Snobbið í laxveiðinni

Sennilega er það eitt besta dæmið um það hversu snobbuð þessi blessaða þjóð er orðin þegar fólk er farið í frí og útivistina með þyrlu. Kannski þarf þetta ekki að koma að óvörum en svona er þetta víst. Flestir þeir sem ég þekki eru að fara í laxveiði sér til heilsubótar og ánægju og eru ekki svo efnaðir að geta farið með þyrluflugi þangað.

Svolítið fyndið.


mbl.is Með þyrlum í laxveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afhverju má fólk ekki nota þyrlu?

Afhverju þurfa alltaf þeir sem ekki hafa efni á að leigja þyrlu alltaf að kvarta kveina og gráta ef aðrir geta það?

Ég er ekki ríkur og hef ekki efni á að leigja þyrlu en samt er ég mjög ánægður, sæll og glaður, kannski afþví ég er ekki tuðandi endalaust og spekúlerandi í hvað hinir eru að gera.

Mér finnst ekki rétt að tala um snobbaða þjóð, það að einhver geti leyft sér eitthvað sem þú getur ekki er ekki merki um snobb.

Átt þú bíl eða íbúð? Ef svo er þá hlýtur þú að vera snobbari í augum þeirra sem hafa það ekki jafn gott og þú.

Hermann Hafsteinsson (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 17:14

2 identicon

Þessi snobbaða þjóð sem þarna var á ferð, er ekki okkar, heldur voru þarna Rússar á ferð. Engu að síður eru íslenskir laxveiðimenn að farast úr snobbi og gætu eflaust hugsað sér þyrlu til að flytja sig á milli svæða í sínum fínu ám. Nú, svo las ég dæmi um „laxara" sem tóku sér far með þyrlu til að kaupa sér pylsur í brauði.

núll (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 00:56

3 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Ég var að tala almennt um þessi mál, þó skrifin séu vegna þessarar fréttar. Dæmi er um að farið hafi verið í laxveiði og til að kaupa sér pylsu á þyrlu. Væntanlega er þetta bara dæmi um snobbið. Ekki hægt að segja annað. Kannski finnst einhverjum þetta glæsilegur lífsstíll, það er gott og blessað ef það er mat einhverra. Flestir telja þetta bruðl og snobb, sérstaklega á þessum tímum.

Stefán Friðrik Stefánsson, 16.7.2008 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband