Stormasamur dagur fyrir sunnan

Óveður Það hefur heldur betur verið stormasamur dagur fyrir sunnan. Hef fengið margar lýsingar á þessu veðri í spjalli við vini á höfuðborgarsvæðinu. Mjög dramatískar eru þær sumar. Hér var frekar rólegt um að vera veðurlega séð, allavega miðað við það sem hefur greinilega gengið á fyrir sunnan. Svona óveður eru ömurleg. Við verðum oft ansi hjálparlaus þegar að máttarvöldin minna á sig.

Þeir hafa greinilega staðið sig mjög vel í Skógarhlíð. Þar eru fagmenn í öllum verkum og þeir eiga hrós skilið fyrir gott verk. Það er eðlilegt að hræðsla grípi um sig í svona veðri og gott að fólk leiti til fagmanna hjá Almannavörnum þegar að svona alvarlegt veður gengur yfir. Reyndar sést ekki betur í kortunum en að annað óveður sé á leiðinni, væntanlega þó ekki eins öflugt og það sem gekk yfir í dag.

Þetta er svolítið sérstakt veður í desember. Við eigum mun frekar að venjast því að vera að moka snjó á þessum árstíma og ylja okkur við heitt kakó í desemberfrostinu. Það er allt annað nú. Hér er að verða snjólaust og ekki hægt annað en að fara að efast um að jólin verði hvít í ár.

Hvítu jólin eru ómissandi þáttur jólanna að mínu mati en sennilega eru þau fokin út í veður og vind þetta árið. En hvað með það, jólin koma engu að síður. Allavega ætti enginn að þurfa að vera fúll hér með öll jólalögin í spilaranum í botni.

mbl.is Aðgerðum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband