12.4.2009 | 14:26
Styrkjamálið eltir flokkinn í kosningabaráttuna
Enginn vafi leikur á því að styrkjamálið mun hundelta Sjálfstæðisflokkinn inn í kosningabaráttuna. Þar sem ekki var gengið hreint til verks og málið klárað algjörlega tekur forysta flokksins í Reykjavík og á landsvísu talsverða áhættu, ekki aðeins fyrir sig heldur og frambjóðendur í baráttusætum um allt land, til að þóknast nokkrum mönnum sem sumir telja ekki hægt að fórna þó þeir hafi staðnir að tvískinnungi og því að fara ekki rétt með mikilvæga þætti atburðarásarinnar og verið teymdir út á braut sannleikans í erfiðu máli á viðkvæmum tíma.
Vel má vera að einhverjir telji rétt að taka þessa áhættu vitandi að hún getur farið á versta veg, ekki aðeins fyrir þá sem komu ekki hreint fram heldur flokksheildina sem slíka. Þeir sem taka svona á málum hafa gleymt hinum margfrægu orðum fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins að enginn einn maður sé merkilegri en sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn. En það er kannski eftir öðru að það gerist aftur. Þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson klikkaði sem leiðtogi flokksins í borgarmálunum var löngum tíma varið í að reyna að bjarga honum án árangurs.
Ég er einn af þeim sem þykir mjög vænt um Sjálfstæðisflokkinn, hef verið þar lengi flokksbundinn og lagt honum margt til, bæði persónulega í innra starfinu með trúnaðarstörfum, að mörgu leyti óeigingjörnum, og ég hef kosið hann og talað máli hans árum saman í góðri trú. Vægt til orða er tekið að ég sé hundfúll með hvernig staðið var að málum. Ég er þó líka ósáttur við niðurstöðuna. Það er skítalykt af henni.
Ég er ekki sannfærður um að styðja Sjálfstæðisflokkinn að þessu sinni. Þeir sem geta ekki gengið hreint til verks eiga ekki að auglýsa sig undir því slagorði.
Vel má vera að einhverjir telji rétt að taka þessa áhættu vitandi að hún getur farið á versta veg, ekki aðeins fyrir þá sem komu ekki hreint fram heldur flokksheildina sem slíka. Þeir sem taka svona á málum hafa gleymt hinum margfrægu orðum fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins að enginn einn maður sé merkilegri en sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn. En það er kannski eftir öðru að það gerist aftur. Þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson klikkaði sem leiðtogi flokksins í borgarmálunum var löngum tíma varið í að reyna að bjarga honum án árangurs.
Ég er einn af þeim sem þykir mjög vænt um Sjálfstæðisflokkinn, hef verið þar lengi flokksbundinn og lagt honum margt til, bæði persónulega í innra starfinu með trúnaðarstörfum, að mörgu leyti óeigingjörnum, og ég hef kosið hann og talað máli hans árum saman í góðri trú. Vægt til orða er tekið að ég sé hundfúll með hvernig staðið var að málum. Ég er þó líka ósáttur við niðurstöðuna. Það er skítalykt af henni.
Ég er ekki sannfærður um að styðja Sjálfstæðisflokkinn að þessu sinni. Þeir sem geta ekki gengið hreint til verks eiga ekki að auglýsa sig undir því slagorði.
Nöfn fyrirtækja ekki rædd í miðstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Ég hef tekið þá ákvörðun að mæta ekki á kjörstað.
Páll A. Þorgeirsson, 12.4.2009 kl. 14:39
Sammála þér Stefán Friðrik að ákvörðun og orð Bjarna Ben nýs formanns voru mér mikil vonbrigði eins og ég bloggaði um í gær. Hér var ekki gengið hreint til verks og ég hélt satt að segja að forysta Sjálfstæðisflokksins hefði eitthvað lært af óförum síðustu missera m.a. í borgarstjórn Reykjavíkur. Auðvitað átti að velja strax Hönnu Birnu til að leiða flokkinn án málalenginga og vandræðagangsins sem þjóðin þurfti að horfa upp á allt of lengi.
Það er sannanlega miklu fórnað fyrir Guðlaug Þór og Kjartan Gunnarsson. Á því verður forystan að bera ábyrgð þegar talið verður upp úr kössunum.
Jón Baldur Lorange, 12.4.2009 kl. 15:21
Þið eruð eins og menn sem hætta að styðja liðið sitt þegar það hefur tapað leik. Mætið á kjörstað og krossið við D. Oft var þörf en nú er nauðsyn.
Baldur Hermannsson, 12.4.2009 kl. 15:45
Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Stórfjölskyldan mín, Sjálfstæðismenn til margra áratuga, mun sitja heima eða kjósa annað í þessum kosningum. Nú kemur Einar K. Guðfinnsson, sem titlar sig sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á heimasíðu sinni, fram og talar um að Sjálfstæðisflokkurinn standi fyrir heiðarleika! Hvar var þessi heiðarleiki fyrir 2 árum? Var sjálfstæðisflokkurinn ekki búinn að tileinka sér hann þá? Því miður er nýkjörinn formaður flokksins ekki að ganga hreint til verks, hann hefur brugðist væntingum margra.
Þórður Runólfsson (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 16:09
Í fyrsta skipti frá því að ég fékk kosningarétt mun ég ekki styðja sjálfstæðisflokkinn. Mér finnst það dapurlegt að svo skuli vera komið fyrir flokknum mínum, en ég get ekki samvisku minnar vegna stutt hann. Það er skítalykt í þessu máli. Hún mun finnast í þessari kosningarbaráttu.
Þórður Möller (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 17:28
Baldur
Er það svona sem þú kýst? Eftir hverjum þú heldur með. úff
Kv. Jóhann
Jóhann Gunnar (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 17:41
Rugludallar getið þið verið. Hvaða máli skipta þessir styrkir fyrir framtíð þessarar þjóðar? Akkúrat engu máli. Allt tala um hvað sé siðlaust og hvað ekki er bara ropi úr siðlausum börkum. Siðferði hefur aldrei vafist fyrir Íslendingum. Það gerði það ekki þegar við lokuðum augunum fyrir því sem útrásarvíkingarnir voru að gera, því allir vildu spila með. Gleggsta dæmið um siðleysið er þegar fjölmiðlalögunum var hafnað af stjórnarandstöðu og forseta Íslands. Þeir sem þá glöddust eiga ekki að tala um siðleysi annarra.
Kosningarnar núna eiga að snúast um hvernig stjórnmálaflokkarnir ætla að taka á þeim gríðarlega vanda sem við stöndum frammi fyrir, þ.e. hvernig þeir ætla að loka fjárlagagatinu. Ekki gleyma því að það er rúmir 150 milljarðar og því skal lokað fyrir 2012. Það gerist ekki sársaukalaust.
Ef þið viljið skemmta skrattanum með því að tala bara um eitthvað annað þá má segja að þessi þjóð hefur ekkert lært á þeim mánuðum sem liðnir eru frá bankahruninu.
Ragnhildur Kolka, 12.4.2009 kl. 17:48
Ragnhildur, frá mínum bæjardyrum séð er þetta einskonar öfugsnúin fortíðarþrá. Við þörfnumst núna umfram allt lausnamiðaðrar nálgunar. Við einhendum okkur að framtíðinni. En andróðurinn hefur verið svo harður að einhverjir munu bogna. Hver og einn gerir upp við sína samvisku hvað hann vill gera.
Baldur Hermannsson, 12.4.2009 kl. 18:16
Baldur: Ef liðið mitt er staðið að því að spila óheiðarlega og kemst upp með það þá er það ekki liðið sem ég myndi vilja styðja í næsta leik, reyndar ekki fyrr en ég frétti að það væri farið að spila eftir leikreglum.
Ragnhildur: Það voru þessir siðlausu sem áttu að standa vaktina, ég hafði enga aðstöðu til að skifta mér af þá. En nú hef ég valið og ég vel að velja ekki þessa sömu menn/konur aftur til eftirlitsstarfa........ekki í bráð alla vega
Sverrir Einarsson, 12.4.2009 kl. 18:18
Sverrir, ég bara endurtek það sem ég hef áður sagt: mútur eru ekki aðeins forkastanlegar, þær eru lögbrot. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þiggja stóra fjárhæð, svo framarlega sem engin undirmál fylgja.
Baldur Hermannsson, 13.4.2009 kl. 00:33
Menn eða málefni EÐA menn og málefni?
Júlíus Valsson, 13.4.2009 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.