Tvennum sögum fer af meirihlutaviðræðunum

Ólafur F. og Vilhjálmur Þ. Tvennum sögum virðist fara af meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokks og F-lista og hefur Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, vísað á bug fréttum af falli meirihlutans. Það vekur þó nokkra athygli að hvorki næst í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson eða Ólaf F. Magnússon - þeir eru utan þjónustusvæðis að því er virðist og hefur svo verið allt frá því að fréttin af viðræðunum birtist fyrst á vísir.is fyrir fjórum tímum; á ellefta tímanum í morgun.

Merkilegt er að í viðtali við dv.is neitar Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi, að fram fari viðræður Ólafs F. við sjálfstæðismenn og segir ekki flugufót fyrir frétt vísis, en segir svo í næstu setningu að það sé afskaplega ólíklegt að viðræður hafi farið fram - hafi það verið raunin þá þyki henni undarlegt að slíkt hafi ekki borið á góma þegar hún ræddi við Ólaf F. Magnússon í morgun. Með öðrum orðum að þá veit hún ekkert með vissu hvað er að gerast og virðist ekki hafa náð sjálf sambandi við hann. Ef hún fullyrðir í hádeginu eða síðar þetta að þá blasir við öllum að hún er jafn blind fyrir því hvað aðalmaður framboðs hennar er að gera. Enn hefur hann ekki neitað sjálfur fréttinni opinberlega og það hafa sjálfstæðismenn ekki heldur gert.

Það er ekki nema von að spurning vakni hversu sterkt samband Ólafs og Margrétar er eiginlega, fyrst að þau hafi ekki talað hreint út saman eftir birtingu fréttarinnar og hún segi að það sé ólíklegt að viðræður hafi farið fram en segi svo í annarri setningu í sama viðtali að það sé ekki flugufótur fyrir fréttinni. Ekki virðast samskiptin vera merkileg í þessum félagsskap. Reyndar hafa kjaftasögur verið háværar að vík sé orðin milli vina í F-listanum, þeirra Ólafs og Margrétar, sem sat í borgarstjórn í nokkra mánuði á síðasta ári og var forseti borgarstjórnar fyrstu vikur nýja meirihlutans, eða þar til Ólafur F. sneri aftur í borgarstjórn með vottorð upp á vasann.

Enn eru stórar spurningar eftir í þessum meirihlutakapal. Enn stendur eftir að einn stærsti vefmiðill landsins skúbbaði fregnum af meirihlutaviðræðum. Þeim hefur enn ekki verið neitað af leiðtogum Sjálfstæðisflokks og F-lista, þeirra sem eiga að vera að ræða saman, þegar að fjórir klukkutímar eru liðnir frá birtingu fréttarinnar. Einu sem hafa talað eru Dagur B. Eggertsson og Margrét Sverrisdóttir, sem hvorugt hefur vald til að stoppa myndun nýs meirihluta, ef það er rétt að Ólafur og Vilhjálmur sitji á fundi og hafi rætt meirihlutamyndun.

Það verður áhugavert að heyra meira af þessu máli og hvenær að þeir félagar Ólafur og Vilhjálmur verði í símasambandi, en ekki utan þjónustusvæðis.

mbl.is Borgarstjóri: Enginn fótur fyrir meirihlutaviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

ÓLAFUR F.Magnsussson er fyrv. Sjálfstæðismaður og hefur sennilega alltaf verið,var hrakin úr flokknum af ósekju,á Landsfundi sem eg var á ,en hans hugsun er landvernd og það hefur sko breiðst í okkar flokki siðistu misseri/eg held að allir vilji heim fyrir rest/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 21.1.2008 kl. 14:43

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ég fagna þessum viðræðum, ef rétt er, og vona að þeir nái saman.

Hvað sem þessu líður þá eru þessar umræður til þess fallnar að koma róti á núverandi samstarf.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 21.1.2008 kl. 16:11

3 Smámynd: Auðbergur Daníel Gíslason

Ég vona innilega að þessar fréttir sé á sannleika byggðar, það væri það allra besta fyrir borgarbúa, og raunar landið allt.

Auðbergur D. Gíslason
14 ára Sjálfstæðismaður 

Auðbergur Daníel Gíslason, 21.1.2008 kl. 16:24

4 identicon

Áhugavert.

Nokkuð ljóst er að meirihlutinn í borginni standi höllum fæti. Það hefur verið tíðrætt í langan tíma. Hversu höllum veit ég hins vegar ekki.

En ef að þessu yrði, myndi Villi setjast aftur á borgarstjórastólinn? 

Ívar (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband