"Tæknileg mistök" Árna Johnsen

Árni Johnsen Fátt hefur verið rætt meira síðustu daga en pólitísk upprisa Árna Johnsen í Suðurkjördæmi. Sjálfstæðismenn í kjördæminu hafa kjörið Árna til trúnaðarstarfa í sína þágu og falið honum kraft til framboðs í fremstu víglínu Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu. Endurkoma þessa umdeilda stjórnmálamanns, sem segja varð af sér með skömm fyrir rúmum fimm árum, er enn ofarlega í huga flestra landsmanna. Á þessari pólitísku upprisu hafa allir skoðun. Ég hef í nokkrum pistlum hér frá úrslitum prófkjörsins farið yfir mitt mat á þessu.

Í kvöld var viðtal við Árna Johnsen í fréttum. Fór hann yfir málið eftir að Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, tjáði sig um það í gær. Skilaboð Geirs voru kristalskýr - Árni nyti stuðnings forystu flokksins og trausts þeirra. Það voru skilaboð sem eru umdeild innan flokksins. Það veit ég mjög vel. Í kvöld talaði Árni af iðrun og baðst fyrirgefningar á stöðu mála. Það er gott og blessað og hefði átt að gerast fyrir margt löngu. Enginn getur fyrirgefið iðrandi syndara sem ekki iðrast nema með herkjum og ósannfærandi túlkun á brá. Það er algjör grunnforsenda þess að fyrirgefning sé möguleg. Það er mitt mat, ég er viss um að margir séu mér sammála.

Eitt orðalag sló mig nokkuð. Árni sagðist hafa gert tæknileg mistök á sínum tíma. Ég leiddi hugann að því hvernig í ósköpunum sé hægt að kalla það sem gerðist er leiddi til pólitískra leiðarloka Árna fyrir fimm árum tæknileg mistök. Þetta er óheppilegt orðalag og hjálpar engum, allra síst þingmannsefninu sem sunnlenskir sjálfstæðismenn sáu í Árna Johnsen. Ekki urðu þessi ummæli til að milda afstöðu mína, svo mikið er víst. Það er að mínu mati algjört lágmark að Árni bæðist afsökunar og gerði þessi mál upp. Ástæða þess að mörgum mislíkar pólitísk upprisa hans á Suðurlandi þessa dagana er einmitt að iðrunina vantar í kjölfar þess að hann sat sinn dóm.

Það eitt myndi bæta stöðu Árna mikið í huga margra, almennra flokksmanna innan Sjálfstæðisflokksins og ekki síður landsmanna í heildina litið. Það er mannlegt að brjóta af sér en forhert að geta ekki viðurkennt með heiðarlegum hætti það sem aflaga fór. Það er grunnforsenda þess að maður geti tekið syndara í sátt er á hólminn kemur. Það er altént mitt mat.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef ekki trú á því að Árni Johnsen, eins ágætur og hann kann að vera (ég veit ekkert um það) eigi eftir að láta Sjálfstæðisflokkinn græða á sér atkvæðalega séð í vor.  Held hann muni frekar skemma fyrir!

Þorkell Gunnar (IP-tala skráð) 15.11.2006 kl. 02:02

2 Smámynd: Sigrún Sæmundsdóttir

Ég tel að þessi ,,, tæknilegu mistök,,, verði honun og flokknum til mikilla ama núna. Mér fannst hann ekki iðrast neins nema að gera þessi tæknilegu mistök svo að upp um hann komst.  Ég er sammála þér Stefán að það er mannlegt að gera mistök. En ef satt skal segja er ég farin að hugsa hvernig þetta er að verða með þinngmenn ( tilvonandi líka ) er ég skoða ummæli Árna með tæknilegu mistökin og ummæli Guðna er verið var að tala um framsóknarsvik og sagði málflutning Björgvins alls ekki ganga upp á Suðurlandi því þar hafi menn tamið sér að segja satt og kennt stjórnmálamönnum það.   Ég veit bara ekki hvor megin þetta er að verða betri spaugstofa, hjá ruv eða þingið.

Sigrún Sæmundsdóttir, 15.11.2006 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband