Ólga í Ráðhúsinu vegna launakjara Jakobs

Jakob Frímann Magnússon Eðlilega er ólga meðal starfsmanna í Ráðhúsi Reykjavíkur vegna launakjara Jakobs Frímanns Magnússonar, en hann er að fá laun á við æðstu embættismenn borgarinnar fyrir sín verk, samhliða því að vera formaður í borgarnefnd. Eftir því sem meira er litið á þetta mál finnst mér það vera skítugra og undrast að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins láti svona verklag sjást á sinni vakt.

Eitt er að Jakob gegni starfinu, en annað er að hann sé formaður í sömu borgarnefnd og starfið heyrir undir og eigi að hafa eftirlit með sjálfum sér. Auk þess finnst mér það mjög áleitin spurning hvort að eðlilegt sé að hann fái þessa stöðu án auglýsingar. Talað hefur verið um að sambærileg staða hafi verið auglýst fyrir nokkrum mánuðum og ekkert gert með umsóknir um hana. Þetta er auðvitað ekkert nema pólitísk ráðning og furðulegt að borgarstjóri neiti því.

Finnst borgarmálin sífellt verða ídeótískari og vitlausari. Ekki óraði manni fyrir í ársbyrjun þegar að enn einn meirihlutinn var myndaður að lægra yrði komist í vitleysunni en fólki þar hefur tekist það. Þetta er niðurlægingartímabil fyrir reykvísk stjórnmál og mér finnst enginn rísa yfir vitleysuna sem þar hefur átt sér stað síðasta hálfa árið.

mbl.is Spurt um ráðningu Jakobs Frímanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Fyrir mér er þessi meirihluti gjaldþrota og það að enginn mætti Svandisi í kastljósi var verulega dapurt svo ekki sé fastara að orði kveðið.
Úr því sem komið er spurning um að láta Ólaf klára kjörtímabilið sem borgarstjóra því enn einn nýr borgarstjóri er vond lausn.

Óðinn Þórisson, 8.5.2008 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband