Óþægileg tilfinning - allur er varinn góður

Flugvél Iceland Express Það er gott að það var engin alvarleg bilun í Lundúnavél Iceland Express, en í þessum efnum sannast að allur er varinn góður og eðlilegt í stöðunni að snúa við. Það hlýtur að vera mjög óþægileg tilfinning að vera staddur í flugvél eftir stutta flugferð og þurfa svo að snúa við vegna bilunar, vita ekki hvað er að og hvernig aðstæður eru.

Það er þó fyrir mestu að brugðist var rétt við þessum aðstæðum og engin alvöru hætta var um ræða í þessu tilfelli. Flugið er virkilega notalegur samgöngumáti og reyndar sá besti að mörgu leyti, en það eru hættur í fluginu og það er eitt hið versta sem til er að vera staddur í um eða miðri flugferð og vita að eitthvað er að.

mbl.is Vél Iceland Express snúið við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband