Ítalskt vor á Akureyri

Ítalski fáninn

Ţađ hefur veriđ mikil blíđa hér norđan heiđa seinustu daga. Sumariđ er komiđ og ánćgjulegt ađ njóta svo góđs upphafs ţess. Seinnipartinn í dag fór ég í góđan göngutúr og endađi förina í Amtsbókasafninu. Ţar hófst Ítalskt vor á Akureyri, vikulöng dagskrá hér í bćnum helgađri ítalskri menningu og er samstarfsverkefni nokkurra ađila í bćnum. Dagskráin hófst međ stofnfundi félagsins "Vinir Ítalíu" í AmtsCafé á bókasafninu kl. 16:00 í dag. Ţar var góđur fjöldi fólks mćttur til ađ taka ţátt í upphafi ţessa ítalska vors. Hófst dagskráin međ ţví ađ Elín Margrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri, fór yfir dagskrá ítalska vorsins og ţess sem framundan vćri í hinu nýstofnađa félagi. Ađ ţví loknu tók sérstakur gestur stofnfundarins, Pétur Björnsson rćđismađur Ítalíu á Íslandi, til máls. Fór hann í máli sínu yfir atriđi tengda Ítalíu og ítalska menningu og sögu umfram allt. Pétur talađi međ heillandi og góđum hćtti og áhugavert ađ hlusta á lýsingar hans.

Í rćđu sinni minntist Pétur sérstaklega Sigurđar Demetz Franzsonar söngkennara og óperusöngvara, sem lést nýlega. Sigurđur Demetz var einn ţeirra sem komu hingađ til lands frá Ítalíu og auđguđu íslenska tilveru međ nćrveru sinni. Sigurđur var til fjölda ára búsettur hér á Akureyri og kenndi söng viđ Menntaskólann á Akureyri. Ţar eignađist hann marga vini og kom međ ómetanlegt innlegg í sönglistina á stađnum. Varđ hann lćrimeistari Kristjáns Jóhannssonar í söng og uppgötvađi fyrstur allra mikla snilli hans. Demetz var allt til síđasta dags áhrifamikill í tónlistarlífi landsins og var mikils metinn fyrir sitt framlag. Sigurđur auđgađi okkar mannlíf, en međ honum fengum viđ ađ kynnast ógleymanlegum suđrćnum lífskúnsner. Hann er gott dćmi um ţađ hvernig hćgt sé ađ efla menningu og listir einnar ţjóđar. Viđstaddir minntust Sigurđar međ ţví ađ rísa úr sćtum og lúta höfđi í andartaksţögn.

Ennfremur fluttu rćđur viđ ţetta tilefni ţau Maurizio Tani og Anna Blöndal sem kynntu nýtt félag vina Ítalíu, sem verđur skammstafađ VITA. Gerđist ég stofnfélagi á fundinum. Er ţađ mjög ánćgjulegt, enda hef ég lengi hrifist mjög af Ítalíu og ítalskri menningu. Ađ lokinni dagskrá var bođiđ upp á léttar veitingar: góđar snittur Halldóru á AmtsCafé og úrvalshvítvín. Var ţetta gott upphaf ítalska vorsins og ţetta var góđ stund sem viđ áttum saman í dag. Líst mér vel á stofnun félagsins og mun sýna ţví mikinn áhuga á ađ taka ţátt í ţví sem ţar fer fram. Framundan er svo nćstu dagskráratriđi. Munu ítalskar úrvalsmyndir verđa sýndar í Borgarbíói nćstu dagana og líst mér sérstaklega vel á ađ sjá Cinema Paradiso og Amarcord (meistaraverk Fellinis). Ítölsk tónlist mun verđa leikin í Ketilhúsinu 3. maí kl. 17:00 og listamenn sem numiđ hafa á Ítalíu munu sýna í Galleríi Jónasar Viđars 29. og 30. apríl.

Ítalska hefur veriđ kennd hjá Símenntun Háskólans á Akureyri undanfarin ár. Kennari ţar er Maurizio Tani. Áhugi á tungumálinu og menningu landsins hefur ţví aukist mjög í gegnum ţá kennslu. Er ţađ mikiđ gleđiefni. Leist mér vel á dagskrána í dag og vil hrósa ţeim Maurizio, Ellu Möggu og öđrum sem ađ komu. Okkur sem unnum Ítalíu og ţví sem ţađan kemur mun hlakka til ađ vinna saman í ţessu félagi og í ţeim verkum sem ţađ mun standa fyrir. Fyrst og fremst vil ég hrósa ţeim sem ađ komu í skipulagningu ítalska vorsins fyrir ađ fćra okkur tćkifćriđ til ađ kynna okkur betur Ítalíu og ítalska menningu.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Hver er summan af tveimur og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband