KEA eignast Hafnarstræti 98 - góð niðurstaða

Hafnarstræti 98 Mér finnst það mjög góð niðurstaða að KEA eignist Hafnarstræti 98 og ætli sér að lagfæra það og koma því í stand. Þetta eru góð endalok á miklu deilumáli hér í bænum, en allir hafa haft sínar skoðanir á því hvort endurreisa eigi gömlu Hótel Akureyri og skiptar skoðanir voru um ákvörðun Þorgerðar Katrínar að friða húsið með París og Hamborg.

Með enduruppbyggingu Hafnarstrætis 98 er komin skemmtileg heild í gömlum húsum í Hafnarstrætinu. Bæði Hamborg og París, Hafnarstræti 94 og 96, hafa verið gerð upp síðasta áratuginn og þau hafa öðlast nýtt líf. Allir sem hingað koma dást að kaffihúsinu Bláu könnunni og það hefur verið sérlega skemmtilegt að sjá Hamborg breytast úr hrörlegu gömlu húsi í flott verslunarhúsnæði 10-11 þar sem gaman er að koma. Fyrir nokkru síðan þóttu bæði þessi hús hrörleg og ljót að sjá.

Ég held að örlög Hafnarstrætis 98 hafi verið endanlega ráðin þegar að teikningar urðu opinberar af því húsi sem byggja átti þar í staðinn. Það var með eindæmum ljótt, passaði engan veginn í götumyndina. Reyndar finnst mér kassalaga byggingar af því tagi sem boðað var að ætti að reisa á þessum reit lítt spennandi og hefði ekki viljað sjá þannig hús á þessum stað. Það var gott að það tókst að koma málinu í annan farveg og ég held að flestir verði sáttir við Hafnarstræti 98 eftir að KEA hefur komið því í stand.

Það hefur verið deilt um þetta hús svo lengi sem ég man eftir. Það hefur verið ljótt meginpart minnar ævi, man ekki eftir því nema sem lýti á miðbænum. Talað hefur verið um að rífa það árum saman. Samt var það aldrei verið gert. Nú ætlar KEA að taka það í gegn. Það eru farsæl endalok á löngu deilumáli og ásýnd miðbæjarins verður fegurri við endurreisn gömlu Hótel Akureyri.

mbl.is KEA kaupir Hafnarstræti 98
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Stebbi...ljótt og fallegt er smekkur hvers og eins. Það sem þér finnst ljótt finnst öðrum fallegt. Mér finnst þú vega nokkuð harkalega að einum okkar færasta arkitekti með þessum orðum.  !!

Jón Ingi Cæsarsson, 17.3.2008 kl. 16:28

2 identicon

Ég sem hélt að þið JIC væruð að fallast í faðma!

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband