Valtýr Sigurðsson skipaður ríkissaksóknari

Valtýr Sigurðsson Kjaftasagan segir að Valtýr Sigurðsson, fangelsismálastjóri, verði skipaður ríkissaksóknari í dag af Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra. Það hlýtur að teljast gott val, enda Valtýr augljóslega hæfastur þeirra sem sóttu um.

Miklar umræður voru um hvort Jón HB Snorrason hlyti embættið, en frægar deilur vegna þess urðu m.a. til þess að hætt var við að veita embættið í vor þegar að Bogi Nilsson ætlaði sér upphaflega á eftirlaun.

Tel að þetta sé farsæl niðurstaða mála eftir átök í vor og held ég að flestir geti verið sáttir við valið á Valtýr í þessa stöðu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vonum það. Gangi honum vel, nóg er af vandamálum til að tækla.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 15:39

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Held hann sé fínn í þetta.

Jónína Dúadóttir, 22.11.2007 kl. 15:45

3 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Ég treysti Valtýr mjög vel til að vera ríkissaksóknari.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 15:47

4 Smámynd: Ragnheiður

Já nú er að sjá hvernig til tekst. Ég verð nú að játa að þetta kom á óvart, ég var alveg viss um að Jón H.B. yrði fyrir valinu. Af augljósum ástæðum þá fylgist ég með þessu þó að minn fangi sé ekki meðal okkar lengur.

Ragnheiður , 22.11.2007 kl. 16:16

5 Smámynd: Kristján Pétursson

Valtýr er gott val í embætti ríkissaksónara.Traustur,heiðarlegur og með reynslu sem héraðsdómari í mörg ár og núverndi fangelsismálastjóri.Held að flestir verði sáttir við hann í embættið. 

Kristján Pétursson, 22.11.2007 kl. 18:18

6 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin. Já, þetta er gott val og hið eina rétta. Valtýr er mjög hæfur í stöðuna, traustur og heiðarlegur maður.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 23.11.2007 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband