Veik staða Hillary - Obama að ná útnefningunni

Hillary Rodham Clinton Hillary Rodham Clinton náði ekki eins öruggum sigri í Indiana og fyrst benti til um miðnætti að íslenskum tíma í gærkvöldi - sigraði aðeins með um 17.000 atkvæða mun, sem er of naumt fyrir hana í ljósi afgerandi sigurs Barack Obama í Norður-Karólínu. Munurinn á milli þeirra í þingfulltrúafjölda jókst því og orðið æ augljósara að Obama verði forsetaframbjóðandi demókrata í nóvember.

Stór þáttaskil, Hillary í vil, verða því æ ólíklegri í þessari stöðu og eiginlega erfitt að finna rök fyrir því að ofurfulltrúar styðji Hillary. Eins og staðan er nú virðist taflið það erfitt fyrir Hillary að vonlítið er að halda áfram til að stefna allavega að sigri. Til þess að hafa alvöru rök í áframhaldandi kostnaðarsama baráttu hefði Hillary þurft að sigra í Indiana með þeim mun sem var í upphafi talningar og ná að koma í veg fyrir að Obama næði meira en tíu prósenta sigri yfir henni í Norður-Karólínu.

Kalt mat er því augljóslega þannig að Hillary hafi ekki lengur neitt til að berjast fyrir, þó vissulega vanti Obama enn um 200 þingfulltrúa til að geta náð útnefningunni. Fáir þingfulltrúar eru eftir í forkosningabaráttunni og erfitt að sannfæra ofurfulltrúana um að Obama verði stöðvaður úr þessu; hann hefur allt í senn sigrað í mun fleiri fylkjum, fleiri atkvæði á bakvið sig og fleiri þingfulltrúa.

Fannst merkilegt að sjá stemmninguna þegar að Hillary ávarpaði stuðningsmenn í Indianapolis í nótt. Það var áður en lokatölur í Indiana lágu fyrir og á þeirri stundu minnkaði munurinn á milli þeirra sífellt. Hillary hélt þrumandi ræðu, en þó mun lágstemmdari en hún hefur oft verið. Að baki henni voru feðginin Bill og Chelsea augljóslega nokkuð niðurdregin og reyndu að brosa í gegnum þau svipbrigði að þau væru að fagna einhverju sem væri utan seilingar. Þannig er stemmningin hjá Hillary.

Hún getur haldið áfram en tilganginn til þess vantar augljóslega. Hillary virðist hafa aflýst viðtölum morgunsins og er að fara yfir stöðuna. Kalt mat á stöðunni er sú að Obama er kominn með aðra hendina á hnossið mikla, sem barist hefur verið um síðustu 15 mánuði. Hillary mistókst að höggva skarð í forskot Obama í nótt, þrátt fyrir að ná vissulega merkilegum sigri í Indiana. Hann var þó of tæpur og frekari barátta verður flokknum erfið.

Hillary og Bill hafa kunnað jafnan á tímasetningar. Tap hefur þó ekki þekkst í þeirra orðabók og þau hafa ekki verið þekkt fyrir að leggja árar í bát. Staðan nú er þó orðin það erfið að væntanlega verður það valkosturinn fyrr en síðar, einkum til að Hillary geti átt líf í pólitík handan þessa harðvítuga og kostnaðarsama forkosningaslags.

mbl.is Obama hefur yfirhöndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki sammála þessari greiningu Stebbi. Það verða ofurfulltrúarnir sem ráða niðurstöðunni, og þeir horfa á það eitt hvor þeirra fái fleiri atkvæði á landsvísu. Ef það er reiknað þá er Hillary með vinninginn hvað varðar baráttuna við McCain. Ég bíð með af afskrifa konuna.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 10:46

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Þetta er orðið mjög erfitt hjá Hillary. Sjálfur hef ég ekki viljað afskrifa hana og gerði ráð fyrir að hún héldi áfram í gær með traustan sigur í Indiana. Hún náði ekki þeim trausta sigri sem fyrst var spáð og eðlilega veikist staða hennar þar sem svo lítið er eftir.

Aðeins eru sex forkosningar eftir, veigalitlir bardagar eiginlega eftir allt sem á undan er gengið. Hillary mistókst að saxa á forskot Obama og sérstaklega var þetta tæpt í Indiana. Hefði Obama unnið þar hefði hún dregið sig í hlé sennilega þegar í gærkvöldi, enda væri hún þá með tapaða stöðu.

Hún getur haldið áfram en það er til lítils að berjast. Held að það sé bara tímaspursmál hvenær að ofurfulltrúarnir styðji Obama, margir hafa þeir beðið og þeir fara að gefa sig upp núna þegar að vitað mál er að forkosningaslagurinn er í raun búinn.

Stefán Friðrik Stefánsson, 7.5.2008 kl. 10:50

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Algerlega sammála Gísla þarna/þetta er ekki búið hjá Hillary/menn hugsa um framhaldið við McCain og þar er hún sterkari ef eitthvað er/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 7.5.2008 kl. 14:27

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Við skulum vona að frú Clinton fari nú ekki að hætta núna. Það skiptir miklu máli að þetta verði ekki útkljáð fyrr en í ágúst.

Óðinn Þórisson, 7.5.2008 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband