Frábær jólastemmning með Baggalút

Baggalútur Fastur liður í byrjun vefrúntarins míns á hverjum degi, fyrir utan fréttavefi, er hinn óborganlegi vefur félaganna á Baggalút. Stórskemmtilegur og flottur vefur með góðu gríni. Allavega hentar hann vel mínum húmor. Finnst þeir félagar þar algjörir snillingar. Lög þeirra hafa létt mörgum lundina.

Á hverju ári bíðum við svo eftir sykursætu aðventulagi vefsins og vel rokkuðu jólalaginu. Nýjasta aðventulagið er nú komið í spilun, þrem vikum fyrir jól. Þar hefur gamla slagaranum You´ve Lost That Loving Feeling með The Righteous Brothers breytt í sykursætan jólasmell á íslensku með öllu tilheyrandi. Vel heppnað og gott.

Mörg frábær jólalög með félögunum í Baggalút eru í tónlistarspilaranum hér á síðunni, þar á meðal þetta nýja og vel heppnaða lag.

mbl.is Baggalútur í jólafíling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðbergur Daníel Gíslason

Algjörlega sammála þér Stebbi, þeir eru raunar að mínu mati bestu grínarar landsins og þó víðar væri leitað. Síðan þeirra og fréttaaukarnir eru mjög vönduð fyrirbæri.

Það lýsir sennilega best aðdáun minni á síðu Baggalúts, að ég var búinn að opna síðuna þeirra  og fór svo á þinn vef að lesa yfir færslurnar.

Auðbergur D. Gíslason

14 ára Sjálfstæðismaður

Auðbergur Daníel Gíslason, 5.12.2007 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband