Kristján Þór þiggur biðlaunin

Kristján Þór Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, hefur ákveðið að þiggja biðlaun, sem hann á rétt á samkvæmt ráðningarsamningi. Í gærkvöldi upplýsti Kristján Þór á heimasíðu sinni að Samfylkingin hefði gert þá kröfu að hann hætti strax sem bæjarstjóri í kjölfar prófkjörssigurs hans hér í kjördæminu í síðasta mánuði. Er greinilegt að hann valdi að taka þessa ákvörðun, enda hefði allt annað þýtt endalok meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar.

Það telst varla óeðlilegt að Kristján Þór þiggi biðlaunin í þeirri stöðu sem uppi var er hann allt að því neyddist vegna krafna Samfylkingarinnar til að afsala sér embætti bæjarstjóra fyrir þingkosningar. Honum var allt að því gert að láta af störfum og tók þá ákvörðun og stendur uppi án þessa embættis sem honum var falið að loknum kosningum.

Samfylkingin tók þá ákvörðun að Kristján Þór gæti ekki verið lengur bæjarstjóri, það þjónaði þeim ekki að horfa upp á það í stöðunni. Það er þeirra val. Það er því varla undrunarefni að hann láti reyna á ákvæði um biðlaun í þeim samningi sem hann hafði sem bæjarstjóri og full samstaða um milli meirihlutaflokkanna.

mbl.is Kristján Þór þiggur biðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlægilegt, allt sem sagt Samfylkingunni að kenna

Addi (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 21:40

2 identicon

 Ég fletti til gamans upp á orðinu biðlaun á ordabok.is og loks google.

Getur einhver sagt mér hvort þetta: http://www.hi.is/Fel/FH/bidlaun.html (og þá sérstaklega liður 8) eigi við um Kristján.

Mér finnst fullkomlega eðlilegt að hann fái a.m.k. jafnhá heildarlaun út biðlaunatímabilið (sama hvaðan þau koma), en ef biðlaunin eiga að leggjast óskert ofan á önnur laun þá er eitthvað mikið að kerfinu.

Einar Jón (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband