Gleðilegt ár!

Áramót Í þessari síðustu bloggfærslu minni á árinu 2006 vil ég senda lesendum vefsins og vinum mínum og kunningjum mínar innilegustu nýárskveðjur. Óska ég þeim farsældar á nýju ári og þakka þeim samfylgdina á árinu sem er að líða. Þeim sem ég hef kynnst á árinu vil ég þakka fyrir notaleg kynni.

Ég vil sérstaklega þakka öllum þeim sem ég kynnst í gegnum þennan vef minn, sem er eiginlega mitt líf og yndi, enda fæ ég hér útrás hér fyrir skoðanir mínar og pælingar. Vil ég þakka ykkur fyrir hollustu við vefinn og að lesa hann. Það er mér ómetanlegt að fá góðar kveðjur og skilaboð við skrif mín.

bestu nýárskveðjur frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson


Nú árið er liðið í aldanna skaut
og aldrei það kemur til baka,
nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka.

En hvers er að minnast? Og hvað er það þá,
sem helst skal í minningu geyma?
Nú allt er á fljúgandi ferð liðið hjá,
það flestallt er horfið í gleymskunnar sjá.
En miskunnsemd Guðs má ei gleyma.

Hún birtist á vori sem vermandi sól,
sem vöxtur í sumarsins blíðum,
í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól,
sem skínandi himinn og gleðirík jól
í vetrarins helkuldahríðum.

Hún birtist og reynist sem blessunarlind
á blíðunnar sólfagra degi,
hún birtist sem lækning við böli og synd,
hún birtist þó skærast sem frelsarans mynd,
er lýsir oss lífsins á vegi.

Nú Guði sé lof fyrir gleðilegt ár
og góðar og frjósamar tíðir,
og Guði sé lof, því að grædd urðu sár,
og Guði sé lof, því að dögg urðu tár.
Allt breyttist í blessun um síðir.

Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir.
Gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.

Valdimar Briem


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þorlákur Lúðviksson

Þú ert enn sem komið er minn eini "bloggvinur" svo að mér finnst við hæfi að óska þér gleðilegs árs á móti.

Þetta blog.is samfélag er virkilega skemmtilegt...

Magnús Þorlákur Lúðviksson, 31.12.2006 kl. 18:12

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk kærlega fyrir kveðjuna. :)

Já, þetta er alveg magnað samfélag. Flott vefkerfi, einfalt og notalegt, líka gott að kynnast fleirum sem skrifa. Þetta er allavega það besta hérlendis.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 31.12.2006 kl. 18:40

3 Smámynd: Sigrún Sæmundsdóttir

 Gleðilegt nýtt ár.

Sigrún Sæmundsdóttir, 1.1.2007 kl. 03:25

4 Smámynd: Ólafur fannberg

gleðilegt ár

Ólafur fannberg, 1.1.2007 kl. 10:42

5 Smámynd: GK

Gleðilegt ár!

GK, 1.1.2007 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband