Slow motion fílingur á netsambandinu

Veikburða netsamband Tók eftir því þegar að ég fór í tölvuna síðla dags að netsambandið við útlönd var skelfilega hægt, rétt silaðist áfram svo að ég tel að flestir landsmenn hafi tekið pirringskast. Skýringin auðvitað einföld, bilun í ljósleiðara og sambandið aðeins þriðjungur þess sem eðlilegt er og enn eru sömu rólegheitin á þessu.

Það er fátt sem pirrar mann meira en þegar að netið er hægt eða einhver bilun, jafnvel hin minnsta verður. Á þessum tímum þegar að við höfum ADSL-tengingu og allt hið besta sem til er minnumst við eiginlega gömlu tengingarinnar í denn þegar að við förum á erlendar síður núna á þessu kvöldi. Er helst að þetta minni á þá förnu tíð, sem er ekki beint nostalgía yfir í huga okkar netnotenda.

Vonandi kemst þetta í lag sem fyrst. Þarna sjáum við best hversu rólegt er yfir öllu heila dæminu þegar að bilun verður. Held að við teljum flest öll mínúturnar þar til að eðlilegur hraði er á tengingunni okkar og við getum skannað erlendar frétta- og afþreyingasíður af sama hraði og áður.

mbl.is Bilun í ljósleiðara tengdum Farice
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband