Íslenskt bankarán - kuldaleg lífsreynsla

Af vettvangiAlltaf nöturlegt að heyra af bankaráni í íslensku samfélagi. Sem betur fer hafa bankarán verið sjaldgæf hér. Hafa gerst þó inn á milli og jafnan vakið athygli, eðlilega. Sem betur fer hefur ofbeldi ekki átt sér stað þó harka fylgi verknaðinum. Held að það sé rétt hjá mér að aðeins séu 24 ár frá fyrsta íslenska bankaráninu þar sem vopni var beitt af alvöru.

Það var þegar að rænt var við Landsbankann á Laugavegi í skjóli nætur. Um það voru skrifaðar bækur og atburðarásin, sem var stórmerkileg, var sviðsett í Sönnum íslenskum sakamálum. Það hlýtur að vera afar kuldaleg lífsreynsla að vera á vakt við þessar aðstæður á hábjörtum degi og leiðir til spurninga um öryggismál þeirra sem vinna í bankanum. Það virðist alltaf vera smugur fyrir þá sem skipuleggja sig vel og eru staðráðnir í að láta verknaðinn ganga upp.

Þetta minnir mun frekar á erlendan veruleika í kvikmyndunum en það sem gerist í okkar litla og rólega samfélagi. En samhliða öllum verslunarránunum í skjóli nætur má eiga von á því að skipulögð séu stærri rán þar sem reynt er að ná slatta af peningum. Vonandi mun ganga vel að finna þennan ræningja í Glitnisútibúinu.


mbl.is Vopnað bankarán í Lækjargötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband