5 ára stelpa stungin með eggvopni í Keflavík

Maður er eiginlega alveg orðlaus vegna frétta um að fimm ára stelpa hafi verið stungin með eggvopni í Keflavík.... eggvopnið var aðeins millimetrum frá því að fara í hjarta hennar.

Alveg hræðilegt... hvaða grimmdarhugur er að baki svona fólskuverki? Hvernig getur fullorðin manneskja gert barni þetta.... skelfilegt. Meira en lítið sjúk manneskja.

Á svona stundum er ekki nema von að maður hugsi hvað sé að gerast í þessu samfélagi.

mbl.is Telpan á gjörgæslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er hægt að segja? Hvað á að gera við svona druslu? Ég er helst á því að það sé best að "lækna" hana með því að taka af henni hausinn!

óli (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 18:49

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi vesalings kona gengur auðvitað ekki heil til skógar. Mörgum hættir til að gleyma því að geðsýki og afleiðingar hennar eru sæmilega heilbrigðu fólki of framandi til að draga fram ályktanir um svona verknað.

Árni Gunnarsson, 27.9.2009 kl. 19:29

3 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Þetta er sorgarleikur hvernig sem á það er litið.   Ég vona að viðkomandi verði vistuð í amk 16 ár eða meira.

Jón Á Grétarsson, 27.9.2009 kl. 22:03

4 Smámynd: Ásta Björk Solis

I minum augum a thessi kona ad fa lifstidar fangelsi eda spitala,thvi blessad barnid tharf ad lifa med thessum hormungar athofnun allt sitt lif......

Ásta Björk Solis, 28.9.2009 kl. 06:28

5 identicon

Sæll.

Enginn vinnur grimmdarverk.

Það eru tveir möguleikar í stöðunni.

Gífurleg Ofnotkun fíkniefna(Ofskynjunarleyfja).

Eða þá hreinlega að konan hafi skyndilega orðið viti sínu fjær og til þess geta verið margar ástæður.

Það er sérfóðra lækna að greina það, ekki okkar.

Við skulum þakka fyrir að barnið slapp og við skulum líka vona að það verði hægt með tímanum að hjápa konunni.

Gleymum því ekki að bæði barnið og eins ógæfu konan eiga aðstandendur, og þeim getur ekki liðið vel þrátt fyrir að barnið bjargaðist.

Svona nokkuð gerir engin manneskja með RÉTTU ráði.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 07:42

6 identicon

Þetta er hryllilegur atburður og mannvonskan sem þarna býr að baki vekur með mér skelfingu. Burt séð frá andlegu ástandi árásarkonunnar þá þarf að sjá til þess að hún fái harðan dóm fyrir þessa líkamsárás á saklaust barn. Það má vel vera að konan sé kolrugluð og snargeðveik en það er ekkert og þá meina ég EKKERT sem afsakar svona fólskulega árás. Raunar finnst mér það næstum móðgun við fólk sem er að glíma við geðveilu að ætla að afsaka árásarkonuna með mögulegu andlegu ástandi hennar!

Guðrún (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 09:34

7 Smámynd: Hörður Halldórsson

Skrítið að blogga um þetta , þetta er púra geðapparat mál.

Hörður Halldórsson, 28.9.2009 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband