Er nektin feimnismál í sundlaugunum?

Finnst hún skemmtileg þessi frétt af konunni sem fékk ekki að fara berbrjósta í sund í Hveragerði. Það væri gaman að heyra hvað femínistum finnst um frelsishug þessarar sænsku baráttukonu sem vill vera frjáls í sundinu og vill engin boð né bönn. Sumir femínistar hafa talað um konur með þeim brag að þær séu á móti nekt og tala oft eins og þær séu samviska allra kvenna. Það virðist ekki vera ef marka má þessa skemmtilegu frelsisbaráttu konunnar í sundlauginni í Hveragerði.

Það er svolítið sérstakt að fólk megi ekki vera berskjaldað vilji það svo. Það er svosem deilt um hversu langt nekt eigi að ganga áður en hún verður ósmekkleg. Það yrði t.d. eitthvað sagt ef karlmenn færu án sundskýlu í sundið. En varla er verið að deila um það að þessi kona vildi sleppa sundbuxum eða fötum sem hylja hennar allra heilagasta. Um er að ræða hvort konur eigi að vera berar að ofan eins og karlarnir.

Það er áhugavert að lesa skrif sumra um þessa frétt. Finnst flestir gera gaman af þessu skondna atviki, sumir eru mjög hissa á blessaðri konunni. En þessi yfirlýsing konunnar um að gera lítið úr boðum og bönnum í sundlaugum landsins leiðir til umræðu hversu langt nektin eigi að ganga. Er þetta kannski mesta feimnismálið í sundlaugunum. Það er allavega ljóst hvað verður rætt í heitu pottunum næstu dagana.

mbl.is Bannað að bera brjóstin í Hveró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Ekki svo ég viti" var svarið í Sundlaug Akureyrar. kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband