George W. Bush sextugur

George W. Bush

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, er sextugur í dag. Í ítarlegum pistli á vef SUS í dag fer ég yfir stjórnmálaferil og ćvi ţessa 43. forseta Bandaríkjanna frá árinu 1776, hins umdeilda stjórnmálamanns frá Texas sem tókst ađ sigra tvennar forsetakosningar og náđi kjöri međ sögulegum hćtti tvívegis á ríkisstjórastól heimafylkis síns í Texas á tíunda áratugnum. Bush hefur setiđ á forsetastóli í Bandaríkjunum í rúm fimm ár og veriđ umdeildur í verkum sínum, allt frá sögulegum kosningasigri hans í nóvember 2000. Hann hefur veriđ í forystu mesta stórveldis heims á miklum umbrotatímum í alţjóđastjórnmálum seinustu árin.

Spennandi tímar eru framundan í bandarískum stjórnmálum - í nóvember verđa ţingkosningar, sem verđa enn einn prófsteinninn á stöđu ţessa 43. forseta Bandaríkjanna og flokks hans. Nú er forsetinn orđinn sextugur og vert ađ óska honum til hamingju međ afmćliđ á ţessum sumardögum. Afmćlisáriđ hefur ekki veriđ neinn dans á rósum fyrir hann pólitískt. Endalaus verkefni og pólitískar áskoranir eru altént framundan í pólitíska andrúmsloftinu sem viđ honum blasir í Washington. Fyrst og fremst horfir hann til ţingkosninganna og reynir ađ tryggja samherjum sínum lykilvöld ţar áfram - völd sem skipta stjórn hans líka höfuđmáli seinustu misseri forsetaferils hans.

Ég hvet alla til ađ lesa ţennan pistil minn um George Walker Bush.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Hver er summan af fjórum og fjórtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband