Er ógæfa fólgin í því að verða Idol-stjarna?

Kalli Bjarni Það er orðið margsannað að sigur í tónlistarkeppninni Idol fylgi skammlíf frægð sem oftast nær verður hrein bölvun er yfir lýkur. Nægir svosem að líta á íslensku sigurvegarana í Idol-keppninni. Flestir nutu frægðar í kringum keppnina og fyrst á eftir, en hafa annars gleymst að mestu. Fyrsta Idol-stjarnan, Kalli Bjarni, situr nú í fangelsi og afplánar langan dóm fyrir fíkniefnasmygl, önnur Idol-stjarnan Hildur Vala hefur reyndar náð lengst að margra mati en hefur pásað sig. Þriðja stjarnan, Snorri Snorrason, naut vinsælda sumarið 2006 en lítið hefur heyrst í honum síðan.

Sigurvegarar Idol-keppninnar í Bandaríkjunum hafa oftar en ekki gleymst. Stærsta stjarnan í keppninni til þessa, fyrir utan fyrsta sigurvegarann Kelly Clarkson, hlýtur að teljast leikkonan og söngkonan Jennifer Hudson, sem sló í gegn í þættinum árið 2004. Hún komst þó ekki alla leið og féll að lokum úr leik um miðja keppni, mörgum að óvörum. Síðan hefur sól hennar risið mjög og hún sló endanlega í gegn í kvikmyndinni Dreamgirls árið 2006 og hlaut óskarsverðlaunin og gullhnöttinn fyrir túlkun sína á söngstjörnunni Effie White í myndinni. Hudson er orðin ein skærasta söngstjarna sinnar kynslóðar í kjölfarið og flestir hafa gleymt Fantasiu Barrino sem vann keppnina sama ár og hún.

Ruben Studdard vann Clay Aiken með sjónarmun í keppninni árið 2003. Studdard er flestum gleymdur og margir þóttust sjá stjörnu í Clay, sem var dálæti margra þá, en hann hefur fallið í sama skuggann líka. Nú er Taylor Hicks, sem var stjarna í Idol fyrir tveim árum, og þekktur fyrir að hafa grátt í vöngum meðfram söngnum, búinn að missa sjarmann að mati útgefendanna og misst samninginn sinn. Hann stendur einn. Eftir stendur því að aðeins einn Idol-sigurvegari hefur markað gull og það er Kelly Clarkson.

Annars er besta dæmið um það hvernig fór fyrir Idol hérna heima það að efnið var slegið af. Idol gekk í þrjú ár hérna heima en var svo slegið af. Svo var X-factor tekið upp og það entist bara í einn vetur. Nú er engin svona keppni hérna heima, ef undan er skilin Eurovision-keppnin langlífa í Laugardagslögunum, en sá bolti virðist ætla að ganga endalaust og í gegnum allan veturinn, mörgum til gremju.

Af hverju var ekki haldið áfram með X-factor? Var ekki mikið áhorf á þáttinn, ekki vantaði auglýsingarnar í hann og ekki var hægt að sjá annað en að þjóðin hefði gaman af að horfa á. Talað var um keppendur og allt dæmið fram og til baka á bloggi, spjallvefum og almennt í samfélaginu. Gekk sá pakki ekki upp eða hvað gerðist? Væri gaman að vita það.

Annars er þetta allt eflaust besta dæmið um að þessi módel endast ekki nema vissan tíma og þeir sem sigra hafa ekki úthald í frægðina nema á meðan að stjörnuglampi þáttanna skín. Þeir eru fáir sem lifa lengur í bransanum en sá glampi.

mbl.is Idol sigur ekki ávísun á farsæld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

lífið er bara svona hjá öllum.  Sveiflast upp og niður.  Erfiðir tímar og góðir tímar, gulu-pressurnar tryggir bara að maður fái að fylgjast með því þegar eitthvað kemur upp hjá "stjörnunum".

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 7.1.2008 kl. 12:22

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað þýðir að hafa grátt í vöngum meðfram eins og þú segir að Taylor hafi haft. ? ein voða vitlaus.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.1.2008 kl. 12:39

3 identicon

Ég er alveg mjög sammála þér í þessum skrifum, en eitt sem þú ert að gleyma er þátturinn Bandið hans Bubba sem er hið nýja Idol á Íslandi reyndar er eitthvað verið að reyna gefa þessu einhvern rokkarabrag en veit nú ekki hvernig það á eftir að ganga. 

Sturla Már (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 12:53

4 Smámynd: Signý

Gleymir nú að nefna Kelly Underwood, kántríbeibið sem vann eitthvert Idolið þarna úti í usa. Hún er enþá á fullu og nýtur mikilla vinsælda í usa. Svo er önnur stelpa sem reyndar vann ekki en var með þeim sigurstranglegustu í keppninni, líklega meira vegna backround sögu hennar frekar heldur en sönghæfileika, og þó. Man aldrei hvað hún heitir almennilega, Kerry Pickler eða Kelly Pickler.. allavega eitthvað K Pickler. Hún er ágætlega vinsæl kántrísöngkona að sjálfsögðu.

En þetta með Idolið og X-factor þá giska ég nú á það að það séu nú takmörkum háð hversu oft þú getur farið um landið og leitað sönghæfileikum í landi þar sem búa 300.000 manns. Það að Idolið hafi gengið í 3 ár, þykir ábyggilega frekar magnað og held ég að engin af þeim sem eiga þennan þátt hafi átt von á því. Hitt er svo annað mál að stöðtvö sem framleiddi þættina hafði og hefur aldrei haft efni á því, Enda koma þeir út í stórum feitum mínus eftir þriðja Idolið. X-factor náði aldrei sömu  hæðum og Idolið... 

Signý, 7.1.2008 kl. 13:47

5 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Nanna: Já, lífið er ein hringekja út í eitt. Aldrei að vita hvenær að það fer upp eða niður. Samt er þetta mjög hæðótt tilvera hjá stjörnunum og greinilega ekki á neitt að stóla. Þegar að glampinn dofnar er oft erfitt að standast mótlætið, enda þarf ansi sterkar stjörnur að standa af sér þá tíð er glampinn dofnar.

Ásdís: Hann var með grásprengt hár, ekki ósvipað George Clooney t.d. Mörgum fannst þetta kynþokkafullt, t.d. konum sem kusu Taylor, en það hefur eitthvað dofnað yfir því. Hann virðist vera að missa dampinn í bransanum.

Stulli: Gleymdi reyndar Bubba já, en það hefur ekkert reynt á þáttinn hans enn, enda ekki byrjaður. Veit ekki hvernig það mun ganga, en það verður bara einn vetur sem það er í gangi og varla mikið dæmi í sjálfu sér. Held að það verði frekar skammlíft æði, ef það verður þá æði á annað borð. Efast reyndar stórlega um það. Skrifaði reyndar smáfærslu um þættina hans Bubba þegar að þeir voru kynntir í október. Kíktu á það, rímar ágætlega við þennan pistil hehe.

Signý: Hún heitir reyndar Carrie Underwood. Hafði steingleymt henni reyndar, en það er sennilega vegna þess að ég er lítið fyrir country-tónlist, vægast sagt. Hún hefur reyndar staðið sig vel og er ein mjög fárra Idol-stjarna sem hafa markað sér stöðu, kannski er það vegna þess að hún er ekki í gelgjupoppinu og hefur náð að verða ferskt andlit í fjöldanum.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 7.1.2008 kl. 13:53

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Góð samantekt hjá þér og gott að fá upprifjun. Meðan ég las þetta þá datt mér í hug hvort þetta gangi ekki bara upp með þv´að vera stanslaust í keppni! Ég meina söngvarar sem eru bar í keppnum, þetta virkar nefnilega  svona eins og íþróttaleikkur, spenna og halda með einhverjum, þangað til hann vinnur en engin eftirfylgni frá aðdáendum keppninnar það verða aðrir að standa í!

Edda Agnarsdóttir, 7.1.2008 kl. 14:45

7 Smámynd: Tryggvi F. Elínarson

Það sem gleymist gjarnan í þessari umræðu er að þessar "idol stjörnur" og sigurvegarar ú sambærilegum keppnum eru bara söngvarar. Sem gerir það að verkum að þeir eru öðrum háðir með lagasmíðar og slíkt. Það gerir þeim vitanlega erfiðara fyrir í hörðum heimi tónlistarinnar þar sem fyrir er fjöldi söngvara sem eru líka fanta lagasmiðir!

Tryggvi F. Elínarson, 7.1.2008 kl. 16:51

8 identicon

Carrie Underwood hefur selt fleiri plötur en Kelly Clarkson, ef þú pælir bara í sölutölum. Simon Cowell spáði þessu meira að segja eftir að hún söng í 8- eða 7-manna úrslitunum árið sem hún svo að lokum vann: "Ég spái því að þú eigir ekki einungis eftir að vinna þessa keppni, heldur selja fleiri eintök af plötum en nokkur annar Idol-siguvegari..."

Varðandi Jennifer Hudson, þá fannst mér hún persónulega ofmetin í myndinni Dreamgirls. Vissulega góð, og betri en Eddie Murphy og Beyoncé, en allt æðið í kringum hana var aðeins of mikið fyrir minn smekk. Hún er náttúrlega ekkert svakalega vinsæl núna sérstaklega, eða það kemur ekki í ljós fyrr en eftir t.d. Sex and the City myndina ... -- til eru jú mýmörg dæmi um að Óskarsverðlaunahafar geti gleymst líka.

En það sem þessar stjörnur eiga sameiginlegt er það, að Idol-keppnirnar komu þeim á framfæri. Án Idol ... hvar væru þær þá? Persónulega finnst mér Jógvan bestur af þeim sem fóru í gegnum þessar keppnir hér á landi. Og svo Heiða, sem lenti í öðru sæti á eftir Hildi Völu.

Ég sé ekki mikla ógæfu hjá Carrie Underwood framundan, því ef hún heldur áfram á þessari braut getur hún hiklaust tekið við sem drottning kántrítónlistar, sem er hennar uppáhaldstónlist og tónlist sem selst vel í USA. Ekki endilega minn tebolli, en þessar tvær plötur hennar eru svakalega góðar.

Hins vegar er hún ung ... það getur margt gerst.

Einn af vinsælustu Idol-fyrrum-þátttakendunum í dag er Chris Daughtry, með hljómsveit sína Daughtry ... hefur selt mikið af plötum og fengið verðlaun. Þessir þættir eru ekkert bestu þættir í heimi, en innan um allt "draslið" og "ógæfueinstaklingana" ... þá leynast gullmolar, sem réttlæta finnst mér áframhaldandi gerð þessara þátta. 

Ég mun hins vegar ekki hafa minnstan áhuga á Bandinu hans Bubba... 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband