Dagný Linda hættir keppni

Dagný Linda

Dagný Linda Kristjánsdóttir, fremsta skíðakona landsins síðustu árin, hefur nú ákveðið að hætta keppni á hátindi síns ferils vegna meiðsla. Þetta eru svipleg tíðindi og áfall fyrir skíðaíþróttina enda hefur Dagný Linda verið í fararbroddi í íþróttinni og staðið sig mjög vel. Af henni er mikil eftirsjá, en ég skil þessa ákvörðun, eins erfið og hún hlýtur þó að hafa verið fyrir Dagnýju Lindu sem hefur frá æskuárum iðkað skíðin af miklum krafti.

Hún hefur hlotið mikinn stuðning bæjarbúa hér og verið valin íþróttamaður ársins hér ár eftir ár, hlotið styrki og verið mikils metin. Enda á hún það allt skilið og gott betur en það, hefur staðið sig vel og átt glæsilegan feril, sem er okkur öllum hér fyrir norðan til sóma.

Hún hefur verið afgerandi forystukona í skíðaíþróttinni og gert góða hluti, ekki aðeins hér heima heldur um víða veröld. Dagný Linda getur sannarlega verið stolt af sínu.


mbl.is Dagný Linda leggur skíðin á hilluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband