Svekkjandi úrslit - spennandi einvígi um titilinn

Chelsea fagnar sigriAnsi var það nú svekkjandi að Manchester United hafi ekki tekist að tryggja sér meistaratitilinn í dag, en sigur hefði nokkuð örugglega fært þeim titilinn vegna markatölunnar. En kannski er ekkert svo slæmt, þrátt fyrir gremjuna með úrslitin, að spennan haldist í einvígi Chelsea og United um titilinn eilítið lengur.

Bara ágætt að hafa spennu í þessu allt til síðasta leiks, þó ég verði að vera alveg heiðarlegur og viðurkenna að ég hefði ekki syrgt að komast hefði mátt hjá þeirri spennu með sigri í dag. Svo verður að auki áhugavert að sjá hvernig fer í Evrópubikarnum.

Chelsea og Manchester United eiga spennandi leiki framundan á móti Liverpool og Barcelona á næstunni. Allir knattspyrnuspekingar munu fylgjast vel með því.

Verður gaman að sjá hvort að sama lið nær að taka báða þessa titla.


mbl.is Chelsea sigraði Man Utd, 2:1, og liðin jöfn að stigum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll frændi! ertu búinn að ná niður blóðþrýstinginum eftir vörubílstjóra ævintýrin  undanfarna daga? hehe =) Heyrðu gætiru nokkuð sent mér linka á upplýsingar um íslenskan ríkisborgararétt? Ég er svolítið forvitin eftir að vinkona minni var hafnað um ríkisborgararétt útaf lítilli skítni hraðasekt!

Við heyrumst, vertu í bandi þegar þú kemur suður næst! MBK úr borginni.

Ólöf (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband