Mótmæli við þinghúsið - bílstjórar minna á sig

Mótmæli við þinghúsiðEftir að hafa sleppt mótmælum í hálfan mánuð, frá umdeildum mótmælum við Rauðavatn sem leiddu til lögregluaðgerða, minna atvinnubílstjórar nú enn og aftur á sig og sína baráttu, sem hefur orðið æ umdeildari eftir því sem frá hefur liðið, þó flestir séu hlynntir því að lækka eldsneytisverðið auðvitað.

Þeir eru greinilega hvergi nærri hættir baráttunni. Bílstjórarnir tóku sér pásu að ég tel meðvitað, enda sködduðust þeir frekar en styrktust á afleitu orðavali talsmannsins, lætin á Kirkjusandi og furðuleg mótmæli við Bessastaði þegar að Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, kom til landsins.

Væri reyndar fróðlegt að vita hver strategía bílstjóranna er ef þeir halda mótmælum áfram. Ætla þeir að fara í stóra stoppið margumtalaða? Ætli sér að lama höfuðborgarsvæðið með mótmælum, leggja bílum sínum og skilja þá eftir á aðalumferðaræðum borgarinnar? Sennilega myndu lætin við Rauðavatn hverfa í skugga þess sem myndi gerast í kjölfar þess. 

Bílstjórarnir höfðu mikinn stuðning almennings fyrst en hann hefur dvínað mjög að undanförnu, að mestu vegna taktískra mistaka í mótmælunum. Ekki virðist það hafa slegið þá út af laginu.


mbl.is Flautað við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Stjórnarskrá íslands segir þetta hér


74. gr.

Rétt eiga menn á að safnast saman vopnlausir. Lögreglunni er heimilt að vera við almennar samkomur. Banna má mannfundi undir berum himni ef uggvænt þykir að af þeim leiði óspektir.]

Og eins og stjórnarskráin segir -- þeir þurfa ekki sinu sinni að biðja um leyfi til að mótmæla.

Halldór Sigurðsson, 8.5.2008 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband