans og var mun virkari út í frá. Hann flutti fleiri rćđur og predikanir en nokkur trúarleiđtogi í sögu kristinnar trúar. Í byrjun júnímánađar 1989 kom Jóhannes Páll páfi II í opinbera heimsókn til Íslands og dvaldi hér dagana 3. og 4. júní. Hélt hann hátíđlega stund á Ţingvöllum og messađi viđ Kristskirkju í Landakoti. Var ég staddur í Reykjavík á ţeim sögulega degi og varđ vitni ađ ţví er hann predikađi í útimessunni. Ţessi stund mun aldrei gleymast mér. Talađi páfi stutt til Íslendinga á íslensku, en Gunnar Eyjólfsson leikari, hafđi kennt páfa íslensku í ađdraganda Íslandsferđarinnar. Var páfi alla tíđ ţekktur fyrir tungumálakunnáttu sína. Jafnan flutti hann blessunarorđ á Péturstorginu á um 60 tungumálum. Sjálfur gat hann reiprennandi talađ 13 tungumál.
Nú, ţegar páfi hefur kvatt ţennan heim og er kominn á annađ tilverustig tekur viđ stađlađ sorgarferli skv. fornum hefđum og venjum kaţólsku kirkjunnar. Í kjölfariđ tekur viđ ţađ verkefni ađ velja eftirmann Jóhannesar Páls páfa II. Viđ blasir ađ nćsta páfakjör, sem framundan er, verđi sögulegt. Um verđur ađ rćđa fyrsta páfakjöriđ sem fer fram í kastljósi fjölmiđla í nútímaumhverfi fjölmiđla. Skiljanlega geta fjölmiđlar ţó ekki fylgst međ í algjöru návígi, enda eru fundir ćđstaráđsins sem velur páfa međ öllu lokađir öđrum en ţeim sem eiga ţar kjörrétt. Siđareglur viđ kjör páfa eru mjög skýrar og eru öllum vel ţekktar. Viđ andlát páfa á sjúkrabeđi í kvöld var skírnarnafn hans kallađ ţrisvar: Karol, Karol, Karol! Ţar sem hann sýndi ţá engin svipbrigđi var hann formlega úrskurđađur látinn. Í kjölfar ţess gerist sú táknrćna stund ađ bronsdyrum Vatíkansins er lokađ sem merki um ţađ ađ páfi hafi kvatt ţennan heim. Hurđin verđur svo ekki opnuđ ađ nýju fyrr en eftirmađur hefur veriđ kjörinn. Nú, viđ andlát páfa, tekur sérlegur ađstođarmađur páfa viđ daglegum skyldum hann fram yfir vígslu nýs páfa. Ađ honum og fleiri forystumönnum páfagarđs viđstöddum var hvítri andlitsslćđu sem hylur andlit páfa fjarlćgđ og beđiđ var fyrir sálu hans.
Tilkynnt var formlega um lát Jóhannesar Páls páfa II í kjölfariđ. Hringur páfa, svonefndur hringur fiskimannsins, sem páfi hlaut viđ kjör sitt, er fćrđur á fyrsta fund kardínálanna ţar sem hringurinn er brotinn. Nú, er páfi hefur skiliđ viđ hefur söfnuđur kardinálanna, sem sinnir málefnum kirkjunnar ekkert vald lengur. Ţá verđur skrifstofa utanríkis- og innanríkismála Vatíkansins međ öllu umbođslaus og ekki er ţví hćgt ađ sinna diplómatískum málefnum fyrr en eftirmađur hefur veriđ kjörinn. Sama hversu stór mál koma til eđa atburđir verđa er engin undantekning á ţví. Öllum heimsóknum til Páfagarđs, óformlegum sem formlegum, er frestađ og engin ákvarđanataka má eiga sér stađ nema minniháttar tengd daglegum athöfnum. Nú tekur eins og fyrr segir viđ stađlađur sorgartími kaţólskra um allan heim. Kaţólskir syrgja nú fallinn trúarleiđtoga sinn. Kaţólikkar flykkjast í kirkju til ađ biđja fyrir sálu páfa og helga sig sorg, eins og ţeim er skylt. Nćstu daga verđur lík Jóhannesar Páls páfa II klćtt rauđum klćđum og međ gylltum mítur á höfđi, er ţađ til marks um virđingu fyrir honum og til ađ biđja fyrir sálu hans. Lík páfans verđur fyrir formlega útför fćrt í ţrefalda kistu og mun pyngja međ öllum ţeim myntum og orđum páfadóms hans seinustu 27 ár verđa lögđ viđ fćtur hans.
Áđur en lík páfa var flutt úr einkaherbergi hans fékk hann stađlađa syndafyrirgefningu og mun lík hans verđa til sýnis í hátíđarsal í Vatíkaninu. Útför Jóhannesar Páls II páfa mun vćntanlega fara fram fyrir nćstu helgi, líklega á miđvikudag. Ađ athöfn á Péturstorginu og í St. Péturskirkju lokinni mun kista Jóhannesar Páls páfa II vćntanlega verđa grafin í grafhvelfingu kirkjunnar. Ţar eru páfar sögunnar flestir grafnir. Eftir greftrun hans mun taka viđ svokallađ tímabil sem ber nafniđ Novemdialis, 9 daga formlegt sorgartímabil, sem markast af ţví ađ á hverjum degi er haldin hátíđarmessa í St. Péturskirkju. Eftir ađ Novemdialis er lokiđ er komiđ ađ stćrsta verkefninu sem fylgir andláti páfa, ţví ađ velja formlega eftirmann hans. Kjörmannasamkunda kardinála ber ađ koma saman 15 dögum eftir formlegan dánardag páfa og alls ekki síđar en 18 dögum. Allir kardínálar, nema ţeir sem hafa náđ áttrćđu, geta tekiđ ţátt í kjöri nýs páfa. Ef marka má fréttir erlendra vefmiđla eru um 130 kardinálar sem standast kjörskilyrđin ađ ţessu sinni. Eru kardinálar nú ađ flykkjast til Rómar og voru margir ţegar farnir ađ leggja leiđ sína ţangađ í gćr er ljóst varđ ađ páfinn lá banaleguna. Tekur nú ćđsta verkefni starfs ţeirra viđ, ađ velja sér nýjan trúarleiđtoga, í fyrsta skipti í tćpa ţrjá áratugi.
Kardinálarnir eru skiljanlega bundnir trúnađi. Mega ţeir ekki rćđa kosninguna eđa neina ţćtti ţess sem gerist nú viđ fjölmiđla eđa ađra en lćrđa menn. Ţar til ţeir hafa náđ niđurstöđu og páfi veriđ kjörinn eru ţeir lćstir inni og ţá fyrst má rćđa um heppilega kandidata viđ ađra kardínála innbyrđis og hefja einhvers konar kosningabaráttu. Er kjörfundur er formlega hafinn má honum ekki ljúka eđa kardinálar ađ yfirgefa hann fyrr en niđurstađa er komin, eins og fyrr segir. Fyrir ţarf ađ liggja bćđi stór og gild ástćđa fyrir brotthvarfi kardinála frá ţeirri stundu. Ţrjár ađferđir eru til ađ velja nýjan páfa. Í fyrsta lagi er sú ađferđ sem algengust er: ađ velja páfa međ beinni kosningu. Frambjóđandi verđur ţá ađ hljóta 2/3 allra atkvćđa til ađ vera kjörinn, í öđru lagi er hćgt ađ kjósa páfa međ upphrópun. Ţá eru allir kardínálarnir sammála um hver skuli taka viđ sem páfi og kalla nafn hans upphátt. Ađ lokum er hćgt ađ velja páfa međ málamiđlun. Atkvćđagreiđslan fer fram í Sixtínsku kapellunni. Eftir ađ samstađa hefur náđst eru atkvćđaseđlarnir brenndir. Reykur leggur ţá upp yfir Péturstorgiđ til marks um niđurstöđuna - páfi hafi veriđ kjörinn.
Söguleg tíđindi hafa átt sér stađ. Páfi til tćplega ţriggja áratuga er fallinn frá. Arfleifđ hans og verk, forysta í trúarlegum málefnum og friđarbarátta hans verđur lengi í minnum höfđ. Einn merkasti mađur 20. aldarinnar, leiđtogi eins stćrsta trúarhóps mannkyns hefur kvatt ţennan heim. Viđ minnumst nú ţessa merka manns og lútum höfđi og hugsum til persónulegs styrks, einbeitni hans og stađfestu í ţví verkefni seinustu árin ađ ţjóna Guđi og söfnuđi sínum til hinstu stundar, ţrátt fyrir hnignandi heilsu. Merkismađur er fallinn í valinn. Megi almáttugur Guđ blessa ţennan dygga ţjón sinn. Minning hans mun lengi lifa, í huga okkar sem lifđum ţađ ađ fylgjast međ verkum hans og ekki síđur fyrir komandi kynslóđir í sögubókum framtíđarinnar. Jóhannes Páll páfi II var eitt af stórmennum mannkynssögunnar.
Saga dagsins
1725 Eldgos hófst í nágrenni eldfjallsins Heklu í Haukadal og fylgdu ţví mjög snarpir jarđskjálftar
1928 Jóhanna Magnúsdóttir hlaut lyfsöluleyfi, fyrst íslenskra kvenna - starfrćkti lyfjaverslun í 33 ár
1974 Leikarinn Jack Lemmon hlaut óskarinn fyrir túlkun sína á Harry Stoner í Save the Tiger - hann hlaut óskarinn áđur fyrir túlkun sína á óbreyttum Pulver í Mister Roberts áriđ 1954. Lemmon var einn af bestu leikurunum í kvikmyndasögu 20. aldarinnar og varđ rómađur fyrir ađ vera jafnvígur á bćđi gamansamar og dramatískar túlkanir á svipmiklum karakterum. Hann lést úr krabbameini í júní 2001
1982 Argentína rćđst inn í Falklandseyjar, breskt yfirráđasvćđi viđ S-Atlantshaf - leiddi ţessi innrás Argentínumanna til hernađar Breta gegn ţeim. Lauk ţeim átökum međ fullnađarsigri breska hersins
2005 Jóhannes Páll páfi II lést í Vatíkaninu í Róm, 84 ára ađ aldri, eftir mikil veikindi - Pólverjinn Karol Józef Wojtyla var fyrsti páfinn í 455 ár sem ekki var Ítali ađ uppruna. Hann fćddist 18. maí 1920 í smábćnum Wadowice í Póllandi. Hann var kjörinn páfi í október 1978 og gegndi embćtti, ţrátt fyrir slćma heilsu, allt til dauđadags. Hann heimsótti um 130 lönd á 27 ára páfaferli og var víđförlasti páfi sögunnar og flutti fleiri rćđur og predikanir en nokkur annar trúarleiđtogi í sögu kristinnar trúar
Snjallyrđiđ
When you wonder about the mystery of yourself, look to Christ, who gives you the meaning of life. When you wonder what it means to be a mature person, look to Christ, who is the fulfillness of humanity. And when you wonder about your role in the future of the world look to Christ.
Jóhannes Páll páfi II trúarleiđtogi kaţólskra (1920-2005)
Breytt 18.9.2006 kl. 08:02 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ţú ert innskráđ(ur) sem .
Innskráning