Nú er það orðið svart á Skaganum

Ekki er hægt annað en vorkenna þeim á Skaganum. Útlitið er vægast sagt orðið svart. Skaginn er nú í þeirri aðstöðu að spilað er upp á hvert stig. Mér finnst mjög merkilegt að svona skuli komið fyrir ÍA. Efniviðurinn var í lið sem myndi spila upp á titla en þrautaganga hefur það orðið í sumar. Ekki virðist hafa dugað það eitt að reka Guðjón, en væntanlega getur tekið nokkurn tíma að snúa vörn í sókn.

Bæði er lánleysið algjört og samstaðan dvínandi. Mikið virðist að liðinu, þar vantar að eiga nýtt upphaf. Kannski er það orðið of seint. Staðan núna er þannig að næstu lið verða öll að klúðra stórt og Skaginn að eiga meistaraleik það sem eftir lifir af sumri til að eiga séns. Efast um að það sé hægt að snúa þessu við úr þessu.

Tvíburarnir gerðu þetta fyrir tveim árum með eftirminnilegum glans. Nú virðast öll sund lokuð. Skaginn hefur verið í efstu deild síðan árið 1992, þegar að liðið vann deildina að mig minnir fimm ár í röð. Þá hafði það tekið skellinn áður og fallið um deild en kom tvíeflt til baka.

Kannski verða það örlög Skagamanna núna að falla og eiga sitt nýja upphaf í fyrstu deild.

mbl.is Stórsigur Keflvíkinga gegn lánlausum Skagamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir leiðréttinguna. Skil ekki hvernig þessi villa gat slæðst með. Fannst þetta ansi fyndið að sjá þegar ég las færsluna aftur. Einhver draugur komist í þetta. :)

En já, leitt hvernig komið er fyrir Skaganum. Vona að þeir nái sér á strik fljótlega.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 12.8.2008 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband