Hvalveiðarnar ganga vel

Halldór BlöndalHvalveiðarnar virðast ganga vel. Nú hefur fimmta langreyðin verið veidd, en alls er kvóti upp á að veiða til manneldis níu slíkar, en hinsvegar 30 hrefnur. Það voru mikil tímamót þegar að veiðarnar hófust fyrr í þessum mánuði, en þá voru tveir áratugir liðnir frá því að hvalur var veiddur í atvinnuskyni hér við land. Langreyður var síðast veidd hér við land árið 1989, þá í vísindaskyni, en síðast í atvinnuskyni á árinu 1985.

Það vakti mikla athygli að Halldór Blöndal, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins hér í Norðausturkjördæmi, skyldi er fyrsti hvalurinn kom í hvalstöðina í Hvalfirði skera hann. Halldór gerði það með mjög fagmannlegum hætti, en hann vann á fimmtán vertíðum í hvalstöðinni, áður en hann varð þingmaður, á áttunda áratugnum og er því öllu vanur í þessum efnum. Mér fannst þetta vel gert hjá Halldóri og hef víða heyrt fólk tala um að þetta hafi verið vel til fundið.

Spaugstofan gerði nokkuð grín af þessu með sínum skemmtilega hætti um helgina. Þar var Pálmi Gestsson í hlutverki Halldórs og þetta sett allt í fyndið samhengi. Þar flutti Pálmi í gervi Halldórs kostulega fyndna "stöku". Alveg frábærir félagarnir í Spaugstofunni eins og venjulega.


mbl.is Fimmti hvalurinn á leið í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband